Dýrabit og skordýrastungur
Ár hvert verða alltaf nokkur börn hér á landi fyrir hunda- eða kattabiti og klóri. Síðustu ár hafa stungur af völdum geitunga fjölgað verulega í samræmi við fjölgun þeirra hérlendis.
Hundar
Börn undir 5 ára aldri eru helst í hættu á að verða fyrir hundabiti. Vegna stærðar þeirra er algengast að þau séu bitin í höfuðið, andlitið eða hálsinn. Ef bitið er djúpt og nær í gegnum húðina skal leita strax til læknis. Hætta er á að barnið fái sýkingu í sárin eða varanlega ör.
Kenna þarf börnunum að umgangast hunda. Þau eru helst bitin af hundum sem þau þekkja, sem þau eiga sjálf eða vinir þeirra, frekar en af ókunnugum hundum. Rétt er að benda börnum á að vera ekki að klappa hundum sem þau þekkja ekki. Þeir geta verið frá heimili þar sem ekki eru börn.
Helsta ástæðan fyrir því að hundar bíta er þegar þeim finnst þeim ógnað á einhvern hátt, t.d. ef stigið er á rófuna, honum er klappað harkalega eða leikurinn verður of fjörugur. Bannið börnunum að ónáða hundinn þegar hann sefur og borðar. Allar tegundir hunda geta bitið ef þeim er á einhvern hátt ógnað.
Hundar geta orðið afbrýðissamir þegar komið er heim með nýjan fjölskyldumeðlim. Hafið þau aðskilin til að byrja með og sýnið hundinum athygli og hlýju.
Kettir
Mikilvægt er að kenna börnum að umgangast alla ketti með varúð, sérstaklega ketti sem þau þekkja ekki. Ef kötturinn er ekki vanur börnum getur honum fundist stafa ógn af þeim. Skyndileg hreyfing barnsins eða óvarleg snerting þess getur valdið því að kötturinn bítur eða glefsar í barnið. Ef klórið er djúpt eða bitið nær í gegnum húðina er rétt að leita strax til læknis. Hætta getur verið á að fá sýkingu í sárið eða varanleg ör.
Nokkuð algengt er að kettir stökkvi upp í barnavagna til að komast í hlýjuna þar. Rétt er að nota flugnanet á vagninn til að hindra það að þeir komist ofan í hann. Ekki er óalgengt að þeir leggist yfir andlit barnsins og valdi því þar með öndunarerfiðleikum.
Flugur
Undanfarin ár hefur nokkuð borið á geitungum hér á landi. Flestir eru smeykir við þessar flugur og hræðast stungur frá þeim. Algengt er að fólk baði út höndunum og hlaupi um æpandi þegar það sér geitung nálægt sér. Reynið að setja ykkur í spor hans. Geitungar eru að öllu jöfnu ekki að stinga fólk en ef ráðist er á þá eru meiri líkur á því. Ef geitungur kemur inn í íbúðina er rétt að halda ró sinni og reyna að koma honum út aftur.
Yngstu börnin eru í mestri hættu á að verða fyrir stungu frá geitungum. Hafið alltaf flugnanet fyrir vagninum á meðan barnið sefur í honum.
Notið lokuð glös með röri fyrir yngstu börnin úti í sólinni. Algengt er að geitungarnir sæki í gosdrykkjadósir og fari ofan í þær. Ef innihald dósarinnar sést ekki almennilega er hætta á að hann komist með næsta sopa í munninn og þá getur hann stungið þar. Eftir stungu geitungs er alltaf hætta á að stungusvæðið bólgni upp og ef stungan á sér stað í munninum er hættan meiri, því bólgan getur lokað öndunarveginum. Vegna þess hversu lítill munnur barna er gerist þetta mun hraðar hjá þeim en fullorðnum. Stungur á hálsinn geta einnig verið hættulegar þar sem bólgusvörun þar getur einnig lokað öndunarveginum. Stungur geitunga eru oftast skaðlausar en ráðfærið ykkur samt við lækni til að vera viss. Ef stunga verður í munni eða á hálsi hafið þá samband strax við lækni.
