Sími : 5 800 900
Tannskaðar

Tannáverkar

17.3.2004

Algengt er að börn fái tannáverka við leik og daglega iðju.

Börn fá venjulega sína fyrstu tönn í kringum 6 - 9 mánaða aldur. Sum börn fá hana fyrr, önnur seinna. Tennurnar brjótast síðan fram hver á eftir annarri og um 2 - 3 ára aldur eru Strákur með tannskarðþær allar komnar, 20 talsins. Þetta eru barnatennurnar.

Um 6 ára aldurinn fara barnatennurnar að detta hver af annarri og fullorðinstennurnar koma í staðinn. Um 12 ára aldur ættu flestar fullorðinstennurnar að vera komnar. Þær verða 32 talsins.

Tannáverkar eru alltof algengir. Algengt er að áverkar á barnatennur verði vegna falls, árekstra og leikfanga. Hjá eldri börnum, sérstaklega strákum eldri en 8 ára, verða tannáverkar oft vegna íþróttaiðkunar, falls af hjólum, línuskautum, hlaupahjólum eða hjólabrettum og harkalegra leikja við aðra. Síðustu mánuði hafa borist til Árvekni fjöldi tilkynninga um tannáverka sem orðið hafa vegna árekstra í vatnsrennibrautum og hoppuköstulum.

Tannáverkar geta verið af ýmsum toga. Tennur brotna, detta úr, færast til eða kýlast upp í góminn. Samhliða tannáverkum fylgja oft aðrir áverkar á andliti, s.s. skurðir og/eða afrifur í andliti, vörum og gómi.

Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá að hafa ofangreint einnig í huga.

Frekari upplýsingar

Merki Tannlæknafélags Íslands                           

Á heimasíðu Tannlæknafélags Íslands er að finna góðar og almennar upplýsingar um hvernig bregðast á við tannáverkum.  Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica