Sími : 5 800 900
Trampólín

Trampólín

22.3.2004

Trampólín hafa verið vinsæl leiktæki, helst á leikskólum og í íþróttahúsum.

Trampólín geta gagnast vel í þjálfun á jafnvægi og samhæfingu hreyfinga hjá börnum. Þrátt fyrir það eru börn í hættu á að meiða sig á þeim. Þau geta hlotið alvarlega áverka eins og beinbrot, áverka á mænu eða innvortismeiðsl. Ekki eru til haldbærar heildartölur yfir slys á börnum í slíkum leiktækjum hér á landi en öðru hverju berast upplýsingar um alvarleg slys á þeim.  

Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að trampólín séu sett upp daglangt vegna ýmiskonar uppákoma í bæjum landsins.  Einnig hefur það aukist að slík leiktæki séu sett upp í einkagörðum.    

Hvað þarf að hafa í huga þegar trampólín er sett upp í garðinum heima?

  • Foreldrar ættu alltaf að hafa eftirlit með barninu á meðan það hoppar á leiktækinu.  Trampólín sem settStelpa stekkur á trampólíni er upp í garðinum er ekki æskilegt fyrir börn yngri en 6 ára.  Það er betra fyrir barnið að vera berfætt og í þægilegum fötum, sem auðvelda barninu að nota hendur og fætur.  Kennið barninu að hoppa örugglega.  Leyfið aðeins einu barni að hoppa í einu og segið því að hoppa á miðju dúksins. 
  • Meðfram trampólíninu þarf alltaf að vera a.m.k. 2,5 m autt svæði.  Velja þarf stað sem er fjarri girðingum, gróðri og öðrum leiktækjum.  Undirlagið þarf að vera stöðugt og ætti ekki að vera hart eins og malbik, heldur ætti frekar að setja það á gras.  Gras dregur úr hættunni á að barnið meiði sig ef það dettur af leiktækinu.  Gætið að því að ekkert sé undir trampólíninu sem gæti skaðað barnið ef það myndi hoppa niður í jörðu.  Vírar sem notaðir eru til að festa leiktækið mega ekki vera fyrir ofan dúkinn svo ekki sé hætta á að barnið hoppi upp í þá. 
  • Rammi og undirstöður trampólínsins þurfa að vera heilar.  Ef sprungur eru sjáanlegar ætti ekki að nota það fyrr en búið er að laga þær.  Bólstrun yfir gormunum sem tengja dúkinn við rammann þarf að vera breið og heil.  Hún ætti að vera í öðrum lit en dúkurinn til að barnið átti sig betur á hversu nálægt brúninni það er þegar það hoppar.  Ef bólstrunin er farin að slitna eða losna frá verður að gera við hana áður en trampólínið er notað aftur.  Alvarleg slys hafa orðið á börnum þegar þau hafa dottið með fætur eða handleggi á milli gorma sem hafa verið illa varðir.
  • Gormarnir sem festa saman dúkinn og rammann þurfa að vera jafnstífir og gefa jafnt eftir þannig að ekki sé hætta á að barnið misstígi sig á meðan það hoppar.
  • Dúkurinn þarf að vera heill og saumar þurfa að vera sterkir.  Ef saumspretta er sjáanleg í dúknum er líklegra að hann rifni og ætti ekki að nota leiktækið fyrr en búið er að laga hana.  Hæð leiktækisins verður að vera þannig að dúkurinn fari ekki niður í jörðina þegar barnið hoppar á honum.  Á honum má heldur ekki vera slaki sem getur valdið því sama.  Ef barnið fer niður í jörðina á meðan það hoppar getur það slasast alvarlega.
  • Stöðugleiki trampólínsins miðast við þyngd þeirra sem nota leiktækið.  Í leiðbeiningum ætti að vera gefin upp hver hámarksþyngd notandans er.  Trampólín sem eru undir 60 cm á hæð eru t.d. ætluð börnum undir 50 kg en þau sem eru hærri en 60 cm eru ætluð stærri börnum og fullorðnum upp að 120 kg.  Þetta þýðir að ef barn sem er t.d. 48 kg hoppar nálægt brúninni á leiktæki undir 60 cm á það ekki að velta um koll.  Ef undirlagið er orðið slitið og ójafnt eftir mikla notkun aukast líkurnar á að leiktækið velti um koll. 
  • Farið reglulega yfir trampólínið eftir að það hefur verið sett upp.  Skoðið hvort sjáanleg eru slit á samskeytum eða merki um að dúkurinn sé slitinn á jöðrunum, fjarlægið hlífðarsvamp ef hann er rifinn og gætið að því að allir gormar séu festir á viðeigandi hátt.
  • Hægt er að kaupa öryggisnet til að setja utan um trampólín og er mælt með því að það sé til staðar. Alltof margir setja fyrir sig kostnaðinn við það að kaupa slíkt net en það kostar minna en trampólínið sjálft, en ef slys verður er kostnaður við slysið fljótur að fara upp í upphæð netsins. Því má þó ekki gleyma að þrátt fyrir öryggisnet eiga öll ofangreind öryggisatriði við og netin bjarga ekki alltaf. Hafið ávallt vakandi auga með börnum sem eru að leik í trampólíni.

Sjá einnig:

Trampólín - röng notkun algengasta ástæða slysa  -  grein um trampólín

Leiðbeiningar um skyndihjálp á vef Rauða Kross Íslands.


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica