Áfengislaus skólaböll
Fyrir utan það að bannað er með lögum að neyta áfengis fyrr en eftir tvítugt benda niðurstöður rannsókna til þess að áfengi hafi varanleg skaðleg áhrif á myndun heilans og þar af leiðandi ýmsar stöðvar heilans. Þar á meðal eru minnisstöðvar, stöðvar sem stýra sjónsviði og talmáli. Rannsóknir sýna að þessi skaðlegu áhrif geta verið varanleg og hafa því slæm áhrif á námsárangur. Líkur á brottfalli, lélegri mætingu og falli á prófum aukast til muna í hlutfalli við áfengisneyslu. Þá eru ótalin önnur vond áhrif áfengis eins og fallslys,slys af völdum ölvunaraksturs o.s.frv. Það eru því margar ástæður fyrir því að vara við áfengisneyslu á unglinsárunum.
Foreldrar geta lagt sitt af mörkum
Á skólaböllum í framhaldsskólum kemur saman ungt fólk frá 16 ára til um tvítugs. Þar af leiðandi blandast saman hópur af ungu fólki sem ekki hefur aldur til að neyta áfengis og ungt fólk sem má kaupa áfengi - og það kaupir mögulega áfengi fyrir vini sína sem yngri eru. Flestir - ef ekki allir - grunn- og framhaldsskólar eru með mjög strangar reglur hvað varðar neyslu hvers konar vímuefna á samkomum sem haldnar eru á vegum skólans. Reglur eins og ,,áfengi ógildir miðann” eru þar góðar og gildar. Þrátt fyrir þetta eru alltaf einhverjir sem reyna að blanda saman áfengi og skólaskemmtunum. Og stundum getur ungt fólk, sem ekki hafði ætlað sér að neyta áfengis, átt í erfiðleikum með að standast freistingarnar - og þrýstinginn frá öðrum. Allir foreldrar vilja væntanlega vernda börn sín gegn skaðlegum áhrifum áfengisins á þroska heilans og gera því sitt til að koma í veg fyrir að þau séu að neyta áfengis áður en þau hafa aldur til.
Ýmislegt þarf að hafa í huga þegar unglingurinn er að fara á skólaball, eða út að skemmta sér, og foreldrar geta lagt sitt af mörkum til þess að skemmtunin fari vel fram. Eftirfarandi má hafa til hliðsjónar:
| Verið skýr í afstöðu ykkar gegn neyslu áfengis og annarra vímuefna |
| Kaupið ekki áfengi fyrir unglinginn |
| Bjóðið uppá óáfenga drykki |
| Ef unglingurinn fær leyfi til að bjóða vinum heim fyrir ballið þarf foreldri að vera heima, til stuðnings og til að sjá til þess að hvorki áfengis né annarra vímuefna sé ekki neytt á staðnum |
| Tryggið að unglingurinn komist öruggur heim að loknu balli, t.d. með því að sækja hann ef ekki eru skipulagðar ferðir á vegum skólans. |
| Brýna fyrir honum að þiggja ekki far með einhverjum sem hugsanlega eru undir áhrifum |
| Ítrekið að unglingurinn þiggi ekki drykk frá öðrum, eða skilji glas sitt eftir án þess að fylgjast með því, þar sem ólyfjan getur hafa verið laumað í glasið |
| Ef foreldri verður vart við skipulagt, foreldralaust partí þar sem málin virðast vera að fara úr böndunum þá þarf að láta lögreglu umsvifalaust vita |
| Einnig ef foreldrar verða varir við að ungt fólk, sem ekki hefur aldur til, er boðið á vínveitinga- eða skemmtistað. Þá þarf að láta lögreglu vita af því strax svo hægt sé að kanna hvort verið sé að selja eða nota vímuefni á staðnum og hvort ungt fólk undir lögaldri sé á staðnum og því seldir eða afhentir áfengir drykkir. |
Rafn Jónsson
verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna
