Taktu upp þráðinn!
Munnholið er bústaður baktería og ákveðnar tegundir þeirra líma sig við yfirborðið tannanna og mynda þar skán. Skánina verður að hreinsa burt með reglulegu millibili og það er gert með aðstoð tannkrems, tannbursta og tannþráðar. Tannburstinn nær ekki að hreinsa nema þrjár af fimm hliðum tannanna og því þarf að nota tannþráð á hinar tvær. Tannþráðinn þarf að nota jafnt á barna- og fullorðinstennur.
Tönnin hefur fimm hliðar. Með tannburstanum er hægt að hreinsa þrjár þeirra. Hinar tvær þarf að hreinsa daglega með tannþræði.
Hvernig nota á tannþráð
Við hreinsun milli tanna með tannþræði er mælt með því að taka hæfilegan bút af tannþræði og vefja um vinstri og hægri vísifingur. Til að auðveldara sé að stjórna þræðinum er nauðsynlegt að hafa hann stuttan á milli fingranna. Þræðinum er stýrt varlega milli tannanna, alveg niður í glufuna milli tannar og tannholds. Það sama gildir um tannþráð í haldara. Strekktur þráðurinn er færður upp og niður eftir tönnunum, fyrst öðru megin tannbilsins og síðan hinu megin. Svona eru öll bilin hreinsuð, bæði í neðri og efri gómi. Æfingin skapar meistarann. Góð venja er að byrja alltaf á sama stað og finna bestu leiðina svo ekkert tannbil gleymist. Ef blæðir frá tannholdi eru það fyrstu merki um tannholdsbólgu og því er nauðsynlegt að hreinsa enn betur.
Saga tannþráðarins
Í tæplega 200 ár hefur tannþráður verið notaður við hreinsun milli tannanna. Fyrst var þráðurinn úr silki en nú eru þunnir nælon- eða teflonþræðir allsráðandi. Þráðurinn sjálfur er af ýmsum gerðum og þykktin mismunandi. Vaxborinn tannþráður smýgur vel á milli tanna þar sem tannbil eru þröng. Þráður sem inniheldur flúor styrkir glerung tanna. Bragðefni í tannþræði gefa ferskara bragð í munninn. Nokkrar gerðir handfanga, bæði einnota og fjölnota, sem tannþráðurinn er festur á, geta auðveldað hreinsun milli tannanna. Hver og einn finnur með notkun þá gerð sem honum hentar.
Í tannverndarviku, sem er fyrsta vikan í febrúar ár hvert, eru landsmenn sérstaklega minntir á mikilvægi góðrar tannheilsu, Eins og fram hefur komið er full ástæða til að minna á þá nauðsyn að nota tannþráðinn daglega á þær tennur sem við viljum halda í, alla ævi. Misstu því ekki af þræðinum!
Nánar um tannþráð og notkun hans
Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir
Ljósmyndirnar eru fengnar frá Greve Kommunes Tandpleje í Danmörku.



