Leikur með sippu- og snúsnúbönd
Leikur með sippu- og snúsnúbandi getur í senn verið skemmtilegur leikur og holl hreyfing fyrir barnið. Röng notkun leikfangsins getur hins vegar skapað hættu og er því mikilvægt að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að nota það einungis á þann hátt sem til er ætlast.
Sippu- og snúsnúbönd eru alls ekki ætluð smábörnum og í raun hafa börn yngri en 5 ára ekkert að gera með slíkt leikfang. Til þess að ná að sippa þarf barnið að hafa náð ákveðnum samhæfingarþroska, sem ekki næst fyrr en um 5 ára aldur.
Börn hafa flest gaman af því að leika sér með bönd, snúrur, spotta og kaðla. Slíkur leikur getur verið varasamur ef annar endinn er bundinn fastur við t.d. leiktæki.
