Sími : 5 800 900
. . um heilsufar almennt

Get ég losnað við brjóstsviðann?

10.10.2005

Mjög margir kannast við brjóstsviða eða önnur óþægindi sem menn tengja maganum. Einkennin eru margvísleg og óljóst hvort þau eru frá vélinda, barka eða lungum. Stundum eru einkennin væg en á stundum þarf að grípa til lyfja eða aðgerða.

Brjóstsviði, eða meltingarónot, taka til óþæginda eða verkja sem fólk finnur til fyrir bringspölum eða maga ekki ósjaldan eftir máltíðir. Læknar nefna þessi óþægindi m.a. meltingarónot, brjóstsviða og sýrubakflæði. Einkennin geta verið mismunandi eins og að vera bumbult, þurfa að ropa eða almenn vanlíðan. Ef um sýrubakflæði er að ræða finnur fólk fyrir sviðatilfinningu sem stafa af því að magasýrurnar erta vélindað.

Hvað er til ráða?

Fyrsta skrefið er að huga að því hvort ástæða sé til að breyta lífsháttum, eins og að borða hollan mat, léttast, hætta að reykja eða drekka áfengi og athuga hvort einhverjar fæðutegundir valda meltingarónotunum. Til eru lausasölulyf sem draga úr óþægindun eins og sýrubindandi lyf en æskilegt er að fá ráðgjöf hjá lyfjafræðingi, lækni eða hjúkrunarfræðingi. Flestum gengur vel að ráða við einkennin með því að fylgja ofangreindum ráðleggingum, en ef þær duga ekki og einkennin eru viðvarandi þarf að leita læknis, hafði það ekki verið gert áður. Það sem þarf að hafa í huga í því samtali er hvaða orsakaþættir gætu verið með í spilinu, eins og önnur lyf eða sjúkdómar, svo sem hjarta- og æðajúkdómar, gall eða lifrarvandamál. Sem dæmi um lyf eru kalsíumgangalokar, nítröt, teófýllín, bífosfonöt, sterar og gigtar- og verkjalyf.

Tvær lyfjameðferðir eru helst notaðar. Stundum er notuð meðferð með lyfi sem kallast prótonpumpuhemill (PPI) í einn mánuð. Sú meðferð beinist að því að stöðva sýrumyndun í maganum. Hlutverk magasýrunnar er að brjóta niður fæðu til að auðvelda meltingu en hún getur stundum valdið meltingarónotum. Í öðrum tilvikum er um að ræða sýkingu af völdum bakteríu sem kallast Helicobacter pylori og eru þá notuð sýklalyf. Áður en læknir ávísar sýklalyfinu þarf að rannsaka hvort viðkomandi er með þessa bakteríu. Það er gert með öndunarprófi eða sýni frá hægðum eða blóði.

Ef einkennin koma aftur má reyna aðra meðferð með prótonpumpuhemli og nota lyfið þá eingöngu þegar einkennin krefjast þess. Ef það dugar ekki má reyna svokallaða H2 blokkera sem gagnast sumum. Stundum þarf að leita til sérfræðings og jafnvel í magaspeglun ef viðkomandi hefur eitthvert eftirtalinna einkenna: Langvinna blæðingu í meltingarvegi, stöðugt óráðgert þyngdartap, járnskortsblóðleysi eða fyrirferð í efri hluta kviðarhols.

Vert er að geta þess að fyrir stuttu hlutu tveir Ástralir Barry J. Marshall og J. Robin Warren nóbelsverðlaun í læknisfræði fyrir að uppgötva að bakterían Helicobacter pylori sé helsti orsakavaldur maga- og skeifugarnasára. Áður höfðu menn talið að engin baktería þrifist í sýrum magans.

Bent er á að frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is undir klínískum leiðbeiningum.

Anna Björg Aradóttir hjúkrunarfræðingur
Landlæknisembættinu



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica