Húðin gleymir ekki sólbruna
Á sólardögum flykkjast Íslendingar út í góða veðrið og njóta útiverunnar. Ýmislegt ber þó að hafa í huga til að forðast það að brenna í sólinni, því húðin getur beðið skaða til lengri tíma en þess sem sólbrúnkan endist.
Nú þegar sumarið er komið flykkjast fullorðnir og börn út í sólina. Sólin gefur okkur kærkomna birtu og hlýju eftir langan vetur en einnig útfjólubláa geislun sem getur verið skaðleg ef við förum ekki varlega. Þar sem húð barna er mun viðkvæmari en húð fullorðinna er það sérstaklega mikilvægt að börn sólbrenni ekki. Mikilvægt er að verja börn á fyrsta ári vandlega; sólhattur og þunn sumarföt henta þeim vel. Staðsetjið barnavagninn í skugganum eða notið sólhlíf.
Ef farið er út í sólina milli kl. 11 og 15 er besta vörnin föt og hattur, en sólaráburð má bera á þau svæði sem eru óvarin. Okkur hættir til að brenna í andliti, á eyrunum og aftan á hálsi. Barðabreiðir hattar veita þar góða vörn.
Útfjólublá geislun, hvort sem hún kemur frá sólinni eða ljósabekkjum, er aðal orsök húðkrabbameina. Á Íslandi greinast yfir 300 manns með krabbamein í húð á hverju ári, þar af að meðaltali 50 manns með sortuæxli, sem er hættulegasta tegund húðkrabbameina. Besta forvörnin gegn húðkrabbameinum er að koma í veg fyrir sólbruna.
Útiveru á sólardögum þarf ekki að fylgja mikil áhætta ef við notum okkar heilbrigðu skynsemi og fylgjum nokkrum einföldum ráðum til að forðast það að brenna í sólinni. Margir tengja sólbruna einkum við suðrænar slóðir, en sökum þess hve tært andrúmsloftið á Íslandi er getum við sólbrunnið hér á skemmri tíma en marga grunar.
- Ung börn ættu aldrei að vera óvarin í sól sérstaklega ekki fyrsta aldursárið.
- Forðumst sólina frá klukkan 11 til 15 - Þá eru geislar sólarinnar sterkastir. Enginn, og þá sérstaklega ekki börn, ætti að liggja í sólbaði á þeim tíma.
- Klæðumst fötum til að skýla okkur fyrir sólinni - Að klæðast víðum fötum er þægileg og árangursrík leið til að verja sig fyrir útfjólublárri geislun, ef nauðsynlegt er að vera úti þegar sól er hæst á lofti.
- Sitjum í skugganum - Það er einföld leið til að verja sig fyrir sólargeislunum. Góð regla er að vera aldrei óvarinn í sólinni ef skugginn er styttri en maður sjálfur.
- Sólaráburður - Notum sólarvarnaráburð þegar við erum úti í sólinni um miðjan dag. Bera skal á húðina hálftíma áður en farið er í sólina og endurtaka á tveggja klukkutíma fresti. Munum að jafnvel vatnsþolinn sólaráburður máist af við það að þurrka sér með handklæði.
- Verndum augun - Notum sólgleraugu til að vernda augun gegn áreiti sólargeislanna en þeir geta orsakað ský á auga og aðra augnsjúkdóma.
Verum börnum og unglingum gott fordæmi og förum varlega í sólinni.
Sveinbjörn Kristjánsson, verkefnastjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð
------------------------------------
Nánari upplýsingar á www.krabb.is og í nýútkomnum bæklingi Krabbameinsfélagins; „Sortuæxli í húð“
