Sími : 5 800 900
. . um slysavarnir

Hringdu í 112 við slys eða skyndileg veikindi

Neyðarlínan 112

28.2.2005

Neyð er frábrugðin daglegu lífi, þar sem m.a. heilsu, mannslífum eða eignum er ógnað. Undir slíkum kringumstæðum ber að hringja í Neyðarlínuna 112.

     

Mikilvægi þess að hafa eitt neyðarnúmer í landinu er flestum ljós
Starfsmenn sem þar vinna hafa fengið þjálfun í greiningu og upplýsingaleit hjá þeim sem hringja og vinna síðan eftir ákveðnu skipulagi um hvaða viðbragðsaðila ber að kalla til hjálpar.

Á hverjum einasta klukkutíma, hvern einasta dag ársins verða slys eða skyndileg veikindi þar sem t.d. hjartastopp eða meðvitunarleysi koma upp hjá einstaklingum. Slíkt gerir sjaldan boð á undan sér, það veit sá sem í því lendir. Þá er mikilvægt að vita hvert ber að leita og vera öruggur um að sá sem við tilkynningunni tekur kunni að bregðast við og leita eftir réttum aðila til hjálpar.

Til þess er Neyðarlínan 112 

Ef hringt er í Neyðarlínuna vinna starfsmenn skipulega úr upplýsingum og um leið eru viðkomandi viðbragðsaðilar kallaðir út eftir fyrirfram ákveðnum boðleiðum. Neyðarverðir styðjast við mjög skýrar leiðbeiningar um forgangsröðun tilfella sem segja til um hvaða aðila ber að kalla til aðstoðar hverju sinni. 

Þegar neyðarvörður svarar skaltu vera viðbúinn því að svara spurningum um hvað gerðist, hvar það gerðist og hvaðan er verið að hringja. Neyðarvörður mun spyrja þig fleiri spurninga sem allar eru nauðsynlegar til að bregðast rétt við. Aðstoðin leggur strax af stað en það getur verið nauðsynlegt að spyrja áfram til að upplýsingar berist til þeirra sem munu aðstoða. Með hjálp þinni og samvinnu getur neyðarvörður kallað til rétta aðila til aðstoðar og hjálpar.  Neyðarvörður ákveður hvenær nauðsynlegar upplýsingar hafa borist frá þér en hann aðstoðar þig eins lengi og þú hefur þörf á.

Hvenær ekki á að hringja í 112 

Ekki ber að leita til Neyðarlínunnar ef um almenn veikindi er að ræða, þá leitar þú til heilsugæslu eða heimilislæknis á dagtíma en utan dagvinnutíma til þinnar heilsugæslustöðvar sértu á landsbyggðinni eða Læknavaktar í síma 1770 ef þú ert á höfuðborgarsvæðinu. En láttu skynsemina ráða þegar þú ert að meta hvort þú ættir að hringja í 112 en hringdu ef þú ert í vafa.

Allar beiðnir um sjúkraflutninga fara fram i gegnum 112.

Vilborg Ingólfsdóttir,
yfirhjúkrunarfræðingur,
hjá Landlæknisembættinu 

 

 



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica