Ofbeldi í samböndum ungs fólks
Sem betur fer eru flest sambönd ungs fólks hamingjusöm og farsæl en því miður þekkist að sum þeirra eru ofbeldisfull. Ofbeldi í samböndum ungs fólks getur orðið mjög alvarlegt og hafa ber í huga að á þessum árum eru lífsviðhorf að mótast. Flestir ofbeldismenn hófu ferill sinn ungir og því er mikilvægt að grípa strax inn í ef slík hegðun kemur fram.
Sá sem verður fyrir ofbeldi getur þurft að kljást við afleiðingar af ýmsum toga. Sem dæmi má nefna lágt sjálfsmat, þunglyndi, misnotkun áfengis eða vímuefna og áfallastreitu.
Unglingur sem beitir aðra ofbeldi (í samböndum) þarf að fá aðstoð við að breyta hegðun sinni og átta sig á að slík hegðun verði ekki liðin. Meðal einkenna sem unglingur sem beitir ofbeldi getur verið að sýna eru erfiðleikar við að takast á við vonbrigði eða reiði, léleg félagsfærni, nota ofbeldi eða hótanir til að leysa vandamál og slök sjálfsmynd.
Hlutverk foreldra
En hvað getum við foreldrar gert til þess að koma í veg fyrir að unglingarnir þeirra beiti ofbeldi?
Við kennum börnum okkar ungum að það megi ekki slá aðra en þótt þau hafi lært það þá má ekki sofna á verðinum. Við verðum alltaf að vera að uppfæra þá þekkingu sem við miðlum til barnanna okkar (hver er t.d. ennþá með Word Perfect forritið í tölvunni sinni?). Með því að ræða opinskátt um samskipti kynjanna og kynjaímyndir gefast tækifæri til að leiðrétta misskilning, miðla þekkingu og efla tengslin við hálfstálpuð börn okkar. Oft þarf að leyfa þeim að hafa frumkvæði; hver kannast ekki við ranghvolfð augu þegar spurt er ,,hvernig var í skólanum í dag”? Verum opin fyrir því þegar þau vilja ræða eitthvað.
Samskipti og virðing
Oft er undanfari ofbeldis einhvers konar samskiptavandi og þar ríður á að við séum góðar fyrirmyndir. Getum við sjálf leyst vandamál án þess að grípa til hótana eða niðurlægjandi talsmáta? Við þurfum að kenna þeim virðingu í samskiptum og að þau geti krafist þess sama í samskiptum við aðra. Reiðist börnin okkar auðveldlega er hægt að kenna þeim að þekkja einkenni reiði og einfaldar aðferðir til að losa um hana, svo sem að telja upp á tíu eða yfirgefa staðinn til að jafna sig.
Að láta viljann í ljós
Við lausn vandamála þarf að læra að semja um hlutina og átta sig á að oft þarf maður að gefa eitthvað eftir. Samningar eiga ekki að vera þannig að annar aðilinn sigri. Hægt er að þjálfa samningagerð smátt og smátt, með því t.d. að leysa minniháttar vandamál og kenna börnunum að setja sig í spor annarra. Einnig er gott að geta sagt skýrt frá því hvers maður óskar sér, jafnvel þótt ekki sé hægt að verða við því. Við getum ekki gert ráð fyrir að fólk viti hvað það er sem við viljum ef við segjum ekki frá því!
Vefsíðan umhuga.is er um sambönd ungs fólks og þar er margt gagnlegt fræðsluefni, jafnt fyrir foreldra sem ungt fólk.
Jenný Ingudóttir, lýðheilsufræðingur,
verkefnisstjóri Lýðheilsustöð
