Vatn
Á Íslandi er víða vatn. Sjór umlykur landið og víða eru ár, vötn og mýrlendi. Ofan á þetta bætast síðan fjölmargar sundlaugar og setlaugar sem hér er að finna.
Yfirlit
Það kemur ef til vill mörgum á óvart að börn geta drukknað á innan við 3 mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni. Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega. Það heyrist ekkert kall á hjálp eða busl í vatninu. Helsti áhættuhópurinn eru börn yngri en 5 ára en 1-3 ára börn þurfa þó sérstaka aðgæslu. Þau eru forvitin og sífellt á ferðinni. Ef þau lenda í erfiðleikum hafa þau litla möguleika á að bjarga sér. Rétt viðbrögð skipta öllu máli ef barn fellur ofan í vatn og það er því mikilvægt að kunna endurlífgun. Heilaskaði eða jafnvel dauði getur hlotist á innan við þrjár mínútur. Aldrei skal undir nokkrum kringumstæðum skilja barn eftir eftirlitslaust í nágreni við vatn. Ekki má heldur treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka. Það er ekkert sem kemur í stað eftirlits fullorðinna með barninu. 
Ár, lækir, vötn og fjörur hafa mikið aðdráttarafl á börn, enda hægt að gera margt skemmtilegt þar. Það er samt ekki hættulaust að leika sér þar. Fram að 10-12 ára aldri hafa börn ekki þroska til að meta og forðast þær hættur sem eru í umhverfi þeirra. Foreldrar verða að fræða börnin um hætturnar og ættu aldrei að leyfa börnum að leika sér við þessa staði án eftirlits. Ef barn fer í bátsferð eða að veiða verður það að vera í björgunarvesti sem er
merkt. Góð sundkunnátta barnsins er einnig nauðsynleg.
Í október 2002 sendu Árvekni og Löggildingarstofa frá sér samantekt um vatnsleikföng, búnað til að kenna sund og búnað til annarra nota í vatni. Þessi samantekt var gerð vegna tilkynninga til Árvekni og Löggildingarstofu um að börn og fullorðnir hefðu slasast vegna rangrar notkunar á þessum búnaði.
Ár og lækir
Börn ættu aldrei að leika sér án eftirlits fullorðinna við ár og læki. Þau átta sig ekki alltaf á dýptinni þegar þau ætla að vaða yfir og geta því fallið niður, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Staumurinn getur líka verið það mikill að barnið detti um koll. Það getur verið skemmtilegt að reyna að komast yfir læki með því að hoppa á milli steinanna, en steinarnir geta verið valtir og sleipir og því getur þetta verið afar varasamt.
Börn hafa gaman af því að veiða með veiðistöng. Það ættu þau ekki að gera nema undir eftirliti fullorðinna. Til eru vöðlur sem sérstaklega eru ætlaðar börnum, en þær geta verið hættulegar ef barnið fer of langt út í ánna. Ef barnið dettur geta þær fyllst af vatni og þá getur verið erfitt fyrir barnið að standa aftur upp og komast í land. Ekki er ólgengt að börn hljóti augnskaða þar sem þau eru að veiða eða leika sér nálægt fólki sem er að veiða, því þau geta fengið öngulinn eða fluguna í augað. Það er því mikilvægt að þau séu með hlífðargleraugu eða sólgleraugu, sem eru
merkt.
Vötn
Stöðuvötn á Íslandi eru mjög köld og ef barn dettur út í þau kælist það mjög fljótt. Það getur því átt erfiðara með að synda sökum kuldans. Fötin sem barnið er í getur líka valdið því erfiðara er að synda.
Vatn í stöðuvötnum er ekki alltaf tært og því getur verið erfitt að sjá til botns. Börn hafa verið hætt komin þegar þau hafa verið að vaða og vatnið hefur skyndilega dýpkað.
Leyfið börnum aldrei að vera ein úti á bát á vatni. Það hefur oft gert að börn falli út fyrir bátinn þegar þau hafa staðið upp og misst jafnvægið.
Börn ættu aldrei að vera ein að leika sér á kanó úti á vatni. Þau þurfa að hafa náð góðri þjálfun og jafnvægi til að nota slíkan búnað. Flest slys á kanóum verða þegar þeim hvolfir.
Flotsæti fyrir veiðimenn ættu börn ekki að nota án eftirlits fullorðinna. Ásamt því þarf barnið að nota björgunarvesti, sem er
merkt. Búnaðinn ætti ekki að nota þar sem straumur er og aldrei á sjó.
Fjörur
Fjaran hefur visst aðdráttarafl á börn og unglinga. Sá leikur barna sem hefur reynst hættulegastur í fjörunni er þegar þau fara út á vakir að vetrarlagi. Sjórinn við Íslandsstrendur er mjög kaldur og þarf ekki margar mínútur í honum til að örmagnast af kulda. Börn hafa verið mjög hætt komin eftir að hafa fallið í vök, þar sem erfitt er að komast upp úr henni aftur því ísinn brotnar jafnóðum undan líkamsþunganum. Það er einnig hættulegt að fara upp á klaka á sjónum að vetrarlagi því hann getur borist í burtu með öldunum.
Að láta öldurnar elta sig er skemmtilegur og vinsæll leikur í fjörunni. Ef farið er að öllu með gát er þetta saklaus leikur, en fullorðnir ættu alltaf að vera nærri. Slíkur leikur getur þó farið úr böndunum en kröftug alda getur náð að hrífa barnið með sér.
