Sími : 5 800 900
Daggæsla í heimahúsum

Daggæsla í heimahúsum

22.3.2004

Félagsmálaráðuneytið gefur út reglur um dagggæslu í heimahúsum.

Til er reglugerð um daggæslu í heimahúsum gefin út af Félagsmálaráðuneytinu árið 1992. Í henni er að finna allt það sem snýr að bæjarfélaginu, dagforeldrinu og foreldum barnsins. Eftirfarandi upplýsingar eru unnar upp úr henni.

Hverjar eru skyldur félagsmálanefndar/félagsmálaráðs sveitarfélagsins?Pabbi lyftir strák upp

Dagforeldri verður að hafa starfsleyfi útgefið af félagsmálanefnd/félagsmálaráði sveitarfélagsins. Leyfið skal endurnýja á þriggja ára fresti eftir fyrsta samfellda starfsárið. Ákveðin skilyrði eru sett fyrir leyfisveitingunni. Þau eru m.a.:

  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.

  • Dagforeldri þarf að sækja námskeið á vegum sveitarfélagsins eða annarra aðila sem hefur verið falið að sjá um það.

  • Með læknisvottorði skal staðfesta að ekki hafi fundist merki um sjúkdóm eða annað, hjá dagforeldri eða öðru heimilisfólki, sem hindrað geti að umsækjandi geti tekið börn í gæslu.

  • Umsögn síðasta vinnuveitanda dagforeldris eða tveggja ábyrgra aðila um að umsækjandi teljist hæfur til að taka að sér daggæslu barna.

  • Sakavottorð þarf að vera hreint. Ef það er ekki hreint metur félagsmálanefnd/félagsmálaráð hvort athæfi, sem fram kemur á sakavottorðinu, hefur áhrif á hæfni umsækjandans til að gæta barns. Einnig er heimilt að krefja maka dagforeldris um sakavottorð.

  • Eldvarnareftirlit sveitarfélagsins þarf að skoða heimili umsækjanda, sérstaklega m.t.t. ástands rafmagns og útgönguleiða. Skylt er að hafa reykskynjara í íbúðinni.

  • Umsögn heilbrigðisnefndar þarf að liggja fyrir ef ástæða þykir til.

  • Leikrými þarf að vera að lágmarki 3,5 fm á hvert barn, auk þess sem aðstaða til útivistar skal vera fullnægjandi og hættulaus.

  • Skriflegt samþykki leigusala þarf að liggja fyrir ef um leiguhúsnæði er að ræða

Auk þessa ber dagforeldrum að virða lög um tóbaksvarnir og reykja ekki í návist barnanna á meðan á gæslu stendur.

Sveitarfélaginu ber skylda til að bjóða dagforeldrum upp á námskeið þar sem farið er yfir uppeldi og umönnun barna, þarfir þeirra og þroska og hvernig koma eigi til móts við þær þarfir. Félagsmálaráðuneytið hefur lagt til námsgögn og samræmda námsskrá fyrir landið allt.  Ennfremur þurfa dagforeldrar að fá fræðslu um eftirfarandi:

  • Slys í heimahúsum og fyrstu hjálp.

  • Barnasjúkdóma.

  • Hvernig bjarga megi börnum beri eldsvoða að höndum.

  • Réttindi og skyldur dagforeldra og samvinnu við foreldra.

Umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra er á ábyrgð sveitarfélagsins.  Félagsmálanefnd/félagsmálaráð sveitarfélagsins getur ráðið sérstakan umsjónaraðila, en að öðrum kosti er eftirlitið í höndum nefndarinnar eða annarar þeirrar nefndar sem fer með málefni dagforeldra.

Hlutverk umsjónaraðilans er margþætt.  Hann sér m.a. um undirbúning leyfisveitinga, eftirlit með starfsemi dagforeldra og veitir dagforeldri fræðslu, ráðgjöf og stuðning.  Umsjónin er virk fyrsta árið en síðan dregið smátt og smátt úr henni eftir því sem aðstæður leyfa.  Umsjónaraðili skal sjá um að halda reglulega fræðslufundi með dagforeldrum og/eða stuðla að samstarfi þeirra á milli.  Einnig skal umsjónaraðili halda fundi með foreldrum barnanna og dagforeldri eftir því sem hann telur þörf á.  Telji umsjónaraðili að dagforeldri sé ekki starfi sínu vaxið eða að skilyrði leyfisveitinga séu ekki lengur uppfyllt, skal hann gera dagforeldri það ljóst og leggja síðan málið tafarlaust fyrir félagsmálanefnd/félagsmálaráð.

Hverjar eru skyldur dagforeldranna?Kona faðmar litla stelpu

Dagforeldri á að hlúa að andlegri og líkamlegri velferð barns sem hjá því dvelur.  Þetta á við um tilfinningalíf, félagslega líðan og fæðuval þess.  Tekið er fram í reglugerðinni að óheimilt sé að beita barni andlegri eða líkamlegri hirtingu.  Dagforeldri er skylt að kaupa slysatryggingu vegna barnanna.

Allar upplýsingar sem dagforeldri fær um hag barns og einkahagi foreldranna skal fara með sem trúnaðarmál.  Þó ber dagforeldri skylda til að tilkynna til barnaverndarnefndar ef það verður vart við að barn sé vanrækt eða uppeldi þess, atlæti eða aðbúnaði þess er ábótavant.

Að öðru leyti setja sveitarfélög leiðbeiningar um skyldur dagforeldra gagnvart börnunum og foreldrum þeirra.

Hverjar eru skyldur foreldra?

Ákvörðun um gæslu barns hjá dagforeldri er alltaf á ábyrgð foreldranna.  Foreldrar ættu að kynna sér vel lög og reglur sem dagforeldrar starfa eftir, m.a. hversu mörg börn mega vera í gæslu í einu og á hvaða aldri þau eru. 

Aðlögun barns hjá dagforeldrinu þarf að miða við þarfir barnsins.  Það getur að sjálfsögðu verið misjafnt á milli barna hversu langa aðlögun þau þurfa.  Best er að foreldri dvelji með barninu í upphafi gæslunnar, eftir nánara samkomulagi við dagforeldri.

Foreldrum ber að tilkynna dagforeldri ef barnið er haldið ákveðnum sjúkdómi og öðru því sem máli skiptir í umönnun þess.  Einnig ættu þeir að láta dagforeldri vita ef breytingar verða á högum barnsins.  Þeir ættu að ræða reglulega við dagforeldri um líðan barnsins, þarfir þess og þroska. 

Foreldrum ber að virða umsaminn gæslutíma og koma með barn og sækja innan þess tíma.  Ef breyting verður á því hver sækir barnið skal láta dagforeldri vita. 

Ef foreldri telur daggæslu ábótavant skal tilkynna það til umsjónaraðila.  Einnig er æskilegt að láta umsjónaraðila vita hvernig gæslan hentar barninu.  Foreldri á að geta leitað til umsjónaraðila í fullum trúnaði með mál sem snúa að daggæslunni. 

Við hjá Árvekni viljum benda foreldrum á að kynna sér hvaða reglur sveitarfélagið hefur sett varðandi daggæslu í heimahúsum, en einhver sveitarfélög hafa farið yfir sínar reglur, t.d. Kópavogur, og gert þær ítarlegri.

Rauði krossinn, skyndihjálpEf barn lendir í slysi er nauðsynlegt að kunna skyndihjálp. Á heimasíðu Rauða kross Íslands má finna góðar og almennar upplýsingar um skyndihjálp. Kynntu þér þær með því að smella á myndina hér til hliðar.

 

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.

Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica