Sími : 5 800 900
Köfnun, aðskotahlutir í hálsi

Köfnun, henging og aðskotahlutur í hálsi

16.3.2004

Margir foreldrar þekkja óttann sem kemur upp þegar stendur í barna þeirra. Sem betur fer ná flest börn að hósta sjálf upp aðskotahlutnum án hjálpar, þannig að það er sjaldnast lífshættulegt.

Ung börn eiga oft erfitt með að tyggja matinn sinn nógu vel, þar sem þau eru ekki komin með allar tennurnar. Einnig er öndunarvegur þeirra þröngur. Erfitt getur verið fyrir þau að tyggja og kyngja mat eins og eplum, hráum gulrótum, poppmaís, kjöti og hnetum. Af þessum fæðutegundum eru það helst hnetur sem loka fyrir öndunarveg barna. Meiri hætta er á að fæða loki öndunarveginum ef barnið er að hlaupa um, hlæja eða gráta, með matinn í munninum.

Ung börn, sérstaklega yngri en 3ja ára, setja hluti upp í munninn. Gætið því að því að smáhlutir séu ekki þar sem þau ná til. Til að mæla hvort smáhlutur er of lítill fyrir barn yngra en 3ja ára er hægt að nota kokhólkinn.

Kokhólkinn er hægt að fá hjá Rauða Krossi Íslands.

Bæklingur smáhlutir, LöggildingastofaBæklingurinn til hliðar var fyrst gefinn út árið 2001 af Árvekni, Löggildingarstofu, Hollustuvernd ríkisins, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Rauða krossi Íslands. Smellið á myndina til að skoða hann í heild sinni.

Hætta er á köfnun ef ungabörn og smábörn sofa í óöruggum aðstæðum. Sem dæmi um það er þegar það sefur uppí hjá fullorðnum einstaklingi, í vatnsrúmi, sófa, á baunapúða eða gæruskinni, sefur með andlitið niður, í náttfötum sem eru með band um hálsinn eða það dettur í bilið milli dýnunnar og rúmsins.

Slys af völdum henginga eru sem betur fer ekki algeng hér á landi. Árlega lenda þó nokkur börn í því að vera hætt komin vegna þrengingar að hálsi. Helstu ástæður þessara slysa eru reimar í fatnaði barna en illa getur farið ef barn festir reimina t.d. í rennibraut og rennir sér af stað. Einnig geta hettur og treflar reynst hættuleg. Mikilvægt er að gæta að þessu t.d. í skíðalyftum þar sem hætta er á að þetta flækist í með alvarlegum afleiðingum.

Allir leikir barna með bönd, snúrur eða snæri geta reynst hættulegir og ættu fullorðnir einstaklingar að fylgjast sérstaklega með börnum í slíkum leikjum. Börn eiga það til að binda bönd í t.d. leiktæki og er mikilvægt að fjarlægja allt slíkt strax.

Öll bil á leiktækjum á bilinu 9-23 cm geta verið hættuleg börnum.

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja köfnun, hengingu og að aðskotahlutur festist í hálsi?

  • Tryggið að matur barna yngri en 3ja ára sé mjúkur svo barnið eigi auðveldara með að tyggja hann og kyngja. Skerið kjöt og ósoðið grænmeti í smáa bita. Skiljið barnið aldrei eftir eitt á meðan það er að borða og brýnið fyrir því að sitja kyrrt á meðan það borðar. Leyfið barninu ekki að hlaupa um með mat eða annað upp í munninum. Einnig getur verið varasamt að leyfa börnum að borða í bílnum meðan hann er á ferð.

  • Fjarlægið alla smáhluti og veljið leikföng sem hæfa aldri barnsins.   

  • Athugið hvort allir hnappar, perlur og tölur séu fastir á fötum barnsins.  Æskilegt er að fjarlægja allar reimar úr fatnaði barna.  

  • Leyfið barninu ekki að leika sér með óuppblásnar blöðrur.

  • Barnið ætti aldrei að leika sér með band t.d. sippuband eða snæri án eftirlits fullorðinna.

  • Vandið valið á búnaði fyrir barnið.  Bil milli rimla í rimlarúmi má ekki vera meira en 6 cm og hæð frá dýnubotni og að efri brún hliðar þarf að vera 60 cm, þegar rúmbotn er í lægstu stillingu.  Dýnan þarf að passa það vel í rúmið að ekki myndist bil.  Koddi er ekki nauðsynlegur fyrir barnið fyrr en um 2ja ára aldur.  Notið ekki plast til að hlífa dýnunni við þvagbleytu, heldur þar til gerð undirlök ("pissulök").  Leyfið ungabarni aldrei að sofa í vatnsrúmi, á brjóstagjafapúða eða á baunapúða. 

  • Gætið að því að engar snúrur (t.d. gardínusnúrur, rafmagnssnúrur) hangi niður eða liggi við gólfið, þar sem barn getur náð í þær.

  • Látið barnið ekki sofa í fötum sem hafa bönd í hálsmálinu eða eru með hettu.  Leyfið þeim heldur ekki að sofa með snuðkeðjur.

  • Gangið frá öllum plastpokum og umbúðum, þannig að barnið nái ekki til þeirra. 

Bendið þeim, sem barnið dvelur mikið hjá, á að hafa ofangreint einnig í huga.

Bæklingurinn Sælgæti og smálhlutir geta valdið köfnun, var endurútgefinn árið 2007. Sjá nánar.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica