Sími : 5 800 900
Hjálmar og annar öryggisbúnaður

Hjálmar og annar öryggisbúnaður

Á undanförnum árum hefur úrval hjálma hér á landi aukist verulega. Samhliða því hafa vaknað spurningar hjá foreldrum og öðrum um hvers konar hjálmar henti hvaða íþrótta- og tómstundagrein.

Reiðhjólahjálmar

Flestum börnum finnst eitt það skemmtilegasta sem þau gera að vera úti að hjóla. Hjólið er tekið fram um leið og vorar og hjólað af krafti langt fram á haust. En því miður fylgir þessum ánægjustundum barnanna oft slys og helsta ástæðan er að þau detta af hjólinu. Áverkarnir eru margvíslegir en mjög oft fær barnið högg á höfuðið við fallið. Þar er það reiðhjólahjálmurinn sem getur komið í veg fyrir að slysið verði alvarlegt – og til að vernda unga fólkið okkar voru sett lög sem skylda hjólreiðafólkið til að vera með hjálm. Hægt er að nefna ótal dæmi sem sanna að barn hafi sloppið með skrámur, eftir að ekið var á það á hjólinu, í stað þess að slasast alvarlega af því að það var með hjálm. Hjálmur bjargar!Mikilvægt er að nota hjálminn rétt

Til að hjálmurinn hlífi barninu sem best þarf hann að vera rétt stilltur.

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig stilla á hjálminn rétt:

Hjálmur situr rétt-smella til að stækka

Hjálmur á hlið-smella á mynd til að stækka

Hjálmur prófaður-smellið á myndina til að stækka

Mynd 1

Þessi mynd sýnir hvernig hjálmurinn ver enni barnsins vel.
Mikilvægt er að hjálmurinn sé settur beint niður á höfuð barnsins.

Mynd 2

Á þessari mynd sést hvernig aftara bandið mætir fremra bandinu.

Takið eftir staðsetningu spennunnar, sem tengir böndin saman, en hún þarf að vera fyrir neðan kjálkaliðinn.
Bandið sem fer undir hökuna á að falla það þétt að henni að einungis 1-2 fingur komist þar á milli.
Aftan á hjálminum er skrúfa en hún er til að herða bandið, sem er inni í hjálminum, að höfðinu þannig að hjálmurinn sé vel skorðaður.

Mynd 3

Að stillingu lokinni er athugað hvort hjálmurinn sitji sem best á höfði barnsins með því að taka um hann, eins og sýnt er á myndinni.
Prófað er að hreyfa hjálminn fram og aftur á höfði barnsins. Hann situr rétt þegar hann færist einungs um nokkra millimetra.

Ýmsar tegundir hjálma

Ekki er hægt að nota sama hjálminn við allt og er ástæðan sú að áverkar sem hljótast við hinar ýmsu greinar eru mismunandi og eru hjálmarnir því hannaðir með það fyrir augum. Allt er þetta gert til þess að verja höfuðið sem best. Hér fyrir neðan er að finna upplýsingar um hinar ýmsu gerðir hjálma sem til eru hér á landi og tafla sem sýnir hvenær á að nota hvaða hjálm.

Rauður hjólahjálmur

Hjólreiðahjálmurinn er ætlaður til notkunar á reiðhjóli en hann hentar einnig vel til notkunar á línuskautum, hlaupahjóli, hjólabretti, sleða og skautum, þó ekki í ísknattleik. Allir ættu að nota hjólreiðahjálm þegar þeir eru á hjóli, hvar og hvenær sem er. Í umferðarlögum segir að börn yngri en 15 ára sé skylt að nota hjólreiðahjálm við hjólreiðar.  Verið viss um að hjálmurinn sé CE merkið, lítið merktur.

 

   
Hjólabrettahjálmur

Hjólabrettahjálmurinn er sérstaklega útbúin fyrir þá sem nota hjólabretti.  Hann er dýpri en reiðhjólahjálmurinn, þolir meira hnjask en hefur sömu eiginleika.  Hann er hannaður með það í huga að verið sé að stökkva og gera ýmsar kúnstir á brettinu og að sá sem notar hann detti oftar en sá sem er á hjóli.  Hann má líka nota á línuskautum, hlaupahjóli, skautum og sleða en ekki er æskilegt að nota hann á reiðhjóli.  Verið viss um að hjálmurinn sé CE merkið, lítið merktur.

 

   
Skíðahjálmur Skíðahjálmurinn er sérstaklega djúpur og hylur allt höfuðið nema andlitið.  Hann er hannaður með það fyrir augum að taka við falli á mikilli ferð og höggum af hörðum árekstrum.  Hann á einungis að nota við skíða- og snjóbrettaiðkun.  Verið viss um að hjálmurinn sé CE merkið, lítið merktur.

 

   
Ísknattleikshjálmur  

Ísknattleikshjálmurinn er djúpur og hylur stóran hluta höfuðsins.  Hann er ætlaður til þess að verja höfuðið gegn mjög þungum höggum og er því sérstaklega sterkbyggður.  Hann er gerður  fyrir skautaíþróttir, en einnig má nota hann á línuskautum, hlaupahjóli, hjólabrettum og sleða  Verið viss um að hjálmurinn sé CE merkið, lítið merktur.

 

   
Hestahjálmur  

Reiðhjálmurinn er sterkbyggður, nær langt aftur á hnakka og hlífir vel til hliðanna.  Hann er hannaður með það fyrir augum að verja höfuðið ef fall er hátt í ósléttu undirlagi.  Hann er eingöngu ætlaður fólki á hestbaki.  Verið viss um að hjálmurinn sé CE merkið, lítið merktur.

 

 

  Hjólreiðahjálmur Hjólabrettahjálmur Skíðahjálmur Ísknattleikshjálmur Hestahjálmur
Hjól X        
Línuskautar X X   X  
Hlaupahjól X X   X  
Hjólabretti X X   X  
Sleðar X X   X  
Skíði     X    
Snjóbretti     X    
Skautar X X   X  
Ísknattleikur       X  
Hestar         X

Annar öryggisbúnaður

Allar öryggishlífar sem keyptar eru til að nota á reiðhjóli, línuskautum, hlaupahjóli eða hjólabretti eiga að vera merktar.

Ef kaupendur telja að hjálmur og/eða annar öryggisbúnaður uppfylli ekki lágmarks kröfur eru þeir hvattir til að hafa samband við markaðsgæsludeild Löggildingarstofu í síma 510 1100 eða á ls@ls.is.


Erlendar kannanir og samanburður á hjálmum:


 


Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica