Sími : 5 800 900
Innkaupakerrur

Innkaupakerrur

18.3.2004

Á síðustu árum hafa mörg ung börn slasast, og sum þeirra mjög alvarlega, þegar þau hafa verið að klifra upp úr sætum á innkaupakerru eða staðið upp í henni og hún verið á ferð.

Sum þessara slysa eru mjög alvarleg, eins og áður segir, t.d. höfuðmeiðsl. Slysin verða oftInnkaupakerra þegar foreldrarnir líta af barninu eitt augnablik eða skilja það eftir eftirlitslaust í smá tíma. Nú eru fleiri og fleiri verslanir með innkaupakerrur sem hafa áfasta barnastóla með beislum og öryggisólar fyrir barnasætin og viljum við hvetja foreldra til þess að nota þær.

Fleiri verslanir mættu bæta öryggi barna í innkaupakerrum og bjóða einungis upp á kerrur með öryggisólum. Einnig þarf eftirlit og viðhald með kerrunum og hjólunum undir þeim að vera betra. Rekja má nokkur slys til þess að eitt eða fleiri hjól kerru hafi ekki virkað.  Þegar kerru með biluðum hjólum er keyrt niður halla getur henni hvolft og börnin sem í henni eru geta hlotið alvarleg meiðsli á höfði.  Kerrum getur líka hvolft ef brotnar gangstéttarhellur eða fláar eru fyrir utan verslunina.  Oft er lélegri lýsingu á bílastæðum um að kenna ef fólk hefur ekki séð holur eða misfellur á bílastæðinu.

Fall barns úr innkaupakerru samsvarar falli fullorðins einstaklings af bílskúrsþaki.  Þar sem höfuð barna eru hlutfallslega stór og þung miðað við líkamsstærð, lenda þau oftast á höfðinu.  Í verslunum og verslunarmiðstöðvum eru nánast alltaf steingólf þannig að höfuðáverkar barnanna eru oftast alvarlegir.

Foreldrar ættu að hafa eftirfarandi í huga:

  • Kynnið ykkur hver hámarksþyngd í innkaupakerruna er.  Oft er hún um 15-18 kg.Einbl.06.10
    Notið öryggisólar ef þær eru til staðar í innkaupakerrunni.
  • Leyfið börnum aldrei að sitja eða standa í kerrunni sjálfri.
    Leyfið börnum ekki að hanga utan á kerrunni á ferð.
  • Leyfið ekki ungum börnum að keyra yngri systkini sín í innkaupakerrum.
  • Skiljið aldrei börnin eftir ein og eftirlitslaus í kerrunni.

Verslunareigendur ættu að hafa eftirfarandi í huga:

  • Merkið vel hver hámarksþyngd í innkaupakerrurnar er.
  • Farið reglulega yfir hjólin á innkaupakerrunum.  Oft flækist í þau allskonar drasl sem hindrar eðlilega virkni þeirra.
  • Farið vel yfir barnastólana reglulega og athugið hvort þeir séu ekki heilir, rétt festir og beltin í þeim séu ekki í lagi.
  • Innkaupakerrur sem eru bilaðar eða ekki heilar ætti að taka strax úr umferð.
  • Tryggið að aðkoma að versluninni sé örugg.  Gangstéttarhellur og fláar þurfa að vera heilir.  Merkið holur áberandi þar til búið er að fylla upp í þær.
  • Skoðið bílastæðið reglulega m.t.t. holumyndunar, og látið lagfæra holur strax ef einhverjar eru.  Merkið holur áberandi þar til búið er að fylla upp í þær.
  • Gangið úr skugga um að lýsing sé góð á bílastæðinu.

Veggspjald um slysahættu vegna barna í innkaupakerrum.

Spjald um sama efni sem legið getur frammi í verslunum.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica