Leikföng
Leikföng eru ekki endilega nauðsynleg í leiknum, en vel valin leikföng geta hjálpað barninu að þróa færni sína á ýmsum sviðum. Kaupendur leikfanga verða að velja leikföng sem hæfa aldri og þroska barnsins. Þeir verða einnig að vera vel á verði, skoða viðvörunarmerkingar vel og lesa og fara eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja leikfanginu.
Hafið í huga að leikföng sem ætluð eru börnum geta verið slysagildra og þau hafa ekki þroska til að meta hvort leikföngin eru hættuleg eða ekki. Hér fyrir neðan eru nokkur ráð til kaupenda sem vert er að hafa í huga þegar leikföng eru valin fyrir barnið.
Fyrir börn yngri en 3ja ára
- Þetta merki
þýðir að leikfangið er ekki við hæfi barna yngri en þriggja ára. Ástæða þess er sú að leikfanginu fylgja smáhlutir sem geta valdið köfnunarhættu ef þeir lenda í munni barns. Leikföng sem kunna að vera hættuleg börnum yngri en þriggja ára skulu vera með viðvörun þar af lútandi ásamt ábendingu um hættuna sem viðvörunin lýtur að. - Hafið í huga að lítil börn smakka á öllu, líka leikföngum.
- Gætið sérstaklega að því að leikföng hafi ekki hvassar brúnir eða hvöss horn. Slík leikföng geta meitt.
- Varist leikföng eða aðrar vörur sem líkjast matvælum en eru í raun úr gúmmí eða plasti. Ung börn geta sett þau upp í sig með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Annað sem ber að hafa í huga
- Gangið ætíð úr skugga um að notkunarleiðbeiningar fylgi leikfanginu. Lesið þær vel áður en barnið fær leikfangið í hendur og farið eftir þeim. Einnig verða kaupendur að lesa vel samsetningar- og viðhaldsleiðbeiningar, sem og upplýsingar um notkun hlífðarbúnaðar. Allar varúðarmerkingar sem fylgja leikföngum barna eiga að vera á íslensku.
- Gangið frá plastumbúðum utan af leikfanginu áður en barnið fær það í hendur.
- Hafið í huga aldur barnsins. Skoðið vel allar merkingar á leikfanginu og á umbúðunum. Á mörgum leikföngum eru merkingar sem sýna fyrir hvaða aldur leikfangið er ætlað. Hafið einnig í huga getu og áhuga barnsins .
- Á brúðum og tuskudýrum þurfa augu, nef og hár að vera vel fest. Þau þurfa einnig að þola þvott.
- Leikföng sem gefa frá sér há og hvell hljóð eiga að vera með viðvörunarmerkingu þess efnis að leikfangið eigi ekki að bera upp að eyra, þar sem það getur skaðað heyrn. Barn getur hlotið heyrnarskaða vegna hávaða frá leikfangi. Ágætt er að hlusta á hljóð leikfangsins áður en það er keypt, því barnið mun hugsanlega hlusta á leikfangið oft á dag.
- Snúrur og bönd í leikföngum mega ekki vera lengri en 22 cm. Lengri snúra getur reynst barninu hættuleg þar sem það getur vafið henni um hálsinn.
- Leikfangið þarf að vera sterklegt. Börn yngri en þriggja ára þurfa leikföng sem þola mikið hnjask. Leikföng úr harðplasti skal velja vel en sum þeirra brotna auðveldlega. Skemmt leikfang sem getur hugsanlega skaðað barnið verður að laga eða henda.
- Ef límmiðar og slíkt er fest á leikfangið, verið þá viss um að barnið geti ekki náð því af og stungið upp í sig.
- Forðist lítil leikföng og leikföng sem innihalda smáhluti sem geta valdið köfnun hjá barninu. Til að mæla hvort smáhlutur sé hættulegur er hægt að nota kokhólk sem er mælitæki fyrir kokstærð barna yngri en 3ja ára. Smáhlutur sem fellur ofan í kokhólkinn er of lítill fyrir barn yngra en 3ja ára. Hafið í huga að smáhlutir sem komast ekki ofan í kokhólkinn geta verið varasamir ef barnið er með hlutinn í munninum. Leyfið börnum ekki að hlaupa um með leikföng eða aðra hluti upp í sér. Slíkt er varasamt ef barnið dettur.
- Spilandi tækifæriskort, blikkandi húfur og aðrir hlutir sem innihalda smárafhlöður eru ekki við hæfi yngri barna, þar sem rafhlaðan getur losnað og valdið köfnunarhættu. Slíkar rafhlöður innihalda einnig eiturefni sem geta verið ætandi (sáramyndandi) í meltingarvegi.
- Blöðrur eru ekki æskilegar fyrir börn yngri en 6-8 ára. Þær hafa valdið dauðaslysum. Barn ætti ekki að leika sér með blöðru án eftirlits hvort sem hún er uppblásin eða ekki. Ef blaðra springur á meðan verið er að blása hana upp þarf að gæta að því að henda öllum hlutum hennar. Álblöðrur eru hættuminni en latex blöðrur.
- Varasamt er að gefa ungum börnum skrautmuni eins og t.d. postulínsdúkkur og babúskur (trédúkkur), sem líkjast oft leikföngum. Slíkir skrautmunir teljast ekki vera leikföng og geta innihaldið smáhluti og jafnvel eiturefni sem hættuleg eru ungum börnum. Börn ættu því ekki að leika sér með skrautmuni.
- Leikföngum sem keypt eru á útsölumörkuðum og öðrum stöðum sem eru opnir tímabundið ætti að sýna sérstaka aðgát. Erfiðara getur reynst að skila þeim leikföngum ef þau reynast ekki í lagi.
- Sömu kröfur eru gerðar til leikfanga sem keypt eru í netverslun og í verslunum.
Leikföng sem ætluð eru börnum yngri en 14 ára eiga að vera
merkt. Merkið er ekki öryggis- eða gæðastimpill heldur til staðfestingar á því að leikfangið uppfylli allar skilgreindar kröfur sem gerðar eru til framleiðslunnar. Með því að gera ákveðnar kröfur til hönnunar og framleiðslu leikfanga er leitast við að koma í veg fyrir að þau valdi slysum á börnum. Frekari upplýsingar um
merkið veitir markaðsgæsludeild Löggildingarstofu.
Ef kaupendur telja að vara uppfylli ekki lágmarkskröfur og að hún sé hættuleg eða óska eftir frekari upplýsingum eru þeir hvattir til þess að hafa samband við markaðsgæsludeild Löggildingarstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík í síma 510 1100 eða á ls@ls.is.
