Sími : 5 800 900
. . um tóbaksvarnir

Misskilningur um munntóbak

9.11.2004

Sumir halda að notkun munntóbaks hafi ekki skaðleg áhrif á heilsuna. Hér eru nokkur þeirra atriða sem haldið er fram og svo staðreyndir málsins - en fyrst þetta: Allur innflutningur, sala og dreifing á fínkorna munntóbaki er ólöglegur. Innflutningur til eigin nota er ekki undanskilinn þessari reglu.

Munntóbak er skaðlaust!

Munntóbak er langt frá því að vera skaðlaust. Í því eru a.m.k. 28 þekktir krabbameinsvaldar og sumir í mun meira magni í munntóbaki en reyktóbaki. Sá sem notar 10 gr. af munntóbaki á dag fær t.d. allt að þrefalt meira af ákveðnum krabbameinsvaldandi efnum en sá sem reykir 1 pakka af sígarettum á dag. Munntóbaksnotkun eykur hættu á krabbameini í munni fimmtíufalt og notendur eru í aukinni hættu að fá krabbamein meltingavegi, að auki er ekki hægt að útiloka önnur krabbamein, svo sem í þvagblöðru.

Hjartavöðvinn er mikilvægasti vöðvi líkamans og þarf á reglulegu flæði blóðs að halda til að geta starfað eðlilega. Við notkun munntóbaks dragast æðarnar saman og eru æðarnar í kringum hjartað þar engin undantekning. Þrenging æða veldur því að blóðþrýstingur eykst og hár blóðþrýstingur er einn af helstu áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma – líka hjá ungu fólki.

Smellið á myndina til að skoða bæklinginn

Munntóbak er ekki eins ávanabindandi og sígarettur!

Þrjár ástæður má nefna sem sýna að þessi misskilningur fær ekki staðist:

  1. Níkótín er það sem veldur fíkn í tóbak og það er í allt að ferfalt meira magni í munntóbaki en sígarettum.
  2. Saltkristöllum er oft bætt í munntóbakið sem er ætlað að brenna göt á slímhúðina og tryggja þannig að níkótínið fari hraðar og betur inn í æðarnar í munni og nefi.
  3. Yfirborð fínkorna munntóbaks (snus) er mjög mikið og berst því nikótínið hratt út í blóðið.
    Allt ofantalið veldur því að fíknin í munntóbak er oft meiri en í sígarettur og mun erfiðara er að hætta.

Munntóbak hefur jákvæð áhrif á árangur í íþróttum og hefur ekki áhrif á útlitið!

Þetta er útbreiddur misskilningur, jákvæð áhrif eru engin. Við munntóbaksnotkun þrengjast æðar og blóðflæði minnkar því til vöðvana. Vöðvarnir þurfa blóð til að vaxa og styrkjast en minnkað blóðflæði til þeirra hefur þau áhrif að árangur þjálfunar verður mun lakari, meiri líkur eru á meiðslum og erfiðara er að ná sér eftir þau. Fólki getur fundist munntóbak gera það hressara en ástæðan er tímabundin örvandi áhrif níkótíns. Síðan veldur munntóbak því að tennur gulna og skemmast, tannhold bólgnar og gómar rýrna. Við þetta verður tannlos og mikil andfýla. Þeir sem nota munntóbak sjá breytingu á slímhúð í munni mjög fljótt en lýti af völdum krabbameins í munni eru einnig oftast skelfileg.

Jakobína H. Árnadóttir, MSc í Heilsusálfræði
Verkefnisstjóri Lýðheilsustöð
      

     

 Viljirðu hætta tóbaksnotkun þá geturðu m.a. fengið
einstaklingsmiðaða aðstoð í
Ráðgjöf í reykbindindi 800 6030 alla virka daga milli kl. 17 og 19.




Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica