Allt hefur áhrif, einkum við sjálf
Sameiginlegt þróunarverkefni Lýðheilsustöðvar og 25 sveitarfélaga á Íslandi
Lýðheilsustöð ákvað í upphafi árs 2004 að fara af stað með þróunarverkefni, í samstarfi við nokkur sveitarfélög á Íslandi, um bætt mataræði og aukna hreyfingu barna og ungmenna. Þar yrði lögð áhersla á að sveitarfélögin, sem taka þátt, myndu vinna að stefnu og aðgerðaáætlun varðandi þessa tvo málaflokka.
Sveitarfélögin sem taka þátt í verkefninu eru:
|
Reykjavíkurborg Kópavogsbær Hafnarfjarðarkaupstaður Garðabær Mosfellsbær Borgarbyggð Snæfellsbær Vesturbyggð Ísafjarðarbær Bolungarvíkurkaupstaður Skagafjörður Akureyrarkaupstaður |
Eyjafjarðarsveit Grýtubakkahreppur Norðurþing Vopnafjarðarhreppur Fljótsdalshérað Fjarðabyggð Hornafjörður Skaftárhreppur Vestmannaeyjabær Mýrdalshreppur Árborg Hveragerðisbær |
Smellið á kortið til að stækka |
Tilgangurinn með verkefninu er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna, ungs fólks og fjölskyldna þeirra með áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði. Leitast verður við að auka þekkingu einstaklinga á þeim þáttum sem þarna hafa áhrif. Einnig að stuðla að bættri aðstöðu og umhverfi með tilliti til hreyfingar og mataræðis í hverju sveitarfélagi. Þannig verður með verkefninu leitast við að tryggja heilsueflandi umhverfi. Heilsueflandi umhverfi er skilgreint í þessu samhengi sem ferli sem býr börn og unglinga undir að hafa betri stjórn og getu til að bæta eigið heilbrigði.
Markmið verkefnisins Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! eru byggð á grundvelli Heilbrigðisáætlunar til 2010 en þar segir:
- að a.m.k. 50% borgara, bæjarfélaga og annarra sveitarfélaga hafi sett sér markmið á sviði heilsueflingar.
- öll börn á skólaskyldualdri fái a.m.k. sem samsvarar einni kennslustund á viku í heilbrigðisfræðslu.
- a.m.k 95% skólabarna fái skipulega fræðslu og þjálfun í heilsueflingu.
- allur þorri fólks sé líkamlega virkur í frítíma sínum, iðki viðeigandi líkamsþjálfun sem samsvarar a.m.k. 30 mínútna langri göngu fimm sinnum í viku.
- lögð er sérsök áhersla á að bæta geðheilbrigði barna.

