Hvernig burstum við tennur barna?
Góð tannhirða er barninu nauðsynleg og tennurnar verður að hreinsa þó ekki sé það alltaf auðvelt. Hér eru nokkur góð ráð sem foreldrar geta nýtt sér:
Yfirlit
Staða: Börn, yngri en þriggja ára, er best að hafa vel skorðuð í útafliggjandi stöðu þegar tennurnar eru hreinsaðar, t.d. á skiptiborði eða í fangi foreldris. Börnum á aldrinum 3-6 ára má bjóða sæti í þar til gerðum ,,foreldrastól”. Foreldri situr þá með krosslagðar fætur sem barnið sest á. Barnið snýr baki að foreldri og hvílir höfuðið á læri þess.
Tannbursti: Nota á tannbursta með mjúkum hárum á nettum haus og skaftið þarf að passa í fullorðinshendi.
Tannkrem: Einfaldast er að nota sama flúortannkremið (0,1-0,15% F-) fyrir alla fjölskylduna og notið lítið af því, eða magn sem svarar til ¼ af nögl litlafingurs barns sem er yngra en 3ja ára, og magns sem samsvarar nöglinni á litla fingri 3-6 ára barns. Barnið kyngir því tannkremi sem upp í það fer og börn yngri en sex ára eiga ekki sjálf að skammta tannkrem á burstann.
2 mínútur: Bursta þarf í um tvær mínútur og nauðsynlegt er að hreinsa tennunar tvisvar sinnum yfir daginn, t.d. eftir morgunverð og mjög vel áður en farið er í háttinn.
Tannburstun
Bitfletir jaxlanna eru burstaðir og farið vel ofan í skorunar. Síðan er haldið áfram með ytri og innri fleti jaxlanna og burstað vel á bak við öftustu tönn. Augn- og framtannasvæði eru burstuð og þegar framtennurnar eru burstaðar að innanverðu þarf að reisa tannburstan upp á endann og nudda upp og niður. Flúor í tannkremi virkar lengur ef ekki er skolað eftir tannburstun, það nægir að skyrpa.
Tannþráður
Tannþráð þarf að nota daglega, jafnt á barna- og fullorðinstennur, en með honum eru hreisnaðir þeir fletir tannanna (2 af 5) sem burstinn nær ekki til. Tímabært er að hefja notkun tannþráðar þegar barnið er 3-4 ára. Góð regla er að nota tannþráðinn fyrst og bursta svo.
Ábyrgð á tannhirðu
Börn geta ekki séð um tannhirðuna sjálf fyrr en 10-12 ára og sum þurfa aðstoð lengur með tannþráðinn. Börnunum líður vel með hreinar og heilbrigðar tennur og það erum við foreldrarnir sem gegnum lykilhlutverki í tannvernd barnanna okkar. Reglulegt tanneftirlit, góð tannhirða og hollar neysluvenjur stuðla að fallegu og heilbrigðu brosi alla ævi.
Nýtt lifandi fræðsluefni
Lifandi fræðsluefni um tannhirðu barna
Hólmfríður Guðmundsdóttir, tannlæknir
Lýðheilsustöð
