Sími : 5 800 900
. . um næringu og holdafar

Minna salt

5.12.2007

Matarsalt nefnist á máli efnafræðinnar natríumklórið. Mikil neysla þess getur átt þátt í að hækka blóðþrýsting. Háþrýstingur er einn af áhættuþáttum hjarta- og æðasjúkdóma en hann tvöfaldar t.d. áhættuna á heilablóðfalli samkvæmt rannsóknum Hjartaverndar. Aðrir lífsstílstengdir þættir geta einnig haft áhrif til hækkunar á blóðþrýstingi svo sem offita, hreyfingarleysi, reykingar og ofneysla áfengis.

Rannsóknir hafa sýnt að með því að minnka saltneyslu má draga úr hækkun blóðþrýstings. Mest eru áhrifin hjá þeim sem hafa háþrýsting fyrir og hjá þeim sem eru yfir kjörþyngd en einnig má draga úr þeirri blóðþrýstingshækkun sem yfirleitt fylgir hækkandi aldri.

Ráðleggingar

Æskilegt er að saltneysla kvenna sé ekki meiri en 6 grömm á dag og 7 grömm á dag hjá körlum. Samkvæmt niðurstöðum landskönnunar á mataræði 2002 er saltneysla hér á landi mun meiri en æskilegt getur talist en hún er að minnsta kosti 9 grömm að meðaltali á dag. Þá er ekki meðtalið það salt sem oft er stráð á matinn við borðhaldið. Stærsti hluti salts í fæði kemur úr unnum matvælum svo sem tilbúnum réttum, unnum kjötvörum, pakkasúpum og sósum, niðursuðuvörum, brauði og morgunkorni. Vönduð matvælaframleiðsla þar sem saltnotkun er stillt í hóf er því mikilvæg forsenda þess að hægt sé að minnka saltneyslu þjóðarinnar.

Hvernig get ég borðað minna salt?krydd
Hinn almenni neytandi getur ýmislegt gert til að minnka saltneyslu sína. Einfaldasta leiðin er að borða meira af ferskmeti, t.d. nýjum ávöxtum og grænmeti, ferskum fiski og kjöti, og að auki að takmarka notkun salts við matreiðslu en nota þess í stað annað krydd til að bragðbæta matinn. Dæmi um saltsnauð krydd eru laukur, hvítlaukur, pipar, engifer, basilika, oregano, timian, mynta, koríander og sítróna. Salt er hins vegar að finna í flestum kryddblöndum og ef slíkar blöndur eru notaðar við matseldina þarf að taka tillit til þess, að öðrum kosti verður maturinn allt of saltur. Einnig er mikilvægt að vanda valið við innkaupin ef tilbúnar vörur eru keyptar því þó við stjórnum ekki saltmagninu í þeim þá getum við valið vörur með sem minnstu salti. Á umbúðum er oft hægt að sjá hve mikið salt er í matnum. Stundum er aðeins natríummagn gefið upp og þá er góð þumalputtaregla að margfalda það magn með 2,5 til að fá út saltmagnið.

Nú fer í hönd tími aðventu og jólahalds með tilheyrandi veisluhöldum þar sem mikil hefð er fyrir reyktum og söltuðum mat. Hvatt er til þess að stilla skömmtum af slíkum mat í hóf sérstaklega fyrir þá sem eru veikir fyrir en fá sér í staðinn meira af grænmeti og öðru meðlæti.

 

Nokkur góð ráð:

  • Velja lítið unnin matvæli í stað tilbúinna rétta þar sem þeir innihalda almennt mikið salt.
  • Takmarka notkun salts við matargerð – fjöldi annarra krydda getur kitlað bragðlaukana
  • Sleppa því að bera fram salt með matnum.
  • Lesa á umbúðir og vanda valið við innkaupin.
  • Takmarka skammtastærðina þegar saltur matur er borðaður.  

 

Hólmfríður Þorgeirsdóttir
verkefnisstjóri næringar
Lýðheilsustöð



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica