Njótum sólarinnar af skynsemi
Öll hlökkum við til þess að sólin fari að ylja okkur eftir langan og kaldan vetur og við getum auðveldalega notið sólargeislanna ef við beitum skynseminni og forðumst að brenna. Þegar við fáum of mikla útfjólubláa geislun á húðina brennur hún en við það aukast líkurnar á að fá húðkrabbamein síðar á ævinni.
Um 300 greinast á ári
Á Íslandi hefur tíðni húðkrabbameina tvöfaldast á síðustu tíu árum og er það einkum rakið til aukinna sólbaða og notkunar ljósabekkja. Að meðaltali greinast um 300 manns á ári með húðkrabbamein, þar af um 50 með sortuæxli í húð, sem er hættulegasta tegund húðkrabbameina. Ár hvert deyja að meðaltali átta Íslendingar af völdum sortuæxla.
Pössum börnin vel
Það er skynsamlegt að fara varlega í sólinni og forðast notkun ljósabekkja. Börn ættu aldrei að vera óvarin í sólinni og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur ráðlagt þeim sem eru yngri en 18 ára að nota ekki ljósabekki. Mesta útfjólubláa geislunin skellur á okkur á bernskuárunum en þá er húðin einnig viðkvæmust. Talið er að stærsti hluti þess skaða sem húðin verður fyrir, vegna útfjólublárrar geislunar, gerist fyrir tvítugt. Hættan á að húðin skaðist í sólinni er mest þegar við fáum stóran skammt af geislun á stuttum tíma, eins og í sólarlöndum, á sólríkum dögum á Íslandi og við notkun ljósabekkja.
Hæfilegur skammtur
Sólin færir okkur hita, birtu og útfjólubláa geislun. Útfjólublá geislun veldur því að húðin framleiðir D-vítamín sem við þurfum á að halda, meðal annars til að vinna kalk úr fæðunni sem styrkir beinin. Á sumrin þurfum við aðeins 10−15 mínútur af útfjólublárri geislun til að framleiða dagsþörf af D-vítamíni. Yfir vetrartímann er hægt að fá viðbótar D-vítamín úr fæðunni, m.a. með því að taka lýsi.
Upplýsingar um D-vítamín í fæðu er hægt að fá á vítamínsíðunni.
Ráð til að njóta sólarinnar af skynsemi
Njótum sólarinnar en fylgjum nokkrum einföldum ráðum til að forðast að útfjólubláu geislarnir skaði okkur.
- Forðast sólina um miðjan daginn
Frá klukkan 11−15 eru geislar sólarinnar sterkastir og um 60% af heildargeislun dagsins á sér stað á þessu tímabili.
- Vera í skugganum
Að vera í skugganum er einnig góð og einföld leið að verja sig fyrir geislun sólarinnar.
- Klæðast fötum
Að klæðast víðum langerma skyrtum og síðbuxum er þægileg og árangursrík aðferð til að verja sig fyrir geislum sólarinnar þurfi maður að vera utanhúss um miðjan dag.
- Sólarvarnaráburður
Bera þarf á húðfleti sem fá óhindrað sólarljós nægjanlegt magn af sólvarnaráburði með sólvarnarstuðulinn 15 eða hærri og vernd gegn bæði A og B geislum.
- Forðast ljósabekki
Geislun frá sólarlömpum getur skaðað húðina og augun, sérstaklega er varhugavert að börn og ungmenni noti ljósabekki.
Sveinbjörn Kristjánsson,
verkefnisstjóri fræðslumála
----------------------
Meira:
Svíar íhuga að taka upp 18 ára aldurstakmark í ljósabekki - frétt á sænsku
Verum klár í sólinni - .pdf-skjal til útprentunar (opnast í nýjum glugga)
Dreifðu um vefinn
