Flugeldar, þeir gleðja augað...
Ef ekki er farið eftir þeim leiðbeiningum sem gefnar eru upp fyrir hverja og eina flugeldavöru þá geta slys orðið og því miður er það raunin að þau hafa orðið um hver áramót og í kringum þau. Þeir sem slasast oftast fyrir og eftir áramótin eru drengir og verða flest slys þeirra þegar þeir eru að breyta flugeldunum þ.e. að búa til sínar eigin sprengjur og/eða taka kökur í sundur en pabbarnir slasast mest um áramótin sjálf.
Hvað mega krakkar kaupa?
Krakkar yngri en 12 ára mega ekki kaupa neinar flugeldavörur. Frá 12 ára aldri til 16 ára aldurs mega þau kaupa mjög takmarkað. Í reglugerð um flugelda segir að aðeins megi selja þeim það sem skapar litla hættu og er ekki með aldurstakmörkunum á eins vörur sem ætlaðir eru til notkunar innanhúss og má nota allan ársins hring. Þegar þessar vörur eru notaðar samkvæmt leiðbeiningum ættu þær ekki að valda meiðslum á fólki sem stendur í 1 m fjarlægð eða meira frá þeim, né valda skemmdum á eignum. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um þá hættu sem fylgja flugeldum og vita hvað börn þeirra eru að fást við á þessum tíma. Börn eiga ekki að umgangast flugeldavörur, með einum eða öðrum hætti, nema með fullorðnum.
Hvernig á að geyma flugelda?
Flugelda verður að geyma á þurrum stað, þar sem börn geta ekki nálgast þá og ekki er mælt með því að einstaklingar geymi þá milli ára. Þegar verið er að skjóta upp á að geyma flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á og aldrei skal geyma flugeldavörur í vösum.
Hvað þarf að hafa í huga þegar skotið er upp?
Ákveðnar almennar reglur gilda um viss atriði þegar verið er að skjóta upp, sama hver varan er. Skjóta verður flugeldavörum upp á opnu svæði og látið þá sem eru að horfa á standa vindmegin við skotstað. Hendur þess sem skýtur upp eru best varðar ef viðkomandi er í hönskum. Flugeldagleraugu eiga allir að nota, sama hvort þeir eru að skjóta upp eða bara að horfa á. Aldrei má halla sér yfir þá vöru sem verið er að bera eld að, tendra skal á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá. Ef flugeldur springur ekki skal hella vatni yfir hann, en ekki reyna að kveikja aftur í honum. Passið vel uppá börnin, þau þekkja hætturnar ekki eins vel og þeir fullorðnu og munið að áfengi og flugeldar passa aldrei saman.
Hvernig á svo að bera sig við að skjóta upp helstu vörutegundunum?
Skotkökur þurfa að vera á láréttum, þurrum og sléttum fleti og taka þarf af flipana á kassanum til að þeir breyti ekki skotstefnu.
Rakettum skal skotið úr öruggu skotstæði.
Standblys má alls ekki halda á. Í þeim er engin spýta eða öruggur botn og því er alltaf möguleiki að skot hlaupi niður úr hólknum og í þann sem heldur á því. Því á að stinga merktum enda standblyssins í mjúka jörð eða í öruggt skotstæði.
Þyrlur og smáflugelda á að leggja á láréttan, þurran og sléttan flöt á opnu svæði.
Innibombu á að láta standa upprétta á diski fjarri kertum.
Megið þið eiga ánægjuleg og slysalaus áramót
Sigrún A. Þorsteinsdóttir
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Grein sem birtist í Morgunblaðinu 30. desember 2005
