Sími : 5 800 900
Drukknun

Drukknun

16.3.2004

Fyrir nokkrum árum gerðu Pétur Lúðvígsson barnalæknir, Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og Guðrún B. Guðmundsdóttir læknir rannsókn á drukknunarslysum barna á aldrinum 0-14 ára á tímabilinu 1984-1993.

Þessi rannsókn sýndi að Karl í polli með kútdrukknunarslysin voru 48 talsins. Af þessum 48 börnum voru 13 börn sem dóu, þrjú þeirra hlutu varanlegan heilaskaða og 32 börn náðu fullum bata. Hlutfall þeirra sem drukknuðu eða hlutu varanlega heilaskaða var því 30%. Drukknanir geta átt sér stað víða í vatni s.s. í sundlaugum, baði, setlaugum, ám og lækjum.

Það kemur ef til vill mörgum á óvart að börn geta drukknað á innan við 3 mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni. Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega. Það heyrist ekkert kall á hjálp eða busl í vatninu.  Helsti áhættuhópurinn eru börn yngri en 5 ára en 1-3 ára börn þurfa þó sérstaka aðgæslu.  Þau eru forvitin, sífellt á ferðinni og vatn heillar þau.  Ef þau lenda í erfiðleikum hafa þau litla möguleika á að bjarga sér m.a. vegna þess að höfuð þeirra er hlutfallslega mjög þungt og stórt miðað við líkamann og því eiga þau erfitt með að lyfta höfðinu upp til að ná andanum. 

Rétt viðbrögð skipta öllu máli ef barn fellur ofan í vatn og það er því mikilvægt að kunna endurlífgun.  Dauði vegna drukknunar verður vegna skorts á súrefni til heila og hjarta.  Heilaskaði eða jafnvel dauði getur hlotist á innan við þrjár mínútur.  Aldrei skal undir nokkrum kringumstæðum skilja barn eftir eftirlitslaust í nálægð við vatn.  Ekki má heldur treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka.  Það er ekkert sem kemur í stað eftirlits fullorðinna með barninu.

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja drukknun?

  • Eftirlit með barni nálægt vatni er algjört skilyrði.  Börn undir 5 ára ættu aldrei að vera eftirlitslaus í baði.
  • Farið endilega á sundnámskeið með barnið, það getur hjálpað því að ná öryggi í vatni.  Það tryggir þó alls ekki að barnið geti bjargað sér ef það dettur í vatn.  Notið viðeigandi sundkennslubúnað fyrir barnið í sundi.  
  • Fáið fagmann til að ganga rétt frá sundlaugum og setlaugum skv. Rb(70)x002: Frágangur og öryggi við laugar og setlaugar m.t.t. barna og Rb(70)x003: Setlaugar Tæknibúnaður-öryggi.
  • Skoðið ávallt umhverfi sem er nýtt fyrir barnið m.t.t. slysagildra.  Hér má nefna byggingagrunna í nágreninu.
  • Leyfið barninu ekki að vera eitt að veiða við ár, læki eða bryggjur.

Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá til þess að hafa ofangreint einnig í huga.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.


 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica