Sími : 5 800 900
Klemmdir fingur

Klemmdir fingur

16.3.2004

Klemmuslys á börnum á aldrinum 0-14 ára mjög algeng og flest mjög alvarleg samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi. Árlega leita þangað fleiri en 600 börn vegna slíkra slysa, þar af teljast um 400 alvarleg. Venjulega er um er að ræða áverka þar sem farið hefur hluti framan af fingri eða hann hangir einungis á húðpjötlu.Karl með meiddan fingur

Fyrir utan sársaukann sem fylgir svona slysi getur það einnig haft sín áhrif á framtíð barnsins, t.d. varðandi framtíðarstarf. Sem betur fer er oftast hægt að bjarga fingrinum.

Mjög mikilvægt er að koma í veg fyrir þessi slys. Langflest klemmuslysin verða í leik- og grunnskólum, en þau eru sjaldgæf í heimahúsum. Einnig hafa orðið alvarleg slys vegna bílhurða. Helst verða klemmuslys í heimahúsum vegna þungra útidyrahurða sem skella aftur og geta þær valdið alvarlegum áverkum.  Hægt er að setja á útihurðina þar til gerðan lista sem settur er í hurðarfalsið.  Á innihurðir er æskilegt að setja fingravini og á svalahurðir pumpur. 

Árvekni hefur á liðnum árum bent mörgum forráðamönnum leik- og grunnskóla á hentugar lausnir til að koma í veg fyrir klemmuslys.  Foreldrar ættu þó að vera vakandi fyrir mögulegum hættum og gera athugasemdir ef þeir telja að hætta geti verið á klemmuslysum þar.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica