Sími : 5 800 900
Frí með fjölskyldunni

Ætlar fjölskyldan í sumarbústað, útilegu eða á sólarströnd?

22.3.2004

Sumarið er skemmtilegur tími. Þá getur verið gaman að breyta um umhverfi og fara með fjölskyldunni í ferðalag.

Hvað sem verður fyrir valinu s.s. sumarbústaðarferð, tjaldferðalag eða sólarlandaferð, þarf að huga að ýmsu áður en lagt er af stað og þegar á áfangastað er komið. Nýjar aðstæður fela í sér nýjar hættur sem barnið þekkir ekki. Mikilvægt er að foreldrar kynni sér allar aðstæður áður en það sleppir af barninu hendinni. Þannig verður sumarfríið skemmtilegt og öruggt.

Sumarbústaðurinn

sumarhusSumarbústaðaferðir eru afar vinsælar hér á landi og sífellt færast í vöxt ferðir þangað einnig yfir vetrartímann. Þegar komið er í sumarbústað í fyrsta sinn þarf að kynna sér aðstæður inni sem úti. Síðan þarf að setja börnunum reglur í þessu nýja umhverfi.

Eldunaraðstaða í sumarbústöðum er oft frábrugðin því sem við erum vön heima. Oft eru þar einungis hellur, gas- eða rafmagnshellur.  Þessar hellur eru e.t.v. ekki festar við borðplötuna og því getur verið hætta á að barn togi þær yfir sig.  Ef bakaraofn er til staðar þarf að skoða hvort hann sé vel festur og að á honum sé öryggislæsing fyrir börn.

Um leið og slökkt er á gashellunum ætti að skrúfa fyrir gasið.  Það getur verið varasamt að hafa opið fyrir gasið þegar ekki er verið að nota það.  Farið varlega með eld nálægt gasi. 

Sumarbústaðir eru ekki allir búnir bæði heitu og köldu vatni.  Heitt vatn úr krönum getur verið hættulega heitt, sérstaklega á háhitasvæðum,  og því er best að öll blöndunartæki séu hitastillanleg.  Ef kalt vatn er einungis til staðar þarf að sjóða það fyrir uppþvottinn og fleira.  Hugið vel að hitastiginu áður en vatnið er notað. 

Það er notalegt að sitja við kertaljós á kvöldin.  Opinn eldur er alltaf hættulegur og sérstaka aðgát skal sýna ef börn eru nálægt.  Geymið ávallt eldfæri þar sem barnið nær ekki til.

Hreinsiefni, grillolía og önnur eiturefni ættu að vera í læstum hirslum.

Hlaðrúm eru algeng í sumarbústöðum til að plássið nýtist sem best.  Þau eru ekki ætluð sem leiktæki fyrir börn, en algengt er að börn falli niður þegar þau eru að leika sér í efra rúminu.  Framleiðendur taka oft fram í leiðbeiningum sínum að barn yngra en 6 ára eigi ekki að sofa í efra rúminu.  Þar þarf að vera hlíf til að barnið detti ekki fram úr og ef barnið er órólegt í svefni ætti ekki að leyfa því að sofa þar.  Bil á milli þrepanna í stiga upp í efra rúm má ekki vera á bilinu 9-23 cm, en slíkt bil getur valdið hengingu ef barn stingur höfðinu í það og skrikar fótur.

Ef í sumarbústaðnum er ferðarúm fyrir yngri börnin þarf það að vera þannig að engin hætta sé á að það falli saman.  Barnið má ekki komast upp úr því sjálft.  Lágmarkshæð frá botni og að brún rúmsins þarf að vera 60 cm.  Það þarf að vera stöðugt og þola ágang systkina sem oft reyna að klifra upp á hlið rúmsins.  Barnið á ekki að geta lyft botninum eða hlutum af því þegar það er í rúminu.  Verið viss um að allar hliðar séu heilar og festingar séu læstar. 

Svefnloft eru oft illa varin.  Þau eru ekki ætluð sem leiksvæði fyrir börnin.  Mörg börn hafa slasast illa við það að detta niður þegar þau hafa verið að leika sér.  Á svefnloftum ætti að vera handrið.  Það þarf að vera þannig gert að barnið freistist ekki til að klifra í því.  Rimlar ættu að liggja lóðréttir en ekki láréttir.  Bil milli lóðréttra rimla í handriði á ekki vera meira en 10 cm og bil frá gólfi að handriði á ekki vera meira en 10 cm.  Þannig skapast minni hætta á að barnið detti á milli eða festi höfuðið.  Á sumum svefnloftum er hleri fyrir stigaopi.  Hann þarf að vera hægt að festa þannig að börn geti ekki verið að leika sér með hann.  Hætta er á að hann skelli á höfuð barns eða fullorðins sem notar stigann.

Lesljós fyrir ofan rúm mega ekki vera of neðarlega.  Hætta er á að hitinn frá ljósinu kveiki í rúmfatnaði.

Utanhúss þarf einnig að huga að mörgu. Við flesta sumarbústaði er gas- eða kolagrill. Slík grill á aldrei að nota innanhús. Það myndar carbon monoxide sem getur verið banvænt. Undirlagið þarf að vera slétt svo engin hætta sé á að það velti um koll.  Á meðan grillað er og fyrst á eftir, er grillið mjög heitt og getur valdið slæmum brunasárum á litlu forvitnu barni.  Ef notað er kolagrill þarf að gæta að því að skilja grillolíu aldrei eftir þar sem barn getur náð í hana.  Gaskúta á ekki að hafa beint undir grillinu heldur aðeins til hliðar.  Ekki er æskilegt að geyma gaskút, fullan eða tóman, innanhúss.  Geymið ekki eldfæri þar sem barnið nær til.

Ef heitur pottur/setlaug er við sumarbústaðinn eða sundlaug í næsta umhverfi þarf að gæta að ýmsu. Gætið barnsins vel í námunda við vatn, því að börn geta drukknað á innan við 3 mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni.  Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega.  Það heyrist ekkert kall á hjálp eða busl í vatninu.  Helsti áhættuhópurinn eru börn yngri en 5 ára en 1-3 ára börn þurfa þó sérstaka aðgæslu.  Þau eru forvitin og sífellt á ferðinni.  Ef þau lenda í erfiðleikum hafa þau litla möguleika á að bjarga sér. Rétt viðbrögð skipta öllu máli ef barn fellur ofan í vatn og það er því mikilvægt að kunna endurlífgun.  Heilaskaði eða jafnvel dauði getur hlotist á innan við þrjár mínútur.   Aldrei skal undir nokkrum kringumstæðum skilja barn eftir eftirlitslaust í nágreni við vatn.  Ekki má heldur treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka.  Það er ekkert sem kemur í stað eftirlits fullorðinna með barninu. 

Mikilvægt er að foreldrar kynni sér vel nánasta umhverfi sumarbústaðsins og setji barninu reglur um hvar það megi leika sér.  Ef ár, lækir, vötn eða fjara eru nálægt skal sýna sérstaka varkárni.

Útilegan

tjaldvagnGas: Farið varlega við alla meðhöndlun gass, sérstaklega í tjöldum.  Mörg dæmi eru um það að tjöld hafi fuðrað upp á örskammri stundu vegna þess að gas hefur lekið út í andrúmsloftið og síðan verið kveikt á eldspýtu eða kveikjara. 

Stög: Tjöldum og tjaldvögnum fylgja gjarnan stög sem sjást illa og þarf því að gæta sín að detta ekki um þau þegar gengið er í nálægð við tjaldið. Lítil börn geta líka flækt sig í lausum böndum og snúrum.

Grill: Eftir að grillað hefur verið á kolagrilli á að láta það standa úti. Alls ekki á að taka það inn, því við bruna á kolunum myndast carbon monoxide sem getur verið banvænt. Gætið vel að ykkur og börnunum því grillin eru lengi að kólna og þarf því að passa sig að reka sig ekki í þau eða stíga á þau.

Beitt áhöld: Gætið vel að beittum hnífum og slíku því ekki er alltaf hægt um vik að geyma slík verkfæri. Gott er að geyma þau í vasa sem er hátt uppi eða jafnvel í læstum bílnum.

Bílaumferð: Oft er mikil bílaumferð um tjaldsvæði og þarf því að gæta sérstaklega vel að ungum börnum. Margir eru á stórum bílum og sjá því illa til mannaferða, sérstaklega þegar lítil börn eru á ferðinni.

Ströndin

Kynnið ykkur öryggisreglurnar á ströndinni sem þið farið á. Þær geta verið mismunandi á milli staða. 

Helst þarf að gæta barnanna vegna vatnsins, því ekki þarf mikið vatn til þess að valda drukknun hjá börnum. Stórar öldur geta auðveldlega svift börnum og fullorðnum um koll og jafnvel sogað með sér út í sjó. Farið ætið mjög varlega við strönd þar sem gengur á með brimi.

Skoðið sandinn vel, hvort í honum séu nokkuð hættulegt eins og t.d. glerbrot eða annað rusl. Fylgist vel með barninu, því ekkert kemur í stað eftirlits foreldranna.  

barn_a_strondBest er að stilla sólböðum mjög í hóf, en sólargeislarnir geta verið skaðlegir fyrir húðina. Til að koma í veg fyrir sólbruna er mjög mikilvægt að bæði börn og fullorðnir noti sólarvörn. Börn þurfa sérstaklega sterka sólarvörn þar sem húð þeirra er þynnri og viðkvæmari en húð fullorðinna.  Léttur klæðnaður og sólgleraugu koma líka að góðu gagni. Sólgleraugun þurfa að vera merkt þannig að þau hleypi ekki útfjólubláum geislum í gegnum sig. Látið barnið vera með þunna húfu eða hatt svo það brenni ekki í hársverðinum. Börn eru oft lengi úti að leika sér þegar sólin skín.  Það er ekki víst að þau eða foreldrarnir átti sig strax á því ef húð þeirra brennur þar sem vindurinn getur kælt yfirborð húðarinnar og þannig finna þau einungis fyrir léttum sviða.  Ef barnið er að leika sér í vatni, að sjálfsögðu undir eftirliti fullorðinna, getur verið að húðin sé ekki eins heit viðkomu og hún í rauninni er.  Endurkast sólargeisla frá vatni er mikið og getur það aukið líkurnar á að húðin brenni.  Sólbrennd húð getur verið mjög aum og sársaukafull.  Best er að kæla húðina með 18-20 °C heitu vatni í 1/2 til 1 klukkustund.  Rétt er að leita til læknis ef kornabarn eða yngra barn sólbrennur og einnig ef húðin verður mjög rauð og aum og blöðrur myndast.  Í miklum hita þarf að gæta mjög vel að því að börnin drekki mikinn vökva.  Mikill vökvaskortur getur verið hættulegur fyrir lítil börn og getur hann komið fram sem slappleiki og sljóleiki.  Athygli barnanna verður því minni og meiri hætta er á að þau slasi sig.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica