Augnskaðar
Augun eru ein af dýrmætustu skynfærum okkar. Þau eru afar viðkvæm og geta auðveldlega orðið
fyrir skaða, þrátt fyrir að líkaminn geri hvað hann geti til að vernda þau. Utan um augun eru augntóftir, tár myndast til að ýta út aðskotahlutum og augnlokin lokast snögglega þegar eitthvað nálgast andlitið.
Augnskaðar hjá börnum verða helst þegar þau leika sér í harkalegum leikjum. Einnig hafa hlotist augnskaðar þegar t.d spenna á axlaböndum hefur farið með miklum krafti í augað og þegar börn eru að elta hvert annað í gegnum trjágróður og átta sig ekki á að trjágrein sem sveigst hefur aftur kemur til baka. Í sumum íþróttagreinum t.d. badminton og tennis, getur verið hætta á að fá kúluna/boltann í augun. Sum leikföng og oddhvassir hlutir, eins og hnífar, pennar og skæri, ættu ekki að vera í höndum ungra barna. Ef barnið dettur með þessa hluti getur það skaðað augun. Hreinsiefni, ýmis krem, snyrtivörur og sígarettur geta valdið bruna í augum ef þetta berst í þau.
Öll meðhöndlun skotelda á að vera í höndum einstaklinga sem náð hafa 18 ára aldri. Börn sem fá að halda á stjörnuljósi ættu alltaf að vera undir eftirliti fullorðinna. Hlífðargleraugu eru nauðsynleg fyrir börn og fullorðna í nálægð við alla skotelda, líka stjörnuljós.
Skurðir, skrámur, mar og sýking í auga getur valdið tímabundnum eða varanlegum sjónmissi.
Hvað er hægt að gera til að fyrirbyggja augnskaða hjá börnum?
-
Gætið að því að smábörn komist ekki í beitta hnífa, glerflöskur, dósir og skæri.
-
Bæði börn og fullorðnir ættu alltaf að nota hlífðargleraugu þegar skoteldum er skotið upp.
-
Brýnið fyrir börnum að henda ekki hlutum að öðrum.
-
Segið börnunum að fara varlega í gegnum trjágróður þar sem hætta getur verið á að fá trjágreinarnar í augun.
Bendið þeim sem barnið dvelur mikið hjá að hafa ofangreint einnig í huga.
Ef barn lendir í slysi er nauðsynlegt að kunna skyndihjálp. Á heimasíðu Rauða kross Íslands má finna góðar og almennar upplýsingar um skyndihjálp. Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.
Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.
