Sími : 5 800 900
Skurðir, rispur og skrámur

Skurðir, rispur og skrámur

16.3.2004

Það er ekki óalgengt að börn hljóti skurði, rispur og skrámur við leik á heimilinu eða leiksvæðum. Þau geta meitt sig þegar þau detta af leiktækjum eða húsgögnum, leika sér nálægt gluggum og hurðum eða einfaldlega eru bara að hlaupa um í garðinum heima. Þessir áverkar eru oftast minniháttar en geta verið mjög alvarlegi, Barn stendur við stólt.d. hafa börn skorist illa á fingrum á gosdósum sem liggja mjög víða.

Á meðan lítil börn eru að ná styrk og færni í að standa sjálf upp og ganga, nota þau oft húsgögnin á heimilinu til að styðjast við. Þau eru óstöðug á fótunum og detta oft og skyndilega. Því þarf að gera heimilið öruggt t.d. með öryggisvörum sem hægt er að fá víða.

Börn sem eru athafnasöm og forvitin og hlaupa mikið um eru í aukinni hættu á að meiða sig.

Mikilvægt er að stöðva blæðingu hjá börnum eins fljótt og auðið er. Blóðmagn í einstaklingum fer eftir stærð þeirra og þyngd. Miðað er við að í fullorðnum einstaklingi séu um 6 lítrar af blóði en í tveggja ára barni sé um 1 lítri. Það segir sig því sjálft að barn má ekki við því að missa sama magn af blóði og fullorðinn einstaklingur. Barn sem missir hálfan lítra af blóði er í lífshættu, en fullorðinn einstaklingur þolir það ágætlega að missa sama magn. 

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja skurði, rispur og skrámur hjá börnum?

  • Setjið hlífar á hvöss horn á húsgögnum í hæð barnsins.

  • Setjið öryggislæsingar á skápa og skúffur sem geyma brothætta og beitta hluti.

  • Venjið barnið á að sitja kyrrt á meðan það borðar.

  • Brýnið fyrir barninu að ganga ekki eða hlaupa nálægt brothættum og beittum hlutum.

  • Setjið öryggisgler eða öryggisfilmu á gler í borðum og hurðum.  Einnig er hægt að setja t.d. skært límband á gler sem er í hæð barnsins til þess að minna það á glerið.

  • Á hurðir þarf að setja klemmuvarnir.

  • Geymið verkfæri og vélar á öruggum stað.

  • Forðist að kaupa leikföng úr brothættu plasti eða með skörpum brúnum.  Fjarlægið skemmd og brotin leikföng.

Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá að hafa ofangreint einnig í huga.

Rauði krossinn, skyndihjálpEf barn lendir í slysi er nauðsynlegt að kunna skyndihjálp. Á heimasíðu Rauða kross Íslands má finna góðar og almennar upplýsingar um skyndihjálp.  Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica