Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Skólataska leikur stórt hlutverk hjá börnum

26.8.2009

Mikilvægt er að kenna börnum og ungmennum að bera ábyrgð á eigin líkama og þar leikur rétt notkun skólatöskunnar stórt hlutverk, þar sem nemendur bera hana í um 180 daga á ári í minnst 10 ár.

Smella á mynd til að stækka.Nauðsynlegt er fyrir börn og fjölskyldur þeirra að átta sig á hvernig best er að nota og bera töskuna, auk þess að raða í hana á æskilegan hátt. Það er því ekki nóg að kaupa góða tösku handa börnum ef þau kunna ekki að nýta sér þau lykilatriði sem skipta máli til að minnka líkur á líkamlegum kvillum.

Stoðkerfisvandi barna og ungmenna er vaxandi vandamál í nútíma samfélagi og getur torveldað börnum þátttöku í skóla, starfi og tómstundum um alla tíð. Nauðsynlegt er því að þekkja áhrif rangrar notkunar skólatösku. En hvað skiptir máli varðandi skólatöskuna?

Að pakka/raða í skólatösku:

  • Veljið rétta stærð af tösku fyrir bak barnsins.
  • Ekki er æskilegt að barn beri tösku sem vegur meira en 10% af líkamsþyngd.
  • Foreldrar geta aðstoðað börn sín við að raða í töskuna og hjálpað til við að stilla böndin á henni.
  • Setjið þyngstu hlutina sem næst baki barnsins og raðið hlutum í töskunni þannig að þeir séu stöðugir og renni ekki til.
  • Farið daglega yfir það sem barnið ber með sér í og úr skóla.
  • Þá daga sem taskan er yfirhlaðin gæti barnið t.d. borið bækur eða íþróttatöskuna í fanginu.

Að stilla skólatösku:

  • Báðar axlarólar skulu ávallt vera notaðar. Að bera töskuna á annarri öxlinni getur valdið því að hryggsúlan sveigist.
  • Veljið skólatösku með vel bólstruðum axlarólum. Í öxlum og hálsi eru margar æðar og taugar. Ef of mikill þrýstingur er á þessi svæði getur það valdið sársauka og dofa í hálsi, handleggjum og höndum. · Stillið axlarólar þannig að taskan liggi þétt við bak barnsins.
  • Notið mittisólina ef taskan hefur slíka. Mittisólin dreifir þunga töskunnar jafnt á líkamann.
  • Neðsti hluti töskunnar á að hvíla við mjóbakið. Taskan á aldrei að ná lengra en 10 cm fyrir neðan mitti og hún ætti ekki að vera breiðari en efri hluti baks til að hindra ekki eðlilegar hreyfingar handleggja.

Skólatöskudagar á vegum iðjuþjálfa

Með svokölluðum Skólatöskudögum í grunnskólum hafa iðjuþjálfar lagt sitt að mörkum til að aðstoða nemendur að átta sig á mikilvægi þess að nota skólatöskuna rétt. Auk fræðslu er boðið upp á vigtun á skólatöskum til að kanna hvort þyngd töskunnar sé hæfileg fyrir barnið.

Fræðslan fer fram dagana 21. – 25. september og eru skólar hvattir til að taka þátt.

Létta leiðin er rétta leiðin!

Helga Kristín Gestsdóttir, iðjuþjálfi

Tengill: www.ii.is



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica