Sími : 5 800 900
. . um næringu og holdafar

Fólat fyrir allar konur - sérstaklega þær sem geta orðið barnshafandi

26.9.2007

Fólat er nauðsynlegt fyrir fólk á öllum aldri en það er sérstaklega mikilvægt fyrir konur á barneignaaldri. Fólat er B-vítamín, oft nefnt fólasín eða fólinsýra, sem gegnir fjölda mikilvægra hlutverka í líkamanum. Rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl lítillar inntöku fólats fyrir þungun og á fyrstu vikum meðgöngu og hættu á alvarlegum skaða í miðtaugakerfi fóstursins, s.s. klofnum hrygg, heilaleysi og vatnshöfði en á Íslandi greinast árlega um 6 slík tilvik.

Dagleg inntaka fólats í töfluformi í fjórar vikur fyrir þungun og á fyrstu tólf vikum meðgöngu dregur úr líkum á alvarlegum skaða í miðtaugakerfi fósturs um meira en helming. Auk þess sem fólat dregur úr líkum á skaða í miðtaugakerfi fóstursins hafa rannsóknir sýnt að fólat getur hugsanlega dregið úr líkum á hjarta- og æðasjúkdómum með því að lækka styrk amínósýrunnar hómócýsteins í blóði.

Hverjum er ráðlagt að taka fólattöflu (fólinsýrutöflu)?

Þar sem þungun er ekki alltaf skipulögð fyrirfram er öllum konum sem geta orðið barnshafandi ráðlagt að taka 400 míkrógramma (0,4 mg) fólattöflu daglega, einnig nefnt fólinsýrutafla. Þeim konum sem hyggja á barneignir er ráðlagt að taka fólattöflu daglega í að minnsta kosti fjórar vikur fyrir þungun og halda því áfram að minnsta kosti fyrstu tólf vikur meðgöngu. Að auki er þeim ráðlagt að borða fólatríkt fæði sem viðbót við fólat í töfluformi.

Frekar er mælt með töflum sem innihalda einungis fólat (fólinsýru) heldur en fjölvítamíni, sérstaklega fyrir þungaðar konur þar sem það er ávallt æskilegast að taka sem fæst bætiefni á fyrstu vikum meðgöngu en fólat og D-vítamín eru þar undanskilin.

Fólatrík matvæli í viðbót við fólattöflur

Fólat er einkum að finna í grænmeti, hnetum, baunum, sumum tegundum ávaxta og í vítamínbættum matvörum, t.d. morgunkorni.

Grænmeti: Spínat, spergilkál (brokkólí), steinselja, spergill, rósakál, blómkál, kínakál, blaðsalat, blaðlaukur, graslaukur, grænkál, rauð paprika, avókadó, rauðkál, hvítkál.

Ávextir: Jarðarber, kíví, appelsínur.

Korn, fræ og hnetur: Vítamínbætt morgunkorn (skoðið innihaldslýsingu á umbúðum), múslí, haframjöl, gróf brauð (t.d. maltbrauð), hveitikím, hveitiklíð, sesamfræ, hörfræ, hnetur, möndlur, hnetusmjör.

Baunir: Kjúklingabaunir, sojabaunir, nýrnabaunir.

Barnshafandi konur ættu að forðast að borða lifur og lifrarafurðir, jafnvel þótt fólatrík sé, vegna þess hversu mikið er af A-vítamíni í lifur.

Frekari upplýsingar má fá í bæklingnum Fólat – fyrir konur sem geta orðið barnshafandi sem m.a. er hægt að nálgast á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.

Elva Gísladóttir

verkefnisstjóri næringar, Lýðheilsustöð



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica