Sund
Yfirlit
Það kemur ef til vill mörgum á óvart að börn geta drukknað á innan við 3 mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni. Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega. Það heyrist ekkert kall á hjálp eða busl í vatninu. Helsti áhættuhópurinn eru börn yngri en 5 ára en 1-3 ára börn þurfa þó sérstaka aðgæslu. Þau eru forvitin og sífellt á ferðinni. Ef þau lenda í erfiðleikum hafa þau litla möguleika á að bjarga sér. Rétt viðbrögð skipta öllu máli ef barn fellur ofan í vatn og því mikilvægt að kunna skyndihjálp. Heilaskaði eða jafnvel dauði getur hlotist á innan við þrjár mínútur. Aldrei skal undir nokkrum kringumstæðum skilja barn eftir eftirlitslaust í nálægð við vatn. Ekki má heldur treysta eingöngu á sundkennslubúnað, s.s. armakúta eða sundjakka. Það er ekkert sem kemur í stað eftirlits fullorðinna með barninu.
Sundkennsla
Síðustu ár hafa svokölluð ungbarnasundnámskeið notið mikilla vinsælda hjá foreldrum ungra barna. Ungbarnasund gerir barninu mjög gott og styrkir m.a. hreyfiþroska, líkamsvitund og sjálfsímynd. Með því að fara með barnið í sund fyrir 6 mánaða aldur er hægt að viðhalda ósjálfráðu köfnunarviðbragði sem barnið fæðist með. Köfnunarviðbragðið veldur því að öndunarvegurinn lokast þegar barnið andar í kafi og vatnið snertir kokið. Ef þetta ósjálfráða viðbragð er þjálfað reglulega getur það orðið að sjálfráðu viðbragði. Þannig getur barnið lært að bregðast við því að fara á kaf í vatni. Það getur komið sér vel ef barnið fellur óvænt í vatn, en er alls ekki örugg björgun fyrir það. Ef barnið fellur í kalt vatn getur kuldinn valdið barninu meiri vandræðum en vatnið sjálft.
Sundkennsla skólabarna hefur verið lögbundin hér á landi í mörg ár. Sundkunnátta meðal íslenskra barna er því almennari en gerist meðal barna víða annars staðar í heiminum. Þrátt fyrir það hafa drukknunarslys á börnum 0-14 ára verið algeng hérlendis. Fyrir nokkrum árum gerðu Pétur Lúðvígsson barnalæknir, Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og Guðrún B. Guðmundsdóttir læknir rannsókn á drukknunarslysum barna á aldrinum 0-14 ára á tímabilinu 1984-1993. Þessi rannsókn sýndi að drukknunarslysin voru 48 talsins. Af þessum 48 börnum voru 13 börn sem dóu, þrjú þeirra hlutu varanlegan heilaskaða og 32 börn náðu fullum bata. Hlutfall þeirra sem drukknuðu eða hlutu varanlega heilaskaða var því 30%.
Sundlaugar
Sundiðkun er lífstíll margra, enda er sund hin besta heilsubót. Hér á Íslandi eru opinberir sundstaðir mjög margir miðað við höfðatölu og flestir eru upphitaðir sem gerir landsmönnum
kleift að stunda sund allt árið um kring.
Í janúar 1993 var skipuð nefnd af menntamálaráðherra til að gera tillögur um öryggiskröfur og samræmdar starfsreglur á sundstöðum og við kennslulaugar. Reglur um öryggi á sundstöðum og við kennslulaugar voru gefnar út í júní 1994 af menntamálaráðuneyti og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Þar koma m.a. fram reglur um sundstaðina, umgengnisreglur sundgesta, laugargæslu, sundkennslu og eftirlit. Þessar reglur hafa verið endurskoðaðar og voru gefnar út að nýju í janúar 1999. Samhliða þessari vinnu var gefin út öryggismappa „Upplýsingar um öryggismál sundstaða“ sem starfsmenn allra sundstaða á Íslandi eiga að hafa aðgang að.
Hér er bæklingur sem menntamálaráðuneytið gaf út í ágúst 1999 og er birtur hér með þeirra leyfi. Í bæklingnum er stuðst við ofangreindar reglur og er megin áherslan lögð á þau öryggisatriði sem sundlaugargestum ber að hafa í huga þegar farið er í sund.
Börnum yngri en 8 ára er óheimill aðgangur að sundstað nema í fylgd með syndum einstaklingi 14 ára eða eldri. Stór hluti barna sem náð hafa þessum aldri er þó enn ósyndur og er því varhugavert og á ábyrgð foreldra að senda þau ein í sund. Ábyrgðarmaður skal sjá til þess að ósyndur einstaklingur noti armakúta eða sundjakka af viðurkenndri gerð sem sundstaðir eiga að hafa til útláns. Rétt er að benda á að hringlaga plastkútar eru ekki taldir fullkomlega öruggir.
Í október 2002 sendu Árvekni og Löggildingarstofa frá sér samantekt um vatnsleikföng, búnað til að kenna sund og búnað til annarra nota í vatni. Þessi samantekt var gerð vegna tilkynninga til Árvekni og Löggildingarstofu um að börn og fullorðnir hefðu slasast vegna rangrar notkunar á þessum búnaði.
Setlaugar
Mjög víða má sjá í dag setlaugar í görðum eða á sólpöllum við heimili og sumarbústaði. Þegar setlaug er sett á sólpallinn eða í garðinn við heimilið eða sumarbústaðinn skiptir frágangur hennar miklu máli. Það er á ábyrgð eigandans að sjá um að fullnægjandi öryggisráðstafanir séu gerðar til að fyrirbyggja slys á börnum. Rétt er að fá fagmann til að sjá um uppsetningu setlaugarinnar og viðhald hennar.
Niðurfallsristin í setlauginni verður að vera þannig að enginn möguleiki sé á því að menn geti sogast að henni. Hún þarf einnig að vera þannig að ekki sé hætta á að hár festist í henni og valdi því að manneskjan dragist undir yfirborð vatnsins.
Setlaugin á að vera búin læsanlegu loki eða öðrum útbúnaði, sem barn getur ekki opnað, til að hylja hana þegar hún er ekki í notkun. Ef hún er ekki í notkun í einhvern tíma er rétt að tæma hana og tryggja að ekki safnist regnvatn í hana, með áðurnefndu loki.
Öruggara er að hafa setlaugina upphækkaða og byggja utan um hana frekar en að grafa hana niður. Utan um hana þarf að vera girðing sem er minnst 90 cm á hæð og þannig gerð að ómögulegt sé fyrir barn að klifra yfir hana. Milli lóðréttra rimla má ekki vera meira bil en 8 cm og milli láréttra rimla þurfa að vera minnst 80 cm. Á girðingunni þarf að vera hlið sem er sjálflokandi. Það á að opnast út, þannig að það opnist burt frá setlauginni. Það þarf að vera með læsingu sem barn getur alls ekki opnað.
Hitastig vatns í setlaug má ekki fara yfir 44°C og ætti hitastillingin að vera sjálfvirk. Hámarksstilling innrennslisvatns ætti einnig að vera sjálfvirk og skal hitastig þess ekki vera hærra en 55°C.
Nánari upplýsingar er að finna á RB-blaði Rb(70)x002: Frágangur og öryggi við laugar og setlaugar m.t.t. barna og Rb(70)x003: Setlaugar Tæknibúnaður-öryggi.
Á sólríkum dögum eru leiklaugar mikið notaðar fyrir börn í görðum. Þetta eru laugar í ýmsum stærðum og gerðum sem hægt er tæma og fjarlægja eftir notkun. Þegar leiklaugar eru notaðar er mikilvægt að hafa eftirfarandi í huga:
- Látið börn aldrei leika sér án eftirlits í slíkum laugum, þrátt fyrir að ekki sé mikið vatn í henni
- Tæmið og gangið frá lauginni eftir notkun. Regnvatn getur safnast í hana og skapað hættu á að lítið barn drukkni.
- Leyfið barninu ekki að fylla leiklaugina án eftirlits fullorðinna. Börn hafa hlotið alvarleg brunasár þegar þau hafa verið að leika sér með vatnsslöngur.
