Endurskinsmerki
Talað er um að einstaklingur á gangi án endurskinsmerkja sjáist fyrst í u.þ.b. 20 - 30 m fjarlægð frá bíl sem ekur með lág ljós. Einstaklingur sem aftur á móti notar endurskinsmerki sést í u.þ.b. 120 - 130 m fjarlægð og þá hefur bílstjórinn tækifæri til að draga úr hraða og víkja.
Börn þurfa að sjást frá öllum hliðum
Margs konar endurskinsmerki eru fáanleg m.a. í lyfjaverslunum um land allt og má þar nefna vinsælu endurskinsborðana, hangandi merki, klemmur, skokkbelti og límmerki á barnavagna og snjóþotur. Einnig er hægt að fá endurskinsmerki á hunda, ketti og hesta.
Best er að kaupa yfirhafnir á börnin sem hafa áföst endurskinsmerki. Einnig er hægt að sauma eða líma endurskinsræmur á fötin, en börnin gleyma oft að hengja á sig endurskinsborða og merkin vilja losna úr vösunum eða af ermum. Endurskinsræmur á að sauma eða líma neðst á úlpu, ermar og skálmar og þær eiga helst að ná allan hringinn. Smábútar af endurskini hér og hvar gera lítið gagn.
Skólatöskur með endurskini eru mjög góðar. Einnig er hægt að fá kuldaskó og stígvél með endurskinsrönd. Endurskinslímmerki eru ágæt til að líma á t.d. barnavagna, sleða, bakpoka, skíðastafi, hunda- og kattahálsbönd.
Endurskinsmerki eiga að vera neðarlega, sjást frá öllum hliðum og vera hrein. Endurskinsefni eru mjög misjöfn og þola sum þeirra þvott en önnur ekki. Þvottur og núningur getur því dregið úr endurskini.
Skábelti til að setja yfir öxlina hafa verið mjög vinsæl og á leikskólum hafa endurskinsvesti verið mikið notuð og reynst vel. Skokkbelti og endurskinsklemmur henta öllum sem ganga, hlaupa, hjóla og stunda skíði eða skauta.
Munið að endurskinsmerki eru ekki bara fyrir börn. Þau eiga erindi á föt allra þeirra sem fara út á meðan myrkur er. Fullorðna fólkið þarf sem sagt líka að hafa endurskinsmerki. Hangandi endurskinsmerki í vasa, bæði hægra og vinstra megin gera mikið gagn. Eitt merki hangandi á bakinu gerir lítið gagn.
Skipta þarf um merkin af og til því þau vilja rispast. Aðalatriðið er þó að muna eftir merkjunum alltaf og allsstaðar!
