Bruni
Bruni á húð getur orsakast af mörgu t.d. geislum sólarinnar, heitum vökvum, eldi, rafmagni, efnum og snertingu við heita hluti. Börn yngri en 4 ára, sérstaklega þó börn á aldrinum 1-2 ára, eru líklegri til að brenna sig.
Húð barna er þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna. Þess vegna brennur húð þeirra
auðveldar og brunasárið verður dýpra. Einnig er viðbragðsflýtir þeirra mun minni en fullorðinna. Liðið geta 1 1/2 til 2 1/2 mínúta þar til barnið áttar sig á því að hluturinn er heitur og færir sig frá honum. Hversu slæmur bruninn verður fer eftir ýmsu t.d. hversu lengi barnið er í snertingu við hlutinn, hversu heitur hann er og stærð og staðsetningu hans. Því fyrr sem skyndihjálp er beitt, því meiri líkur eru á að hægt sé að koma í veg fyrir öramyndun.
Margir húsbrunar verða vegna fikts barna með eldspýtur eða kveikjara. Dauðsföll af völdum húsbruna verða þó frekar vegna reykeitrunar en af völdum brunasára. Brunasár af völdum elds sem kviknað hefur vegna eldfimra vökva eins og terpentínu og sláttuvélabensíns eru algengari meðal eldri barna, sérstaklega unglinga.
Ekki er óalgengt að börn hljóti brunasár vegna þess að þau hafa verið að fikta í raftækjum, bitið í rafmagnssnúru, stungið hlutum inn í rafmagnsinnstungur eða komist í óvarða rafmagnsvíra.
Árlega verða mjög mörg brunaslys af völdum heits vatns. Óblandað heitt vatn úr heimiliskrananum getur
valdið skaðlegum bruna á augabragði. Með því að smella á myndina hér til hliðar má skoða fræðslubækling sem Orkuveita Reykjavíkur gaf út fyrir nokkrum árum.
Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja bruna hjá börnum?
-
Sólbruna er hægt að fyrirbyggja með því að nota sólarvörn þegar sólin skín. Eins og áður sagði er húð barna mun þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna og því geta börn auðveldlega sólbrunnið, jafnvel þótt skýjað sé. Börn þurfa sérstaklega sterka sólarvörn. Léttur klæðnaður og sólgleraugu koma líka að góðu gagni. Athugið að sólgleraugun séu
merkt. Börn eru oft lengi úti að leika sér þegar sólin skín. Það er ekki víst að þau eða foreldrarnir átti sig strax á því ef húð þeirra brennur þar sem vindurinn getur kælt yfirborð húðarinnar og þannig finna þau einungis fyrir léttum sviða. Ef barnið er í leik í vatni, að sjálfsögðu undir eftirliti fullorðinna, getur verið að húðin sé ekki eins heit viðkomu og hún í rauninni er. Endurkast sólargeisla frá vatni er mikið og getur það aukið líkurnar á að húðin brenni. Sólbrennd húð getur verið mjög aum og sársaukafull. -
Bruna af völdum heitra vökva er hægt að fyrirbyggja á ýmsan hátt. Börn eru forvitin og hafa gaman af því að prófa hvað þau geta. Þau reyna t.d. að sjá hvað er í bollunum, toga í rafmagnssnúrur eða pönnuskaft, fikta í tökkum á eldavélum og skrúfa frá krönum. Með þessu er hætta á að þau skaði sig með einum eða öðrum hætti. Í raun má segja að eldhúsið og baðherbergið séu hættulegustu herbergi heimilisins. Þar þarf að huga að ýmsu til að tryggja öryggi barnanna.
-
Til að forðast bruna ætti vatn úr krana á heimilum ekki að verða heitara en 40°C. Hægt er að fá blöndunartæki með hitastilli. Ef ekki er innbyggður hitastillir á blöndunartækinu ætti að skipta um blöndunartæki eða reyna á annan hátt að draga sem mest úr hita vatnsins sem kemur úr krananum. Leitið ráða hjá pípulagningamönnum eða verslunum sem selja hreinlætistæki.
-
Opinn eldur er hættulegur börnum, en mörgum þeirra finnst hann mjög heillandi. Geymið ávallt eldspýtur og kveikjara í læstum hirslum þar sem barnið nær ekki til. Um 8-10 ára aldur getur verið gott að kenna barninu að meðhöndla eldspýtur og kveikjara, til að tryggja rétta notkun þess. Brýnið þó fyrir því að kveikja aldrei á því nema undir eftirliti fullorðinna. Fáið ráðgjöf fagmanna um staðsetningu slökkvitækis, eldvarnarteppis og reykskynjara á heimilinu. Rafhlöður í reykskynjara þarf að prófa reglulega. Setjið upp og æfið flóttaáætlun ef eldur kæmi upp á heimilinu og hafið númer Neyðarlínunnar 112 við símann.
-
Á heimilinu þurfa allar rafmagnslagnir að vera í lagi. Það er algert skilyrði að í eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi séu raflagnir jarðtengdar. Lekastraumsrofi þarf að vera til staðar og hann þarf að vera í lagi. Rafmagnssnúrur ættu ekki að hanga niður á gólf eða liggja eftir gólfinu þar sem barnið getur náð til þeirra. Fjarlægið ónauðsynlegar framlengingasnúrur og fjöltengi. Rafmagnssnúrur sem eru farnar að trosna þarf að endurnýja. Innstungur á heimilinu þurfa að vera heilar og í lagi. Allar nýrri innstungur eru með innbyggðar öryggislæsingar sem draga úr hættunni á að börn slasi sig á þeim. Verja skal innstungurnar með þar til gerðum öryggislæsingum ef þær eru ekki innbyggðar.
-
Skoðið vel allar merkingar á umbúðunum. Stíflueyðandi efni og þvottaefni fyrir uppþvottavélar geta verið mjög ætandi. Gætið að því að öll efni og hreinsiefni séu geymd í læstum hirslum eða a.m.k. í hirslum með barnalæsingu. Athugið að þó að umbúðir séu með öryggislæsingu eru alltaf einhver börn sem geta opnað þær.
-
Ef barn lendir í slysi er nauðsynlegt að kunna skyndihjálp. Á heimasíðu Rauða kross Íslands má finna góðar og almennar upplýsingar um skyndihjálp. Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.
