Náttúran og heilsan
Ef litið er til þeirra tíma þegar berklar voru alvarlegt heilsufarslegt vandamál muna sumir að berklasjúklingar voru vistaðir á stofnunum þar sem aðgengi að fersku lofti og náttúru var hluti af lækningunni, eins og til dæmis á Vífilsstaðaspítala. Víst er að húsnæði þeirra tíma bauð upp á smit manna á milli vegna þrengsla, óhreininda og lélegrar loftræstingar. Því var það heilsubætandi að dvelja á stofnun þar sem allur aðbúnaður var með ágætum, ferskt loft og falleg náttúra við bæjardyrnar.
Enda þótt húsakynni fólks séu nú almennt orðin betri benda rannsóknir til þess að sjúklingar sem dvelja á stofnun og hafa útsýni til náttúrunnar í stað steinsteypu eða manngerðra bygginga nái sér fyrr, séu rólegri og noti minna af verkjalyfjum en þeir sem það gera ekki. Bandarískur vísindamaður, Roger Ulrich, rannsakaði sjúklinga sem lágu á sjúkrahúsi vegna gallsteina og komst að því að þeir sem voru með útsýni með gróðri útskrifuðust fyrr en hinir og kvörtuðu síður.
Hafa ber í huga að lausnin er ekki eingöngu sú, eins og í þá gömlu góðu daga, að hafa garða við sjúkrastofnanir. Í dag liggja flestir sjúklingar aðeins í nokkra daga á stofnun og fara svo heim. Hönnuðir verða að huga að því við skipulag nýrra sjúkrastofnana að sjúklingar hafi útsýni til náttúrunnar, þótt fegurðin sé auðvitað alltaf afstæð. Jafnvel skiptir þá ekki öllu mál hvort útsýnið er raunverulegt eða á mynd sem brugðið er upp fyrir sjúklinginn meðan á rannsókn stendur eða þegar hann dvelur í sjúkraherbergi.
Náttúran bætir einnig heilsu sjúklinga sem ekki dvelja á stofnun og annarra sem vilja efla heilsu sína á einhvern hátt. Útivist, hreyfing eða það að njóta náttúrunnar virðist draga úr streitu og auka vellíðan. Rannsóknir sýna jafnframt að græn svæði þurfa að vera aðgengileg og nálæg heimilum fólks til að það nýti sér hana. Hollensk rannsókn sýndi að græn svæði í íbúðahverfum hafði heilsubætandi áhrif á íbúana og þá skipti ekki hversu góð þau voru heldur aðeins að þau væru þar. Rannsóknir benda þannig til að náttúran, hvort sem hún er í formi pottaplanta, garða, útsýnis eða mynda, hefur bætandi áhrif á líðan fólks heima við og á vinnustöðum.
Hvort sem er á heilbrigðisstofnun, heima eða á vinnustað ætti að leitast við að gera fólki kleift að njóta náttúrunnar, til dæmis með aðgengilegum grænum svæðum, plöntum, útsýni eða náttúrumyndum. Það bætir bætir heilsu og eykur vellíðan.
Anna Björg Aradóttir yfirhjúkrunarfræðingur
