Sími : 5 800 900

. . um meðgöngu

Ótímabærar þunganir ungra stúlkna - 2.12.2005

Unglingsárin eru tímabil mikilla breytinga hvað varðar líkamlegan, sálrænan og félagslegan þroska. Lesa meira
 

Matur og meðganga - 22.11.2004

Matur á meðgöngu. smella á mynd til að skoða bæklinginnMeðganga er tími breytinga í lífi hverrar konu. Daglegt líf snýst nú ekki aðeins um eigin þarfir heldur einnig um þarfir annars einstaklings. Heilsusamlegt mataræði og rétt meðhöndlun matvæla skiptir því sjaldan meira máli fyrir heilsu og líðan en einmitt á þessum tíma.
Nýlega kom út á vegum Lýðheilsustöðvar, Miðstöðvar mæðraverndar og Umhverfisstofnunar bæklingur þar sem fjallað er um helstu atriði sem vert er að hafa í huga, bæði varðandi undirbúning meðgöngu og lífshætti á sjálfri meðgöngunni.

Lesa meira
 

Fólasín er nauðsynlegt - fyrir konur á barneignaraldri - 16.11.2004

Rannsóknir sýna að ef konur taka fólasín daglega 4 vikum fyrir þungun og á fyrstu 12 vikum meðgöngu dregur það úr líkum á miðtaugakerfisgöllum (s.s. klofnum hrygg) um meira en helming. Hér á Íslandi greinast 5-6 tilvik af slíkum göllum á hverju ári. Þar sem heili og mæna eru í mótun fyrstu vikur meðgöngu skiptir miklu máli að vítamínið sé tekið snemma. Til að koma í veg fyrir sem flest tilvik er mikilvægt að allar konur á barneignaaldri taki fólasín en ekki eingöngu þær sem ráðgera þungun.

Lesa meira

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica