Framkoma barna á netinu
Stundum virðist sem svo að fólk sýni ákveðið hömluleysi í framkomu á netinu og þá gjarnan undir dulnefni. Í fyrsta lagi verður að átta sig á því hægt er að rekja úr hvaða tölvu skrif koma. Í öðru lagi að á netinu berum við sömu ábyrgð og í annars konar samskiptum við fólk. Allt sem þú gerir á netinu endurspeglar hver þú ert, og er það einmitt eitt af heilræðum SAFT, sem er vakningarverkefni um jákvæða og örugga netnotkun barna og unglinga á netinu og tengdum miðlum.
Einelti er alvarlegt mál, og meiðandi skrif og áreitni á netinu geta haft alvarlegar og langvarandi afleiðingar. Afleiðingar eineltis geta verið lélegt sjálfstraust, depurð, þunglyndi og skömm. Stöldrum því við þegar stríðni ber á góma og sláum það ekki út af borðinu sem strákapör eða saklaust grín. Ef einelti er látið óátalið getur það undið upp á sig og orðið mjög alvarlegt.
Þegar börnin eru lítil kennum við þeim almennar kurteisisreglur svo sem að benda ekki á fólk í búðum og koma með ónærgætnar athugasemdir eða ræða opinskátt náin fjölskyldumál við ókunnuga. Þegar þau verða eldri og fara að nota netið má segja að við þurfum að uppfæra þessa þekkingu. Við skulum ekki ætla börnum að átta sig endilega á því að það sem birt er á netinu verði ekki tekið til baka eða að hver sem er geti séð það sem þau skrifi á til dæmis leikjasíðum og spjallborðum. Við þurfum að ræða við þau hvað er leyfilegt að gera á netinu og vera með þeim að vafra á netinu. Ef barnið okkar hefur skrifað meiðandi athugasemdir um aðra getum við sest niður með því og rætt um það hvernig því sjálfu myndi líða ef skrifað væri svona um það sjálft. Börn eru oft fljót að bregðast við en orð særa, bæði skrifuð og sögð, og áhrif þeirra aldrei alveg afmáð þó beðist sé afsökunar.
Auk þess að efla með þeim samhyggð og virðingu getum við dregið úr líkum þess að börnin okkar stríði eða leggi aðra í einelti á netinu með ýmsum aðferðum. Það getur virst flókið að fylgjast með og leiða börn okkar í gegnum þann frumskóg sem netið er, en á vefsíðu SAFT (www.saft.is) má finna hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar handa foreldrum. Gleymum ekki öllu því góða sem netið hefur upp á að bjóða sem við getum notið með börnum okkar um leið og við brýnum fyrir þeim umferðarreglurnar þarna jafnt sem annars staðar.
Jenný Ingudóttir, MPH
