Sími : 5 800 900
. . um heilsufar almennt

Frumkvæði framhaldsskólanema í sumar

27.5.2009

Um þessar mundir eru flestir íslenskir framhaldsskólanemar að klára sín próf og detta inn í langþráð frí frá námsbókunum. Þessum tíma hefur gjarnan fylgt tilhlökkun og eftirvænting eftir því sem sumrinu fylgir. Vinnusöm þjóð hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að afla tekna og starfsreynslu með sumarstörfum ýmiskonar og jafnframt litið aðgerðaleysi ungs fólks hornauga. En nú eru sumarstörfin af skornum skammti þar sem slæmar atvinnuhorfur blasa við allri þjóðinni. Ef að líkum lætur verða fleiri þúsund manns á framhaldsskólaaldri án atvinnu í sumar. Það getur óneitanlega dregið dilk á eftir sér, fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild sinni.

Áhrif aðgerðarleysis

Fjölmargar rannsóknir, íslenskar og erlendar, sýna með ótvíræðum hætti að of mikill óskipulagður frítími ungs fólks getur reynst varasamur. Líkurnar á ýmiskonar áhættuhegðun og öðrum miður uppbyggilegum uppátækjum aukast gjarnan við slíkar aðstæður. Einnig getur of mikill tími fyrir framan sjónvarps- eða tölvuskjá verið óæskilegur af ýmsum ástæðum, sérstaklega hvað varðar andlega líðan viðkomandi. Það getur líka skapað árekstra hjá fjölskyldunni ef einn eða fleiri meðlimir hennar eru með annað svefnmynstur en hinir í fjölskyldunni. Svo er það auðvitað alvarlegt fyrir samfélagið ef stórir hópar ungs fólks fara á mis við það tækifæri sem atvinnuþátttaka býður til að þroskast sem einstaklingar og félagsverur.

Möguleikar og tækifæri fyrir ungt fólk

Ef launuð störf eru ekki í boði í sumar er mikilvægt að koma í veg fyrir aðgerðaleysi. Þá er t.d. hægt að skoða möguleika á sjálfboðaliðastarfi. Við Íslendingar mættum gjarnan líta til annarra þjóða í þessu samhengi, sem m.a. leggja mikið upp úr reynslu af sjálfboðastörfum í háskóla- og atvinnuumsóknum. Þátttaka í sjálfboðastörfum hlýtur jú að hafa í för með sér góð gildi sem nýtast okkur, ekki síst nú á breyttum tímum í samfélaginu. Sumir framhaldsskólar bjóða jafnvel upp á einingar fyrir slíkt framtak og mættu fleiri skólar taka þá til fyrirmyndar. Greiðasta leiðin til að finna hvað stendur til boða er að leita til þeirra sem hafa ríka hefð fyrir sjálfboðastarfi, t.d. Rauða krossins og Landsbjargar. En möguleikar á sjálfboðastörfum bjóðast hjá fleirum, t.a.m. Landgræðslunni, UMFÍ, Krafti og fleirum.

Henti hefðbundin sjálfboðaliðstörf hinsvegar ekki viðkomandi mætti skoða hvað annað ungt fólk er að gera og taka þátt í ýmiskonar skemmtilegum uppátækjum með því. Fínn staður til að hefja leitina er á nýrri heimasíðu Samfélags frumkvæðis sem er að finna á heimasíðunni www.frumkvaedi.is. Einnig er Hitt húsið með alls konar hugmyndir og uppákomur á sinni heimsíðu, www.hitthusid.is.

        
Nokkrar vefsíður sem gætu reynst gagnlegar í sumar  
Landsbjörg www.landsbjorg.is 
Hitt húsið www.hitthusid.is
Hugmyndaráðuneytið www.hugmyndaraduneytid.is
Landgræðslan www.land.is
Lýðheilsustöð www.lydheilsustod.is
Ábendingar um ýmis úrræði er hægt að nálgast undir Efnahagsþrengingar
Kraftur www.kraftur.org
Rauðakrosshúsið www.raudakrosshusid.is
Rauði krossinn www.redcross.is
Samfélagið frumkvæði www.frumkvaedi.is
Sveitarfélög (ýmis) www.samband.is
UMFÍ www.umfi.is


Allt jákvætt er betra en ekkert

Lykilatriðið er að sumarið verði jákvæður og uppbyggilegur tími, t.d. með því að láta gott af sér leiða í samfélaginu. Allt er betra en að hanga í tölvunni eða fyrir framan sjónvarpið. Hvernig væri að kíkja á ókeypis námskeið hjá Rauðakrosshúsinu (raudakrosshusid.is)? Eða hafa frumkvæði að því skipuleggja samverustundir með vinum eða fjölskyldunni, s.s. útilegur, leiki, gönguferðir um ótroðnar slóðir eða annað í þeim dúr? Svo er líka hægt að læra nýja listgrein, æfa sig fyrir maraþonhlaup, kynnast nýjum bókmenntum, þróa viðskiptahugmynd, hjálpa afa og ömmu í garðinum eða rækta samband við systkinin. Möguleikarnir eru fjölmargir. Einbeitum okkur því að tækifærunum frekar en hindrununum og njótum þess að vera til í sumar.

 

Héðinn Svarfdal Björnsson,
verkefnisstjóri fræðslumála.

 



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica