Sími : 5 800 900

. . um áfengis- og vímuvarnir

Besta gjöfin frá foreldrum er tími - 7.6.2007

Sumarið er loks gengið í garð eftir langan vetur, skólarnir eru búnir í bili og skemmtilegir tímar bíða ungs fólks. Þessu skeiði á milli skólaára fylgja gjarnan spennandi breytingar og áskoranir. Til dæmis má nefna sumarvinnu, nýja vini, ferðalög og vangaveltur um framtíðina, en því miður geta einnig rótleysi og tilhneiging til áhættuhegðunar stundum fylgt þessum tíma. Lesa meira
 

Alltaf neikvætt fyrir heilsuna að finna á sér - 28.2.2007

Áfengi er engin venjuleg neysluvara en er þó hluti af daglegu lífi margra um allan heim. Áfengi er notað við hin ýmsu tækifæri, m.a. í félagslegum aðstæðum, sem hluti af fæðu, sem tákn um frí frá amstri hversdagsins eða við önnur tækifæri. Í umræðunni gleymast því oft þau neikvæðu áhrif sem fylgt geta neyslu áfengis. Samkvæmt heilbrigðisskýrslu frá alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni frá 2002 er áætlað að rekja megi 4% af sjúkdómsbyrði nútímans til neyslu áfengis. Og þegar skoðaðir eru 26 valdir áhættuþættir dauðsfalla og sjúkdóma þá er áfengi þar í fimmta sæti.

Lesa meira

 

Partý í Dúfnahólum 10 - 17.10.2006

Í myndinni Sódóma Reykjavík er klassískt atriði þegar aðalpersónan býður óvart í partý heim til sín í Dúfnahóla 10. Ástandið í Dúfnahólum í partýinu og eftir það er svakalegt og ólíklegt að nokkur vilji sjá heimilið sitt undir slíkri innrás. Samt sem áður virðast partý í heimahúsum unglinga þar sem enginn ábyrgur fullorðinn er til staðar vera glettilega algeng. Lesa meira
 

Vímuefnaforvarnir - 13.3.2006

Forvarnir er hugtak sem flestir kannast við og hafa heyrt notað við margvísleg tilefni. Algengast er þó að forvarnir séu nefndar í sambandi við vímuefni og þá til að koma í veg fyrir neyslu þeirra. Almennt markmið vímuefnaforvarna er að fyrirbyggja hegðun sem valdið getur einstaklingum skaða eða tjóni. Lesa meira
 

Áfengislaus skólaböll - 2.11.2005

Í nýliðinni vímuvarnaviku var þemað upphafsaldur áfengisdrykkju þar sem m.a. var lögð áhersla á mikilvægi þess að ungt fólk hefji ekki neyslu áfengis fyrr en eftir tvítugt. Lesa meira
 

Samveran skiptir mestu í sumarfríinu - 12.7.2005

Flestir þekkja þá tilhlökkun sem er í því fólgin að komast með fjölskyldunni í frí eftir langan og strangan vetur. Börn hafa oft miklar væntingar til foreldra sinna á þessum tíma. Það á að vera svo gaman. Við öll saman. Hugsunin um allt sem á loksins að gera með fjölskyldunni á 3-4 vikum sem ef til vill hefði mátt dreifa á árið verður til þess að óþægileg spenna getur myndast milli foreldranna. En stundum vakna líka upp áleitnar spurningar. Getum við farið saman í frí? Hvað með börnin. Getum við sent þau á námskeið hluta úr sumrinu eða verðum við að dekka sumarið með því að skipta upp fríinu okkar? Hvert á að fara? Hvað getum við gert? Hvað leyfir fjárhagurinn? Lesa meira
 

Er unglingurinn að neyta vímuefna? - 28.6.2005

Þekking á áhættuþáttum og einkennum vímuefnaneyslu getur komið sér vel, í tilfellum þar sem um neyslu vímuefna er að ræða eða hætta er á slíku. Einnig til að koma í veg fyrir misskilning, óþarft vantraust og grunsemdir vegna atvika eða hegðunar sem ekkert hefur með neyslu vímuefna að gera. Lesa meira
 

Foreldrar, unglingar og áfengi - 30.5.2005

Vorin og sumrin er oft sá tími sem ungt fólk prófar að drekka áfengi í fyrsta sinn. Prófin eru búin og halda á upp á það með ýmsum hætti, s.s. veislum eða útilegum. Unglingar sem eru að þreifa sig áfram í heimi fullorðinna telja sig oft geta - og jafnvel eiga - að gera áfengi hluta af sínum lífsstíl. Flestum er þó ljóst hvaða afleiðingar áfengisdrykkja getur haft á heilbrigði og félagslegt umhverfi þess sem drekkur. Á þetta ekki síst við um áfengisdrykkju ungmenna sem enn eru að taka út þroska. Lesa meira
 

Áfengi skaðlegra konum en körlum? - 7.3.2005

Áhrif áfengis á kynin eru ekki eins og þá skiptir stærð viðkomandi einnig máli hvað þetta varðar. Lesa meira
 

Áfengisdrykkja unglinga - líka ábyrgð foreldra - 27.9.2004

Unglingsár eru spennandi ár. Réttindi og skyldur aukast, tilraunir með mörk og viðmið, þróun sjálfsímyndar og allt þetta skemmtilega sem þó er svo erfitt eru hluti af því þroskast frá barni til fulltíða manns.

Lesa meira

 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica