Öryggi barna í flugi
Öryggi barna í flugi
Á síðustu þremur árum hefur fyrirspurnum til Árvekni um öryggi barna, yngri en 2ja ára, í flugi fjölgað verulega. Til er reglugerð um mannflutninga í loftförum sem við hvetjum foreldra til að lesa.
Foreldrar spyrja m.a. töluvert um viðbótarlykkjubelti, en það eru öryggisbelti sem ætluð eru yngstu farþegunum. Þetta belti er þrætt í öryggisbeltið sem hinn fullorðni notar og barnið síðan spennt í það þar sem það situr í fangi hins fullorðna.
Einnig hafa foreldrar bent á að ef ekki er laust sæti í flugvélinni fyrir barnabílstól er honum komið fyrir annars staðar á meðan flogið er. Þannig er foreldrum ekki gert kleift að hafa barnið í öruggum barnabílstól í flugferðinni. Almennt láta flugfélög þó foreldra hafa laus sæti ef unnt er. Ekki er nauðsynlegt að kaupa sér sæti fyrir börn yngri en 2ja ára.
Við hjá Árvekni teljum að taka þurfi fastari tökum á öryggismálum yngri barna í flugi og munum við halda áfram að fylgjast með þróun þessara mála.
Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga þegar ferðast er með börn í flugi.
Börn yngri en 2ja ára
-
Kynnið ykkur þær öryggisreglur sem í gildi eru hjá flugfélaginu. Þær geta verið mjög mismunandi á milli flugfélaga og því er mikilvægt að þekkja þær til þess að geta gert viðeigandi ráðstafanir.
-
Fáið upplýsingar hjá flugfreyjum/þjónum um hvernig best sé að festa barnabílstól í sæti, ef hægt er að fá sæti í flugvélinni.
-
Gott er að hafa með sér mat og drykk fyrir barnið. Hafið einnig allt við höndina sem nota þarf við bleyjuskipti. Skiptið ekki á barninu á meðan ókyrrð er í lofti.
-
Foreldrar sem þurfa að sitja undir börnum sínum ættu að taka með sér nesti sem auðvelt er að borða með barnið í fanginu. Drekkið ekki heita drykki með barnið í fanginu.
-
Hafið með hluti sem veita barninu öryggiskennd, t.d. snuð, uppáhaldsleikföng eða bækur.
-
Ef barnið hefur sögu um eyrnavandamál er æskilegt að hafa samband við lækni áður en haldið er af stað, varðandi ráðleggingar í flugi.
Eldri börn
-
Mikilvægt er að börnin sitji ávallt spennt í sætinu á meðan á fluginu stendur vegna hættu á ókyrrð.
-
Farið varlega með heita drykki en þeir geta hellst yfir barnið.
-
Brýnið fyrir barninu að sitja í sætinu á meðan flugferðin stendur yfir. Þau eiga alls ekki að vera á flakki um vélina. Dæmi eru um að börn hafi slasast þegar matarvagnar hafa rekist á þau eða vegna skyndilegrar ókyrrðar.
-
Börn geta orðið óróleg á löngum ferðum og því gott að hafa eitthvað meðferðis sem stytt getur barninu stundir. Oft finnst þeim skemmtilegast í leikjum sem foreldrið tekur þátt í líka. Undirbúið ferðina í sameiningu og finnið eitthvað skemmtilegt að gera. Gleymið ekki að tímaskyn barna og fullorðinna er ekki hið sama og hjá börnum er tíminn mun lengur að líða.
Góða ferð!
