Sími : 5 800 900
Áverkar á bein, vöðva og liði

Áverkar á bein, vöðva og liði

16.3.2004

Börn hljóta oft áverka á bein, vöðva og liði.

Ekki er óalgengt að börn detti af hjóli, hjólabretti, línuskautum, hlaupahjóli, leiktækjum, húsgögnum eða við íþróttaiðkun. Við slíkt fall getur barn hlotið beinbrot, liðhlaup, tognun á vöðva, skurð eða mar.

Bein barna eru mýkri og viðkvæmari en bein fullorðinna. Þau geta því auðveldlega brotnað við fall eða önnur óhöpp. Sjaldgæfara er að börn fari úr lið eða togni.  Börn yngri en 4-5 ára fara þó stundum úr olnbogalið þegar þau eru toguð áfram á handleggnum.  Ef slíkt gerist getur það gerst aftur og aftur.Strákur með tennisbolta

Á beinenda lengri beina, eins og fótleggjum og handleggjum, hjá börnum upp að 16 ára aldri er s.k. vaxtarlína.  Meiðsli á henni eru algeng þar sem hún er viðkvæmari en beinin og liðböndin.  Meiðsl á vaxtarlínu geta verið slæm því þau geta hamlað áframhaldandi vöxt á beininu.

Íþróttaiðkun er af hinu góða, enda stuðlar hún að hreysti, vinskap, gleði og auknu sjálfstrausti margra barna.  Alltof oft verða börn þó fyrir einhverskonar meiðslum við íþróttaiðkun.  Brot og liðhlaup eru algengust meðal 10-14 ára barna sem æfa keppnisíþróttir þar sem snertingar eru miklar s.s. körfubolti.

Sem betur fer eru áverkar á mænu sjaldgæfir hjá börnum.  Slíkir áverkar geta þó hlotist við hátt fall eða umferðarslys.  Mænuáverkar hafa líka orðið eftir fall af trampólíni, klifurtækjum og við stungur í grunna sundlaug

Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja áverka á beinum, vöðvum og liðum?

  • Vandið valið á búnaði fyrir barnið og notið öryggisvörur til að koma í veg fyrir eða minnka líkurnar á að barnið meiði sig. 
  • Fyrir íþróttaæfingar er mikilvægt að hita sig vel upp og eftir þær þarf að teygja vel á. 
  • Í þeim íþróttum þar sem það á við á barnið ávallt að nota þann öryggisbúnað sem krafist er.
  • Á línuskautum, hlaupahjóli og hjólbretti á barnið alltaf að vera með hjálm og hlífar á olnbogum, úlnliðum og hnjám.
  • Börn yngri en 6 ára ættu ekki að hoppa á trampólíni.
  • Brýnið fyrir börnum að kanna alltaf hvar má stinga sér til sunds í sundlaugina áður en hoppað er út í hana.

Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá að hafa ofangreint einnig í huga.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica