Sími : 5 800 900
Slysagildrur í heimahúsum

Slysagildrur í heimahúsum

22.3.2004

GÁTLISTI slysagildrur á heimilum


Nei
Eru lyf, vítamín, snyrtivörur, hreinsiefni og önnur hættuleg efni geymd í hirslum með barnalæsingu?
Eru hnífar, skæri og önnur beitt áhöld geymd þar sem barnið nær ekki til?
Eru rafmagnstæki þar sem barnið nær ekki til?    
Er eldavélin föst við vegg?    
Er eldavélin þannig búin að ofnhurðin hitnar ekki að utan eða er hún með ofnhlíf?    
Er öryggislæsing á ofni eldavélarinnar?    
Er hlíf fyrir eldavélahellum þegar vélin er í notkun?    
Er hlíf fyrir rofum eldavélarinnar?    
Er sápan í uppþvottavélina geymd í læstum skáp?    
Eru hitastýrð blöndunartæki á handlaug, sturtu og baðkeri?    
Er skemill fyrir barnið til að standa á í baðherberginu?    
Er hálkumotta í baðkeri eða sturtubotni?    
Er barnið alltaf undir eftirliti fullorðinna í baði?    
Hanga rafmagnssnúrur niður á gólf eða liggja þær eftir gólfum þar sem barnið getur náð til þeirra?    
Er lekastraumsrofi til staðar í húsinu og er hann í lagi?    
Er öryggislæsing á öllum gluggum sem hindrar að glugginn opnist meira en 10 cm?    
Ef handrið er í húsinu eða við húsið er bilið milli rimla meira en 10 cm?    
Er sjónvarpið fast á hillu eða er borðið sem það stendur á veggfast?    
Eru allar frístandandi hillur, skápar og kommóður veggfastar?    
Er öryggislæsing á myndbandstækinu þannig að barnið geti ekki sett höndina inn í tækið?    
Er gengið þannig frá rimla- eða rúllugardínum að snúrur hanga ekki niður þar sem barn getur náð að setja þær um hálsinn á sér?    
Er fatnaður barnsins með reimum í hettu eða hálsmáli?    
Er öryggishlið fyrir stigaopum uppi og niðri?    
Eru hættulegar hurðir á heimilinu sem skellast í gegnumtrekk og geta klemmt litla fingur?    
Eru eitraðar plöntur á heimilinu?    
Er barnið eftirlitslaus að leika sér með plastpoka, blöðrur eða smádót?    
Eru óvarðir miðstöðvarofnar sem hitna mikið?    
Er eldvarnarteppi, slökkvitæki og reykskynjari á heimilinu?    
Er barnið skilið eftir eitt á hjónarúmi, t.d. amerísku rúmi?    
Er barnið skilið eftir eitt á skiptiborði?    
Er beisli í barnavagni / kerru?    
Er beisli í hástól við matarborðið?    
Eru oddhvöss horn á húsgögnum varin?    
Er öryggisgler í borðplötum og glerskápum?    
Er númer Neyðarlínunnar við símann?    
Er öryggislæsing á svalahurð?    

Kunna fullorðnir á heimilinu barnaskyndihjálp?

 

FREKARI UPPLÝSINGAR Á HEIMASÍÐUNNI: lydheilsustod.is

 Lýðheilsustöð, Laugavegi 116, 105 Reykjavík. Símar: 5 800 906. Bréfasími: 5 800 901.

 

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica