Sími : 5 800 900
Öryggi á leiksvæðum barna

Öryggi á leiksvæðum barna

22.3.2004

Á Íslandi eru í gildi íslenskir staðlar um öryggi leikvallatækja.

Um er að ræða röð staðla: ÍST EN 1176-1 til 7 og ÍST EN 1177. Í byggingareglugerð nr 441/1998 kemur fram að við gerð leiksvæða barna skuli styðjast við gildandi staðla. Strákar vega salt

Slys á leiksvæðum

Mikilvægt er að hafa í huga að börn hafa hvorki þroska né getu til þess að þekkja og forðast hættur í umhverfinu. Líkamsbygging yngri barna er önnur en þeirri sem eldri eru, t.d. er höfuð þeirra hlutfallslega stórt og þungt miðað við líkamsstærð þeirra. Þegar barn dettur úr háu leiktæki lendir það iðulega á höfðinu vegna þyngdar þess.  Barn sem er yngra en 7 ára hefur heldur ekki þroska til þess að setja fyrir sig hendurnar þegar það fellur.  Ef undirlag undir leiktækinu er ekki öryggisundirlag, getur barnið hlotið alvarlega höfuðáverka ef það dettur niður.  Dæmi eru um að börn hafi hlotið varanlegar framheilaskemmdir sem m.a. geta lýst sér sem ofvirkni. 

Flest leiktæki eru framleidd með ákveðinn aldurshóp í huga.  Þetta er vert að hafa í huga vegna þess að mörg dæmi eru um slys á ungum börnum sem lyft var upp í leiktæki ætluð miklu eldri börnum.  Í þessum dæmum uppfylla leiktækin og undirlag alla staðla, en um ranga notkun er að ræða.  Það er því afar mikilvægt að kenna börnunum að nota leiktækin rétt og nauðsynlegt að foreldrar og þeir sem vinna með börnum s.s. leik- og grunnskólakennarar, dagmæður, starfmenn gæsluvalla, skólaliðar og fleiri viti hvernig nota á leiktækið og fyrir hvaða aldur það er. 

Það er staðreynd að börnin nota leiktækin ekki alltaf eins og ætlast er til og því er nauðsynlegt að gera þau þannig að engin möguleg hætta steðji af þeim.  Þess vegna eru kröfur í stöðlunum svo miklar.  Sem dæmi má nefna að ekkert bil á leiktækinu má vera á milli 9-23 cm, en í því bili geta börn hengt sig.

Hér að neðan koma nokkur dæmi, frá Bandaríkjunum, um alvarleg slys á börnum á leiksvæðum:

  • 4 ára stúlka var að klifra í leiktæki sem ekki var fest niður.  Stúlkan datt og fékk tækið yfir sig.  Hún lést.

  • 8 ára stúlka datt úr klifurboga.  Fallið var um 2 metrar.  Öryggisundirlag uppfyllti staðla en leiktækið var of nálægt steyptri girðingu, sem var umhverfis leiksvæðið.  Hún lést.

  • 4 ára stúlka lenti á höfðinu þegar hún datt úr rólu á ferð.  Undir leiktækinu var ekki öryggisundirlag.  Hún lést skömmu eftir slysið vegna alvarlegra höfuðáverka.

  • 2 ára stúlka festi reim úr úlpuhettu efst í rennibraut.  Þegar hún renndi sér niður hertist að hálsi hennar.  Hún lést.

  • 10 ára drengur datt af þverslá þar sem hann var að ganga jafnvægisgang.  Undirlagið var sandur og var hann frosinn.  Hann lést skömmu síðar vegna alvarlegra höfuðáverka.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

 

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica