Sími : 5 800 900
Áfengi og vímuefni

Veljirðu að drekka áfengi hafðu þá þetta í huga:

26.7.2004

Áfengisnotkun er hluti þess lífsstíls sem margir landsmenn hafa tileinkað sér. Eins og nær allir vita er þar ýmislegt sem ber að varast. Hér eru nokkrar ábendingar:

1. Drekktu ekki of mikið í hvert sinn og ekki á tóman maga.

2.     Gættu þess að bjóða alltaf óáfenga drykki líka ef þú býður upp á áfengi.

3.     Vatn er best við þorsta – ekki áfengi.

4.     Farðu vel með lifrina - slepptu áfengi a.m.k. á virkum dögum

5.     Settu þér tímamörk, t.d. ekkert áfengi eftir miðnætti. Ávinningurinn skilar sér strax daginn eftir.

6.     Ef þú býður til veislu þá skaltu takmarka áfengið -  frekar minna magn  en meiri gæði.

7.     Vertu ófeimin/n við að segja sem er: „Nei takk, ég hef fengið nóg!“

8.     Taktu „áfengisfrí“ – Prófaðu að sleppa áfengi alfarið um einhvern tíma.

9.     Drekktu áfengi að hámarki eitt kvöld um helgar.

10.   Sýndu þá kurteisi að þrýsta ekki á gesti þína að neyta áfengis.

11.   Ekki nota áfengi við einmanakennd eða kvíða.

 

Góð ráð

1.    Foreldrar setjið mörk – Með því að „kenna unglingum að drekka“ eru foreldrar að gefa samþykki sitt fyrir  því að börn þeirra drekki. Áfengi og unglingar eiga ekki samleið.

2.     Við fyrsta glas skaltu huga að því hvernig þú kemst heim. Áfengi og akstur eiga aldrei samleið.

3.     Það þarf oft kjark og áræði að segja nei. Þegar áfengi og önnur vímuefni eru annars vegar margborgar það sig, því það sparar ómæld leiðindi.

4.     Þekktu þín mörk og hvaða áhrif áfengi hefur á þig.

5.     Áfengi og vímuefni leysa engan vanda heldur geta þvert á móti aukið hann.

 

 

 

 



Senda grein






Þetta vefsvæði byggir á Eplica