Sími : 5 800 900

. . um geðrækt

Vinir Zippýs - Eflir tilfinningaþroska - 18.3.2010

 Eflir-tilfinngaþroska, grein í Mbl 18 mars 2010 bls 20-21Grein og viðtal eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
birtist í Morgunblaðinu, bls 20-21 fimmtudaginn 18. mars 2010

 

„Með þessu námsefni erum við að leggja grunninn að tilfinningalegri og andlegri velferð barnanna, byggja upp sjálfstraust þeirra og þrautseigju“ segir Guðrún Guðmundsdóttir sem er þeirrar skoðunar að öll börn ættu að kynnast námsefninu um Zippý.

Lesa meira
 

Að missa vinnuna er öllum áfall - 10.12.2008

Byggt á grein Ingrid Kuhlman, sem birtist í Viðskiptablaðinu þann 4. nóv. s.l. Lesa meira
 

Er fjölskyldustefna á þínu heimili? - 28.3.2007

Þegar rýnt er í rannsóknir á vellíðan kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Fyrir það fyrsta þá vega efnisleg gæði ekki þungt í tengslum við hamingju. Peningar hafa ekki áhrif nema upp að því marki að eiga vel í sig og á. Eftir það hafa tekjur lítil áhrif á hamingju manna. Rannsóknir sýna að hamingjusamir einstaklingar eiga það sameiginlegt að eiga sér tilgang í lífinu og vera í nánum félagslegum samskiptum, sérstaklega við maka og fjölskyldu. Lesa meira
 

Bráðum koma blessuð jólin - 15.12.2006

Enn einu sinni er komið að því að blessuð jólin, með öllu sínu tilstandi, nálgast óðfluga. Fyrir mörgum eru jólin kærkomin hvíld frá hversdagsleikanum. Tilhlökkun um jólaljósin, skreytingar, að gleðjast með sínum nánustu, borða góðan mat, taka upp gjafir sem gefnar eru af heilum hug, fara í heimsóknir og hlýða á jólamessu. Sumir gleyma sér þó í kapphlaupinu um að gera jólin sem glæsilegust og uppruni þeirra virðist stundum hverfa í skarkala og græðgi. Auglýsingar dynja á fjölskyldum og erfitt getur verið að útskýra að ekki sé til fjármagn til að koma á móts við allar langanir barnanna, hvað þá hinna fullorðnu Lesa meira
 

Áhrif skammdegis á líðan okkar - 13.11.2006

Skammdegið fer misvel í okkur landsmenn. Meðan mörg okkar kunna vel við sig í rökkrinu og njóta þess að geta kveikt á kertaljósum og hafa það notalegt eru aðrir sem sakna birtunnar og eiga erfiðara með að aðlagast lækkandi sól. Flestir finna þó fyrir einhverjum breytingum á líðan eftir árstíðum og getur minnkandi birta í skammdeginu haft þau áhrif á fólk að það finni fyrir kraftleysi, mislyndi, erfiðleikum með svefn, aukinni matarlyst og minnkaðri löngun til samskipta við aðra. Lesa meira
 

Sumarið er komið og stundum er það flókið! - 30.6.2006

Nú þegar sumarið er gengið í garð eru flestir komnir með áætlun um hvernig sé best að njóta þess. Framundan eru frí frá vinnu og hversdagsleika og við taka ferðalög, ættarmót, heimsóknir, grill, tilhlökkun að hitta ættingja og vini. Vitað er samt að hjá sumum fjölskyldum veldur sumarið upplausn og streitu. Áhyggjur yfir því að fjárhagur leyfi ekki frí eða veikindi setja strik í reikninginn. Í öðrum fjölskyldum er ekki samstaða milli foreldra eða einstæðir foreldrar koma sér illa saman um hvernig eigi að skipta sumrinu.

Lesa meira
 

Félagsauður - fjárfesting í samhug - 26.5.2006

Sérhver manneskja býr yfir einhverjum kostum sem gera hana að þeim mannauð sem samfélagið byggir á og vill nýta. Hins vegar hafa vísindamenn, í æ ríkari mæli, sýnt fram á að í samstarfi fólks að tilteknu málefni verði til afl sem kallað er félagsauður. Lesa meira
 

Geðheilbrigði ungra barna - 26.5.2006

Góð geðheilsa og líðan eru undirstaða allra lífsgæða, og gerir fólki fært að finna tilgang með lífinu og vera virkir og skapandi þjóðfélagsþegnar (WHO, 2005). Það er því ekki erfitt, að taka undir þegar því er haldið fram, að andleg og líkamleg heilsa barna og unglinga leggi grunninn að velferð þeirra í lífinu. Lesa meira
 

Jákvæðni er valkostur - 3.4.2006

Öll erum við einstök með mismunandi þarfir og langanir og langflest fáum við tækifæri til að njóta þess að vera í samfélagi við vini og ættingja. En hvað verður til þess að sumum vegnar vel og aðrir sitja eftir? Það eru margar ástæður. Ein er eflaust sú að einstaklingar hafa mismunandi sýn á lífið eða þor að takast á við það.

Lesa meira
 

Heilarækt - 6.2.2006

Sífellt dynja á okkur skilaboð um að líkamsrækt muni bæta heilsu og lengja líf, ekki síst eftir jól og áramót. Það er líka margsannað að ef við finnum okkur hreyfingu við hæfi bætir það heilsuna. Nú standa einnig til boða ýmiss konar námskeið til að rækta sál og geð sem er líka mikilvægt. Í þessu sambandi er vert að íhuga að þó oft sé gott og jafnvel nauðsynlegt að leita ráðgjafar og hjálpar þá er það svo margt sem hver og einn getur gert bara með því að líta í eigin barm og skoða á hvern hátt forgangsraða megi í lífinu. Lesa meira
 

Úti alla nóttina! - 21.12.2005

Við eldra fólkið erum sífellt að segja að heimurinn sé að fara til fjandans og að frelsið og kröfurnar sem unga fólkið lifi við geri það stressað og óábyrgt. Lesa meira
 

Njótum samvistanna - 12.12.2005

Aðventan og jólahátíðin eru mörgum tími mikils álags þar sem daglegar venjur fara verulega úr skorðum. Lesa meira
 

Streitan er slæm fyrir æðakerfið - 5.12.2005

Öll þekkjum við hvernig streitan getur stundum valdið vanlíðan, bæði líkamlegri og andlegri, en í raun er streita eðlileg viðbrögð líkamans við álagi eða hættu. Lesa meira
 

Án jákvæðra hugsana er engin vellíðan - 2.12.2005

Forsendur fyrir því að okkur geti liðið vel er óumdeilanlega góð heilsa, andleg líkamleg og félagsleg. Lesa meira
 

Er fjölskyldan að stimpla sig út? - 26.9.2005

Góð heilsa felst í andlegri, félagslegri og líkamlegri vellíðan. Ef einn af þessum þáttum verður fyrir hnjaski hefur það áhrif á hina tvo og ójafnvægi kemst á líðan einstaklingsins sem verður viðkvæmari fyrir mótbyr. Það er margt sem gerir að einstaklingar eiga erfitt uppdráttar þrátt fyrir “góðæri” í landinu og vaxandi velmegun. Eitt er vinnuálag, mjög margir þurfa að vinna langan vinnudag til að ná endum saman. Lesa meira
 

Hlúum að geðheilsunni í sumar - 8.8.2005

Vonandi ná sem flestir að hlúa vel að geðheilsunni í sumar. Sumarið er tíminn þar sem sólin er hátt á lofti og þá er oft auðveldara að fyllast bjartsýni og sjá það jákvæða í lífinu. Með jákvæðnina að leiðarljósi eru okkur allir vegir færir. Það er mikilvægt að nýta sólargeislana til að hlaða batteríin fyrir veturinn. Gott er að fara út í náttúruna og njóta hennar meðan enn er bjart og hlýtt. Útivist í íslenskri, ómengaðri náttúru getur verið afar gefandi fyrir geðheilsuna og mikil geðrækt. Lesa meira
 

Lífselixír - er hann til? - 19.4.2005

Í aldanna rás hafa menn leitað að lyfi sem getur komið í veg fyrir eða læknað sem flest af mannanna meinum. Af og til heyrum við af nýjum lyfjum eða náttúruefnum sem munu leysa okkur undan oki vanheilsu og sjúkdóma. Lesa meira
 

Hreyfingin eflir andann, gefðu þér tíma á nýju ári - 11.1.2005

Áramót sjá margir sem upphaf að nýju tímabili og þá um leið vettvang til að taka til í ,,geymslunni”. Árið sem er að líða er gert upp og línurnar lagðar fyrir það sem er að renna upp. Margir gera þetta bókstaflega og leggja línur fyrir línurnar, finnst þeir hafa verið í full nánu sambandi við sófann en nú skal tekið á því og bumbunni breytt í bretti.

Lesa meira

 

Tengslin milli líkamlegrar og andlegrar heilsu - 11.10.2004

Margir þurfa á einhverjum tímapunkti í lífi sínu að takast á við alvarleg líkamleg veikindi. Bæði veikindin og sú meðferð sem beitt er geta haft áhrif á hugsun og líðan og alla þætti daglegs lífs á einn veg eða annan. Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica