Sími : 5 800 900
Barnavörur

Húsgögn ætluð börnum

18.3.2004

Þegar valinn er búnaður fyrir barnið þarf að huga að ýmsu.

Hvort sem keyptur er nýr búnaður eða notaður búnaður fenginn að láni þarf að fara yfir hann áður en notkun hefst. Í dag eru í gildi ákveðnir staðlar fyrir hvern búnað fyrir sig, þar sem fram koma m.a. leyfilegt bil milli rimla og fleira. Hér fyrir neðan er farið yfir það helsta sem þarf að skoða fyrir notkun.

Rúm fyrir börn

Þar sem ung- og smábörn sofa mikið fyrstu mánuðina og árin er mikilvægt að vanda val á rúmi vel. Hönnun barnarúma tekur mið af því að börn geti legið og sofið í þeim án þess að stöðugt eftirlit foreldra eða forráðamanna þurfi að vera fyrir hendi. Jafnframt tekur hún mið af aldri og líkamlegri getu barnanna. Mismunandi kröfur eru gerðar til ólíkra gerða barnarúma.  Það er því afar mikilvægt að foreldrar og forráðamenn barna láti börn sofa í rúmi sem hæfir aldri þeirra og þroska.

Ungbarnavöggur

Hér á landi tíðkast það að láta nýfædd börn sofa í vöggum fyrstu vikurnar.  Oft er um að ræða vögguBarn í vöggu sem gengið hefur milli barna í fjölskyldunni, ættlið fyrir ættlið.  Mikilvægt er að hafa í huga að fléttaðar vöggur eru mun veikbyggðari og óstöðugri en barnarúm, sérstaklega þegar þær sem komnar eru til ára sinna.  Ungbarnavöggur ætti því ekki að nota nema í stuttan tíma.  Þegar barnið sýnir getu til þess að velta sér upp á hliðarnar er aukin hætta á að það geti velt vöggunni og því tímabært að fara að huga að stærra rúmi fyrir barnið.  Of seint er að gera það eftir að barnið nær að toga sig upp, krjúpa eða sitja óstutt.

Þar sem ungbarnavöggur eru oft á tíðum óstöðugar, sérstaklega þær sem eru á hjólum, getur skapast hætta á að hún velti á hliðina vegna ágangs eldri systkina.  Nauðsynlegt er að hafa börnin ávallt undir eftirliti í návist ungbarns.
   

Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun ungbarnavagga

  • Fullvissið ykkur um að vaggan sé rétt saman sett.

  • Hliðar ungbarnavöggu eiga a.m.k. að vera 27,5 cm.  Ef mælt er frá efri brún dýnu skal hæðin upp að hliðarbrún vera a.m.k. 20 cm.

  • Ungbarnavaggan þarf að standa á jöfnum fleti.

  • Vandið valið á dýnu í vögguna.  Hún þarf að passa vel í og ekki á að vera hægt að setja fleiri en tvo fingur milli dýnunnar og hliða vöggunnar.

  • Notið ekki plast til að hlífa dýnunni heldur þar til gerð lök ("pissulök").

  • Leyfið ekki ungum börnum að leika sér án eftirlits nálægt vöggu ungbarns.

  • Skiljið ekki eftir leikföng í vöggunni.

  • Ef á vöggunni eru hjól er æskilegt að á þeim séu læsingar sem tryggja betur stöðugleika hennar.

  • Notið ekki ungbarnavöggu ef hluti hennar er brotinn, rifinn eða ef eitthvað vantar.

  • Skiptið tímanlega yfir í stærra rúm fyrir barnið.  Of seint er að gera það eftir að barnið nær að toga sig upp, krjúpa eða sitja óstutt.

Rimlarúm

Hér á landi er mikið úrval af rimlarúmum.  Hægt er að fá t.d. rúm með föstum hliðum og hliðum sem hægt er að stilla í mismunandi hæð eftir aldri, stærð og getu barnsins.  Botn rúmanna er ýmist heill eða samsettur úr rimlum.  Rimlar í rúmbotni þurfa að vera festir saman á einhvern hátt svo tryggt sé að þeir færist ekki í sundur og hætta skapist á að barnið falli á milli þeirra.

    Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun rimlarúms

  • Hámarks bil milli rimla í botni skal vera 2,5 cm, þannig að tryggt sé að barnið geti ekki fest hönd, höfuð eða fótlegg á milli rimlanna.

  • Bil á milli rimla í hliðum rúmsins má ekki vera meira en 6 cm.  Þannig er komið í veg fyrir að höfuð, fætur og hendur barna festist.

  • Ef hægt er að stilla hæð rúmbotnsins er mikilvægt að lágmarks hæð, mæld frá efri brún dýnu að efri brún hliðar, sé 30 cm miðað við þegar botninn er í hæstu stillingu og 60 cm í þeirri lægstu.  Þegar barn getur snúið sér og reist sig upp er öruggast að hafa rúmbotninn alltaf í lægstu stillingu.

  • Ef rúmbotninn er samsettur úr rimlum, verið viss um að þeir séu festir saman þannig að ekki sé hætta á að þeir færist í sundur.

  • Rúmdýnan þarf að passa vel og ekki á að ekki á að vera hægt að setja fleiri en tvo fingur milli dýnunnar og rimlanna.

  • Notið ekki plast til að hlífa dýnunni heldur þar til gerð lök ("pissulök").

  • Notið hlífðarkanta inn í rúmið til þess að fyrirbyggja að barnið festi höfuð, hendur eða fætur á milli rimlanna.

  • Hengið ekki leikföng þvert yfir rúmið.

  • Allir kantar og útistandandi hlutir rúmsins eiga að vera ávalir þannig að ekki sé hætta á að barnið geti rekið sig í oddhvöss horn eða brúnir. 

  • Ef hjól eru undir rúmfótum skal vera öryggislæsing á þeim til þess að tryggja stöðugleika rúmsins.

  • Þegar barn getur farið sjálft upp úr rúminu er öruggast að skipta því út fyrir venjulegt rúm eða fella hliðar rimlarúmsins niður aftur til þess að koma í veg fyrir hátt fall.

  • Í þeim tilfellum þar sem hliðar rúmsins eru úr efni (neti) má bil á milli efnisbúta ekki vera stærra en 7mm.

Ferðarúm

Sömu kröfur eru gerðar til öryggis ferðarúma og rimlarúma.  Notendur ferðarúma verða þó að átta sig á því að hönnun og notkunarsvið þeirra eru ólík.  Mikilvægt er að þau séu rétt samansett og hliðar þeirra læsist og festist uppi þegar þau eru sett saman.  Þannig er minni hætta á að þau falli saman.   Barnið á ekki að geta lyft botni rúmsins eða öðrum hlutum þess þegar það er í rúminu.

    Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun ferðarúms

  • Mikilvægt er að ferðarúminu fylgi notkunarleiðbeiningar og varúðarmerkingar.  Nauðsynlegt er að lesa og fara eftir þeim við uppsetningu rúmsins.

  • Lágmarkshæð frá rúmbotni og að efstu brún rúmsins á að vera 60 cm.

  • Farið yfir rúmið áður en barnið fer í það og fullvissið ykkur um að allar hliðar séu læstar.  Ef festingar eru ekki öruggar ætti ekki að nota rúmið.

  • Ferðarúmið þarf að vera stöðugt og þola ágang eldri barna sem oft klifra upp á hlið þeirra.  Notið rúmið ekki ef undirstöður þess eru ótraustar.

  • Ef hliðar rúmsins eru úr neti er hámarksstærð möskva 7mm.  Notið ekki rúmið ef netið er farið að slitna og á því eru stærri göt.

  • Sumar eldri gerðir ferðarúma eru ekki með öryggislæsingum og getur verið hætta á að þau falli saman ef ein festing hefur losnað.  Dæmi eru um alvarleg slys af þeim orsökum.

  • Notið ekki plast til að hlífa dýnunni heldur þar til gerð lök ("pissulök").

Hlaðrúm

Algengt er að hlaðrúm séu notuð til að nýta pláss sem best.  Þau eru ekki ætluð sem leiktæki fyrir börn, en algengt er að börn falli niður þegar þau eru að leika sér í efra rúminu.  Framleiðendur taka oft fram í leiðbeiningum sínum að barn yngra en 6 ára eigi ekki að sofa í efra rúminu.  Þar þarf að vera hlíf til að barnið detti ekki fram úr og ef barnið er órólegt í svefni ætti ekki að leyfa því að sofa þar.  Bil á milli þrepanna í stiga upp í efra rúm má ekki vera á bilinu 9-23 cm, en slíkt bil getur valdið hengingu ef barn stingur höfðinu í það og skrikar fótur.

Skiptiborð

Á hverju ári falla mjög mörg ung- og smábörn niður af skiptiborðum.  Ástæðan er sú að sá sem er að skipta á barninu lítur af því eitt augnablik til þess að teygja sig í eitthvað eða jafnvel til þess aðPabbi að skipta um bleyju svara í símann.  Það sem komið hefur flestum á óvart er hversu fljótt þetta gerist.  Þetta gerist jafnvel áður en barnið byrjar að velta sér.  Fall af skiptiborði er mjög hátt fyrir lítinn einstakling og þar sem höfuð ung- og smábarna er hlutfallslega stórt og þungt miðað við líkamsstærð þess, lendir það alltaf á því.  Það má segja að það samsvari falli fullorðins einstaklings ofan af bílskúr.  Reglan er því sú að aldrei skal fara frá eða líta af barni sem liggur á skiptiborði, dæmi eru um að nokkurra daga gömul börn hafi velt sér niður.

    Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun skiptiborðs

  • Mikilvægt er að venja sig strax á það að hafa alltaf aðra höndina á kvið barnsins eða um annan fót þess og styðja þannig við það.
  • Aldrei skal fara frá barninu á meðan það liggur á skiptiborðinu, ekki eitt augnablik.  Ef ná þarf í eitthvað skal taka barnið með eða leggja það á hreint gólfið, leyfið símanum að hringja út.
  • Barnakrem o.þ.h. skal vera innan seilingar fyrir ykkur en á þeim stað sem barnið nær ekki til.
  • Enn öruggara er að skipta á barninu á teppi á gólfinu.

Barnavagnar og kerrur

Nokkuð er um að ungbörn slasist þegar barnavagn/kerra sem þau eru í verða fyrir einhverju óhappi. Dæmi eru um að barnavagnar og kerrur  hafi fokið um koll, ekið hefur verið á þá eða þeir hafa runnið stjórnlaust, t.d. þegar sá sem keyrir hefur misst takið á honum af einhverjum orsökum.  Það er því afar mikilvægt að nota alltaf beisli í vagninn/kerruna strax frá fyrsta degi.  Þannig er hægt að koma í veg fyrir að barnið hljóti alvarleg meiðsli.  Ekki bíða eftir því að barnið fari að snúa sér eða setjast upp.

Hér á landi er mikið úrval af barnavögnum og kerrum í verslunum og þarf því að vanda valið vel.  Mikilvægt er að velja búnað sem hentar vel íslenskum aðstæðum.  Barnavagninn/kerran þarf að vera hlýr, vatns- og vindheldur og dekkjabúnaður þarf að vera góður.  Það sama á við um þegar keyptur er eða fenginn lánaður, notaður barnavagn/kerra.

    Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun barnavagns

  • Áður en barnavagn, eða kerra, er notaður í fyrsta sinn, hvort sem hann er nýr eða notaður, þarf að fara yfir hann og athuga hvort allt sé í lagi.  Athuga þarf hvort bremsurnar virki, hvort hjólin séu öll vel föst og hvort einhverjar skrúfur eða festingar séu lausar.
  • Venjið ykkur á að nota beisli í vagninn strax frá fyrsta degi.  Ekki á að bíða með að nota beisli þar til barnið er farið að snúa sér eða setjast upp.
  • Haldið þétt og traustlega um handfangið.  Ef á handfanginu eru liðamót, til að stilla hæð þess, er mikilvægt að halda utan um þau þegar farið er niður tröppur. 
  • Látið barnið ekki sofa úti í vagni þegar hvasst er í veðri.
  • Notið hlífðarnet fyrir vagninn til að hindra að kettir, skordýr og flugur komist að barninu.
  • Breiðið ekki mikið yfir vagninn, en það getur valdið því að barnið eigi erfitt með loftskipti.
  • Hengið ekki leikföng þvert yfir vagninn.
  • Innkaupapoka og töskur ætti að setja í þar til gerða körfu undir vagninum, en ekki hengja á handfang hans.
  • Verið viss um að festa megi systkinasæti á vagninn áður en það er gert.  Festa þarf sætið traustlega á vagninn.  Athugið hver hámarksþyngd í sætið er.
  • Systkinabretti þarf að festa vel á vagninn og brýna fyrir barninu að standa kyrrt á því.

Göngugrindur

Fæstir vita að göngugrindur geta verið hættulegar börnum.  Í þeim hafa orðið mörg slys þar sem börn hafa slasast illa og jafnvel dáið.   Börnin geta náð miklum hraða í þeim og komist á staði sem þauBarn í göngugrind annars myndu ekki komast á.  Slysin verða oft þegar göngugrindin sporðreisist með barninu í, t.d. þegar barnið keyrir á þröskuld, lausa mottu á gólfinu eða annað slíkt.  Einnig hafa orðið mörg alvarleg slys þegar börnin hafa togað í rafmagnssnúrur sem hanga niður og fengið yfir sig þung rafmagnstæki.  Vitað er um mörg dæmi þar sem börn hafa togað yfir sig hraðsuðukatla með sjóðheitu vatni og hafa þau hlotið mikil og alvarleg brunasár.  Banaslys hafa orðið þegar börnin hafa ýtt sér niður stiga. 

Slys í göngugrindum verða fæst þegar börnin eru ein heldur verða þau oftar þegar verið er að fylgjast með þeim eða einhver fullorðinn er nálægt.  Foreldrar átta sig oft ekki á þeim hraða sem barnið nær í göngugrindinni og ná oft ekki að koma í veg fyrir slysið þrátt fyrir að þeir sjái í hvað stefnir.

Í rauninni er ekkert sem mælir með notkun göngugrinda.  Eins og fram kemur að ofan eru þær hættulegar m.t.t. slysa og það er heldur ekki æskilegt fyrir smáa líkama barna að vera lengi í þeim.  Álag á bak barnsins er mikið og þegar það hættir að nota göngugrindina eftir að hafa lært að ganga þarf það að læra aðra göngutækni.  Rannsóknir hafa sýnt að börn sem nota göngugrindur fara að ganga að meðaltali tveimur vikum seinna en þau börn sem ekki nota slíkar grindur. 

    Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun göngugrinda

  • Skoðið vel allar merkingar á göngugrindinni áður en notkun hefst.  Á henni ættu að vera upplýsingar um hámarksþyngd og fleira. 
  • Æskilegt er að barnið hafi náð 6 mánaða aldri áður en að það byrjar að nota göngugrindina.   Ekki má þó einungis miða við aldurinn heldur verður einnig að horfa á þroska barnsins.  Barnið verður að geta haldið höfði og setið óstutt.  Börn eiga ekki vera lengur en 10-20 mínútur í senn í grindinni.  Ekki er æskilegt að nota göngugrind eftir 15 mánaða aldur, þó að barnið sé ekki farið að ganga óstutt.
  • Barnið þarf að ná með báðum fótum niður á gólf, svo ekki sé hætta á að það renni úr sætinu. 
  • Skiljið barnið aldrei eftir eftirlitslaust í göngugrind.  Hafið augun á því allan tímann og farið ekki langt frá því á meðan það er í grindinni.
  • Leyfið barninu ekki að vera í göngugrind nálægt stigum, þrepum eða þröskuldum.  Lokið hurðum og setjið öryggishlið fyrir stiga.  Ekki er mælt með að nota svokölluð "þrýstihlið" fyrir stigann þar sem barnið getur ýtt sér af miklu afli á það, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
  • Verið viss um að á gólfinu sé ekkert sem getur valdið því að göngugrindin sporðreisist, t.d. lausar mottur eða aðrir lausir hlutir.
  • Til að fyrirbyggja brunaslys, leyfið barninu ekki að vera í göngugrindinni nálægt heitum ofnum, arni eða öðrum heitum hlutum.  Gangið frá rafmagnssnúrum þannig að barnið nái ekki að toga yfir sig þung og/eða heit rafmagnstæki.
  • Ef á göngugrindinni eru leikföng s.s. símar og hringlur er mikilvægt að fylgjast með því að þau séu vel fest og ekki sé hætta á að þau losni af. 
  • Haldið ekki á göngugrindinni á meðan barnið er í henni.

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica