Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Í sumarfrí út í óvissuna.

25.6.2008

Loksins er sumarið komið og margir fagna langþráðu sumarfríi þar sem markmiðið er oft að komast frá streitu og álagi, drekka í sig sól og sumaryl, upplifa eitthvað nýtt og endurnýjast áður en hausta tekur.

Sumir hlakka mikið til en aðrir fyllast kvíða við tilhugsunina um að halda út í þá óvissu sem ferðalög hafa í för með sér. Einnig er hugsanlegt að fólk hafi blendnar tilfinningar, þar sem tilhlökkun og kvíði skiptast á að vera ríkjandi. Margir hafa fastmótaðar hugmyndir um það hvernig hið fullkomna sumarfrí á að vera, t.d. að fara með fjölskylduna til sólarlanda þar sem hinir fullorðnu flatmaga í sólinni með svaladrykk í hönd og horfa á ánægða ungana sína leika sér í sandi eða sundlaug. Í þessari ímynd eru allir síkátir, hamingjusamir og lausir við áhyggjur eða streitu. Veruleikinn vill hins vegar stundum verða annar en áætlað var í upphafi.

Ferðalögum fylgir oftast ákveðin streita. Það reynir t.d. á þolinmæði þreyttra foreldra þegar ungarnir byrja að suða á fyrstu mínútum ferðarinnar og vilja kaupa nýtt dót eða sælgæti í hverri búð eða sjoppu sem verður á veginum. Erlendis gæti hiti og þorsti gert börnunum erfitt fyrir og svo bætast stundum við ýmis konar óþægindi s.s. flugnabit eða magakveisa. Það getur einnig valdið vonbrigðum að hótelið er ekki nákvæmlega eins og búist var við og maturinn ekki eins og börnin eru vön heima. Síðast en ekki síst reynir það á samkomulagið innan fjölskyldunnar að vera saman allan sólarhringinn þar sem fjölskyldumeðlimir eru vanir að vera aðskildir í skóla og vinnu a.m.k. hluta úr degi meirihluta ársins.

Gott frí þarf ekki að vera fullkomið

     

  • Gerum raunhæfar jákvæðar væntingar til frísins.
  • Setjum markið á gott frí en ekki fullkomið
  • Skoðum það sem veldur okkur kvíða en reynum að sætta okkur við að geta ekki skipulagt allt.
  • Munum að kvíði er tilfinning, ekki spádómur um hrakfarir.
  • Leyfum okkur að hlakka til.

Niðurstaðan er sú að hið fullkomna frí er vandfundið en gott frí þarf ekki að vera fullkomið. Það er óraunhæft að búast við fullkomnun í þessu sem öðru í lífinu. Væntingarnar skipta meginmáli og þær þurfa að vera raunhæfar. Það er mikilvægt að þola ákveðna óvissu þegar kemur að sumarfríi. Ferðalög innan- eða utanlands fela óhjákvæmilega í sér ákveðna óvissu. Við getum aldrei skipulagt allt í þaula eða komið í veg fyrir að eitthvað fari úrskeiðis. Óvissa getur kryddað fríið með óvæntum skemmtilegum uppákomum og við þurfum að geta tekið áskorunum þegar hlutirnir ganga ekki eins og best verður á kosið. Það neikvæða sem gerist í fríinu þarf ekki að eyðileggja allt. Jafnvel minni háttar óhöpp eða hrakfarir geta orðið að jákvæðri reynslu í minningunni. Það er mikilvægt að leggja af stað í fríið með raunsætt jákvætt hugarfar.

Það er gott að vera raunsær og gera sér grein fyrir því að ýmislegt geti farið öðruvísi en áætlað var en jafnframt að leyfa sér að hlakka til og reyna að gera það besta úr því sem gerist. Tökum óvissunni fagnandi því hún getur gert fríið meira spennandi. Munum að það að upplifa einhvern kvíða í nýjum aðstæðum er eðlilegt og að kvíði er einungis tilfinning. Að kvíða fyrir fríi er ekki spá um að fríið eigi eftir að mislukkast eða að eitthvað hræðilegt að gerast. Hóflegur kvíði getur meira að segja hjálpað okkur til að undirbúa okkur betur og þannig getur hann fyrirbyggt vandræði. Kvíði sem fer úr böndunum getur hins vegar verið mjög hamlandi og jafnvel komið í veg fyrir að fólk treysti sér til að halda út í óvissuna. Látum ekki kvíða eða lítið óvissuþol spilla sumarfríinu.

Fögnum nýjum upplifunum og óvæntum uppákomum.

Góða skemmtun!

 

Guðbjörg Daníelsdóttir, sálfræðingur á geðsviði LSH og stundakennari



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica