Öryggisvörur fyrir heimilið
Yfirlit
- Læsing fyrir bakaraofn
- Hlíf fyrir bakaraofn
- Öryggishlíf fyrir eldavél
- Öryggishlið
- Fingravinur fyrir hurðarfals
- Snúrustyttir
- Öryggislæsing á salerni
- Öryggislæsing fyrir innstungur sem eru mikið notaðar og lok fyrir innstungur
- Beisli
- Hlífar á hvöss horn
- Hillu- og skápafesting
- Öryggislæsing á skápahurðir og skúffur
- Öryggislæsing á ískáp
- Hálkumotta og strimlar
- Öryggislæsing á glugga
Þessar vörur er hægt að fá víða s.s. í barnavöruverslunum, lyfjaverslunum, matvöruverslunum, byggingavöruverslunum og húsgagnaverslunum. Öryggisvörur hafa margsannað gildi sitt með því að koma í veg fyrir eða minnka líkurnar á að barn slasist. Rétt er þó að benda á að öryggisvörurnar koma aldrei í stað eftirlits fullorðinna, en auðvelda þeim að gera heimilið barnvænna. Heimili annarra sem barnið dvelur mikið hjá ættu einnig að vera ríkulega búin slíkum öryggisvörum. Staðreyndin er sú að oft verða slys á börnum frekar þar sem þau eru gestkomandi en heima hjá þeim, vegna þess að ekki hefur verið þannig gengið frá hlutum að börnin séu örugg fyrir hættunum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur gefið út bækling og veggspjald, þar sem sýndar eru öryggisvörur fyrir heimilið. Hér að neðan eru nokkur sýnishorn sem birt eru með leyfi félagsins. Smellið á myndina til að stækka hana.
|
Læsing fyrir bakaraofn, hentar einnig á suma örbylgjuofna.
|
Hlíf fyrir bakaraofn, sumir ofnar hitna hættulega mikið.![]() |
Öryggishlíf fyrir eldavél, hindrar að börn komist að heitum pottum og pönnum á eldavélinni. Hylur einnig takka og kemur þannig í veg fyrir að börn kveiki á eldavélinni.![]() |
Öryggishlið fyrir stigaop og hurðir, hindrar aðgengi að tröppum og herbergjum.
|
Fingravinur fyrir hurðarfals, kemur í veg fyrir að börn klemmi sig. ![]() |
Fingravinur, hindar að hurðin lokist og kemur þannig í veg fyrir að börn klemmi sig. |
Öryggislæsing fyrir fjöltengi, kemur í veg fyrir að skörpum hlutum sé stungið inn í fjöltengið.![]() |
Snúrustyttir fyrir bönd á rúllugardínum, hindrar að börn vefji snúrum utan um hálsinn.![]() |
|
Öryggislæsing á salerni, kemur í veg fyrir að börn sulli í klósettinu og verði fyrir eitrun af ilm- og hreinsiefnum.
|
Öryggislæsing fyrir innstungur sem eru mikið notaðar og lok fyrir innstungur sem eru sjaldan eða aldrei notaðar, koma í veg fyrir að skörpum hlutum sé stungið inn í innstungur. ![]() |
Beisli, kemur í veg fyrir að börn falli úr barnavögnum, kerrum, hástólum og innkaupakerrum.![]() |
Hlífar á hvöss horn, notaðar á hvöss horn sem eru í andlitshæð barna, kemur í veg fyrir skurði.
|
Hillu- og skápafesting, til að festa allar hillur, skápa og kommóður við vegg, sérstaklega mikilvægt í barnaherbergjum. Athugið að þetta á sérstaklega við á jarðskjálftasvæðum.![]() |
Öryggislæsing á rennihurðir, kemur í veg fyrir að hurðir opnist og börn klemmi sig og hindrar að þau komist í það sem geymt er í skápunum.
|
Öryggislæsing á skápahurðir og skúffur (innan á liggjandi), hindrar að börn komist í hættuleg efni og annað það sem hættulegt er.![]() |
Öryggislæsing á skápahurðir og skúffur(utan á liggjandi), hindrar að börn komist í hættuleg efni og annað það sem hættulegt er.![]() |
Öryggislæsing á ískáp, hindrar að börn komist í lyf eða önnur hættuleg efni.![]() |
Skúffustoppari, hindrar að skúffan losni úr og falli á barn.![]() |
"Vertu hér"-band, er til að koma í veg fyrir að barn fari í burtu þó að það fái aukið svigrúm.![]() |
Rafmagnssnúruveggfesting, kemur í veg fyrir að þær liggi á gólfinu þar sem börn og aðrir geta dottið um þær.![]() |
Barnaspegill í bíla, til að auðveldara sé að fylgjast með barni í aftursæti bíla.![]() |
Hálkumotta og strimlar, fyrir baðker og sturtubotna til að koma í veg fyrir fall.![]() |
Öryggislok á myndbandstæki, kemur í veg fyrir að börn geti stungið hendi inn í tækið og meitt sig og eyðilagt tækið.![]() |
Öryggislæsing á glugga, til að hindra að börn geti dottið út.
|
|
Kokhólkur, samsvarar kokstærð barna yngri en 36 mánaða. Ef smádót kemst ofan í hólkinn er það of lítið til að yngstu börnin megi leika með það. Hætta á köfnun. Kokhólkinn er hægt að fá hjá Rauða Krossi Íslands. |
Vaktari, til að hlusta eftir börnum.
|
Snúrustyttir fyrir rafmagnssnúrur, til að snúrur hangi ekki niður og börn geti ekki togað yfir sig rafmagnstæki.![]() |
Öryggisvörurnar hér að ofan eru aðeins brot af því úrvali sem fæst hérlendis. Til viðbótar má nefna:
-
Næturljós, fyrir börn sem eru myrkfælin og einnig þau sem þurfa að fara um að næturlagi.
-
Sólhlíf í bíla, dregur úr hættu á sólsting.
-
Net á barnavagna, hindrar að skordýr og kettir komist að barninu.
-
Endurskin á barnavagna, til að sjást betur í myrkri.
-
Endurskin á börnin, til að sjást betur í myrkri og auka öryggi í umferðinni.
-
Öryggisgrind á rúmstokk barna, til að koma í veg fyrir að þau detti fram úr. Sérstaklega gott fyrir efra hlaðrúm.
-
Hjólreiðahjálmur, til að minnka líkur á höfuðáverkum.
-
Öryggisbúnaður fyrir börn í bílum er lögleiddur búnaður fyrir börn sem eru léttari en 36 kg.
-
Hlíf á brúnir á arin til að minnka líkur á áverkum ef börn falla á brúnina.
-
Arinhlíf, til að hindra að börn komist að eldinum.
-
Lyfjaskápur, læstur skápur til að geyma lyf. Kemur í veg fyrir að börn nái í eitruð efni.
Unnið í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu.






















