Sími : 5 800 900
Fatnaður barna og skartgripir

Fatnaður barna og skartgripir

18.3.2004

Ýmis konar hætta getur leynst í fatnaði barna.

Talsvert er um að fatnaður eða hluti hans festist í leiktækjum, en í dag eiga leiktæki að vera þannig hönnuð að engin hætta sé á að það gerist. Hér að neðan er fjallað stuttlega um þekktar hættur.

Reimar í fatnaðiHettuúlpa með reim

Á síðustu 10 árum hafa orðið sex alvarleg slys á börnum þegar þau festu hettur eða reimar í hettum, aðallega í leiktækjum, með þeim afleiðinum að þau voru næstum búin að hengja sig.

Það eru þó ekki einungis reimar í hettum sem skapa hættu heldur allar reimar í barnafatnaði. Reimar sem eru neðan í jakka/úlpu geta t.d. hæglega fest á milli þegar bílhurð er lokað með alvarlegum afleiðingum ef bíllinn ekur af stað.

Víða erlendis hafa yfirvöld beitt sér fyrir því að ekki séu settar reimar í fatnað barna. Í einstaka löndum hafa verið settar reglur um framleiðslu barnafatnaðar þar sem fram kemur að ekki megi nota reimar í hann. Margir fataframleiðendur hafa farið eftir þessum tilmælum. Hér á landi hafa slíkar kröfur ekki verið settar fram af yfirvöldum. Eitt fyrirtæki sem framleiðir hlífðarfatnað fyrir börn á þó heiður skilið fyrir að hafa breytt framleiðslu sinni þannig að engar reimar eru notaðar í barnafatnað þeirra.

Æskilegt er að þeir sem sjá um innflutning á barnafatnaði velji fatnað frá fyrirtækjum sem ekki nota reimar í hann.  Það er samt ekki raunin hérlendis.  Í verslunum er mikið af barnafatnaði með reimum og verða foreldrar því að vanda valið vel.    Ef valinn er fatnaður með reimum er hægt að fjarlægja þær og setja í staðinn eitthvað af neðantöldu:

 

Hettur á úlpum            

 Smella                   Franskur rennilás               Tala                     Teygja


Með því að fjarlægja reimarnar er hægt að fyrirbyggja það að barnið festist með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.  Rétt er að gera það strax, áður en eitthvað gerist. 

Nú er verið að vinna að drögum að Evrópustaðli um reimar í fatnaði barna.  Enn geta liðið nokkur ár þangað til hann tekur gildi þannig að nokkur bið er á að barnafatnaður verði framleiddur án reima.   

Hafið í huga að hettur geta verið hættulegar þó engar reimar séu í þeim.  Þær geta fest með þeim afleiðingum að það þrengi að öndunarvegi barnsins.  Börn hafa verið hætt komin eftir að hafa fest hettuna í leiktækjum og ekki náð niður til jarðar.  Með því að setja t.d. teygju í stað reima í hettuna rykkist hún að hálsmáli barnsins og því minnkar hættan á að hún festist í einhverju.

Mikilvægt er að gæta að reimum, hettum og treflum t.d. í skíðalyftum þar sem hætta er á að þetta flækist í með alvarlegum afleiðingum.  Sítt hár t.d. í fléttu getur einnig flækst í ýmsu.  Öruggast er að hafa hárið innan klæða.

Axlabönd

Ef nota þarf axlabönd fyrir barnið er betra að setja það undir peysu/bol.  Þannig eru minni líkur á að það festist einhversstaðar.  Annars geta axlabönd verið hættuleg og ætti að reyna að komast hjá því að nota þau.  Á þeim eru oft járnspennur sem valdið hafa alvarlegum augnáverkum hjá börnum.  Það getur gerst ef barnið reynir að spenna þau sjálft  og spennan getur skotist beint í auga þess.  Látið barnið frekar taka þau niður af öxlunum heldur en að losa spennurnar.  Varanlegir augnskaðar hafa einnig hlotist við það að axlarböndin hafa fest í leiktækjum og barnið hefur losað spennuna og fengið hana af miklu afli í augað.   

Pollabuxur er hægt að fá með plastspennu í stað járnspennu.  Þær eru mun hættuminni og ætti því að velja þær frekar. 

Perlur, tölur og hnappar

Gætið ávallt að því að perlur, tölur, hnappar og annað þess háttar sé vel fest á föt barnsins.  Það er alltaf hætta á að þetta losni og þá er hætta á að barnið setji þetta upp í sig.  Tréperlur og -tölur eru í raun hættulegri þar sem viðurinn getur tútnað út eftir þvott og þar af leiðandi eru meiri líkur á að perlan/talan springi og detti af. Gul stígvél

Skór

Botn á skóm ætti ekki að vera úr plasti, heldur úr gúmmí.  Í frosti getur plastið orðið eins og gler og því mjög hált.  Hægt er að rekja nokkur lærbrot hjá börnum til lélegs botns á skófatnaði.

Skartgripir barna

Algengt er að ung börn fái skartgripi að gjöf, t.d. í skírnargjöf.  Oftast er um að ræða hálsmen og armbönd en síðustu ár hafa eyrnalokkar og hringir einnig notið mikilla vinsælda.  Ýmsar hættur geta fylgt notkun skartgripa og er fjallað um þær helstu hér fyrir neðan.  Mikilvægt er að foreldrar séu meðvitaðir um þessar hættur.  

Almennt er ekki mælt með því að börn noti skartgripi að staðaldri en auðvitað er gaman að nota þá við hátíðleg tækifæri.  Við 6 ára aldur minnka líkur á slysum tengdum skartgripum.

Hálsmen

Helsta hættan tengd hálsmenum er sú að ef keðjan eða snúran er of sterkbyggð skapast hætta á hengingu festi barnið hálsmenið einhvers staðar, t.d. í rennibraut.  Það er því æskilegt að fjarlægja slíkar keðjur og setja í staðinn keðjur sem slitna við minna átak.  Gæta verður að því að barnið nái ekki að setja skart sem hangir á keðjunni upp í sig.  Það sama á við perlufestar.

Armbönd

Ef armband slitnar er hætta á að barnið nái að setja það í munninn og þar með skapast hætta á köfnun.  Einnig er rétt að benda á að ef barnið festir armbandið í einhverju getur það skorist inn í handlegg þess.  

Barnið stækkar ört og því verður að gæta að því að armbandið sé hæfilega laust á úlnliðnum svo ekki skapist hætta á að það þrengi svo að, að truflun verði á blóðrás fram í hönd barnsins.

Hringar

Hætta getur verið á því að hringurinn trufli blóðrás fram í fingurinn með alvarlegum afleiðingum.  Því er mikilvægt að fylgjast reglulega með því hvort hringurinn sé rúmur á fingri barnsins.

Þar sem ungabörn og smábörn setja fingurnar mikið upp í munninn er ákveðin hætta á því að hringurinn renni af fingrinum og valdi þar með köfnunarhættu.  

Eyrnalokkar

Hættur við eyrnalokka eru nokkrar.  Í fyrsta lagi má nefna að lokkurinn getur losnað úr eyranu og barnið getur sett hann upp í sig.  Þar með skapast hætta á köfnun.  

Í öðru lagi er hætta á að barnið festi lokkana í einhverju, þó litlir séu, og þar skapast hætta á að gatið stækki eða jafnvel rifni alveg í gegnum eyrnasnepilinn.

Í þriðja lagi má nefna hættuna á því að festingin grafist inn í eyrnasnepilinn.  Ljót sár og ígerðir hafa myndast vegna þess.  Nauðsynlegt er að taka eyrnalokkana reglulega út og hreinsa þá og húðina í kringum gatið á eyrnasneplinum.  

Hárskraut

Mikið er til af fallegu hárskauti fyrir ungar stúlkur.  Við viljum benda foreldrum á að vanda valið á því og hafa í huga að það er eins og hvert annað smádót sem valdið getur köfnun.  Börnin geta yfirleitt auðveldlega tekið það úr hárinu og því er hætta á að þau setji það upp í sig.  Það er mikilvægt  að gæta þess að skraut sem er t.d. á spennum eða teygjum sé vel fest þannig að barnið geti ekki plokkað það af.  Ef margar litlar hárspennur eru settar í hárið getur verið erfitt að taka eftir því ef eina spennu vantar.  

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica