Ráðleggingar til að forðast fjölgun hættulegra baktería í þurrmjólk
Yfirburðum brjóstamjólkur fram yfir aðra fæðu er flestum ljós. Stundum eru þó aðstæður þannig að barn getur ekki fengið brjóstamjólk. Undir slíkum kringumstæðum er þurrmjólk besti kosturinn fyrir börn fyrstu sex til tólf mánuðina. Sérstök barnamjólk, stoðmjólkin, kom nýlega á markaðinn er sérstaklega ætluð börnum eftir sex mánaða aldur og er hún meðal annars járnbætt.
Landlæknisembættið og Umhverfisstofnun vilja koma á framfæri mikilvægum ábendingum varðandi blöndun þurrmjólkur. Ungbörn og smábörn eru sérstaklega viðkvæm fyrir matarsýkingum. Í þurrmjólk geta verið bakteríur (E. Sakazakii og Salmonella) sem geta valdið sýkingum og alvarlegum veikindum eins og heilahimnubólgu, blóðeitrun eða iðrakveisu og eru dæmi um slíkt hér á landi. Séu ungbörn ekki höfð á brjósti er mjög mikilvægt að meðhöndla og blanda ungbarnablöndur af mikilli varkárni. Þetta gildir líka um þurrmjólkurduft sem ætlað er börnum með ofnæmi eða óþol.
Áðurnefndar bakteríur drepast við gerilsneyðingu en geta borist í duftið t.d. við áfyllingu eða við meðhöndlun. Hafa skal í huga að heilbrigð ungbörn og smábörn geta þolað þessar bakteríur í blandaðri þurrmjólk í litlu magni en ungbörn yngri en 4-6 vikna og þá sérstaklega fyrirburar, léttburar og ónæmisbæld ungbörn er hópur sem er í sérstakri áhættu gagnvart sýkingum.
Til að koma í veg fyrir mengun og/eða fjölgun baktería þegar verið er að blanda mjólkurdufti saman við soðið vatn skiptir hreinlæti lykilmáli. Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hefur gefið út leiðbeiningar um blöndun þurrmjólkur fyrir foreldra, og eru þær á þessa leið.
Leiðbeiningar um blöndun, meðhöndlun, geymslu
og notkun í heimahúsum:
- Gott hreinlæti er nauðsynlegt til að koma í veg fyrir mengun og tekur það til handþvottar, hreinlætis í eldhúsinu og þess að öll áhöld séu hrein fyrir notkun.
- Útbúa skal mjólkurblönduna stuttu fyrir hverja gjöf og ekki skal blanda fyrir meira en eina gjöf í einu.
- Nota skal hreina pela þegar verið er að útbúa mjólkurblönduna. Best er að sjóða pelana alltaf eða sótthreinsa í þar til gerðum tækjum. Nægir að þvo pelana vel eftir að ungbarnið er byrjað að fá fasta fæðu sem má í allra fyrsta lagi vera við 4 mánaða aldurinn.
- Ávallt skal notað soðið vatn fyrir hverja blöndu (>70°C) eða vatn sem búið er að sjóða og kæla, en þá er mikilvægt að það hafi ekki mengast.
- Eftir að mjólkurdufti hefur verið blandað við soðið vatn á að kæla mjólkurblöndunina hratt í það hitastig sem hentar fyrir gjöf og skal mjólkurblandan notuð þegar í stað.
- Eftir hverja gjöf skal hella niður afgangsmjólk.
- Ef notuð er blanda sem hefur verið kæld niður fyrir æskilegt hitastig fyrir barnið er ekki ráðlagt að nota örbylgjuofna til að hita blönduna þar sem hún getur verið volg yst en sjóðheit innst. Best er að snögghita hana til dæmis með því að láta heitt kranavatn renna á pelann. Sýnið varkárni, hristið pelann og prófið hitastigið.
Einnig er mikilvægt að blanda þurrmjólk nákvæmlega eftir fyrirmælum framleiðanda. Ef það kemur fyrir að sett er of mikið af þurrmjólkurdufti, inniheldur blandan of mikið af steinefnum, sem verður til þess að álag á starfsemi nýrna verður of mikið. Hins vegar getur veik blanda sem gefin er til lengri tíma leitt til vannæringar.
Foreldrum er bent á að leita til heilsugæslustöðva til að fá frekari upplýsingar eða leiðbeiningar.
Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur, Landlæknisembættinu
Jóhanna E. Torfadóttir sérfræðingur, Umhverfisstofnun
