Sumarið og unglingar
Iðjuleysi getur verið varhugavert
Það er mikilvægt að vera á verðbergi gagnvart vímuefnaneyslu allan ársins hring, en íslenskar rannsóknir gefa í skyn að hættan aukist sérstaklega á sumrin. Það að eiga mikinn tíma aflögu eykur líkurnar á að þeim tíma sé eytt í óhollari athafnir – og þar með aukast líkurnar á tilraunum með áfengis- og tóbaksneyslu.
Uppbyggilegar aðgerðir
Hvað getur þú sem foreldri gert til að tryggja uppbyggilegt sumar hjá unglingnum þínum? Þú getur byrjað á því að sjá til þess að hann hafi nóg að gera og að hann sé ekki umsjónarlaus með öllu. Með því að skipuleggja sumarið í sameiningu er hægt að stuðla að uppbyggilegum tíma sem leiðir af sér jákvæða reynslu og minningar.
Unglingur sem hefur tiltekin áhugamál, t.d. listgreinar eða íþróttir, þarf kannski bara aðstoð við að finna rétt félag eða félagsskap. En sumt ungt fólk hikar við að reyna eitthvað nýtt og getur verið óöruggt um eigin getu eða hvað vinum þeirra finnst. Aðrir unglingar vita ekki eða hafa ekki gert upp hug sinn um hvað þeir vilja.
Róleg hvatning
Unglingsárin eru oft tímabil sjálfstæðisbaráttu. Þ.a.l. getur verið vænlegra að þrýsta ekki um of þegar stungið er upp á nýjum tækifærum. Það getur nefnilega verið fráhrindandi ef unglingur upplifir of mikla ákefð frá foreldrum. M.ö.o. er vænlegt að opna dyrnar, en ýta ekki unglingum í gegnum þær. En hvað ef unglingurinn hefur ekki áhuga? Það þarf ekki að vera vandamál, enda þarf jákvætt sumar ekki endilega að krefjast stórra hugmynda. Kannski eru margar smærri hugmyndir málið? T.d. að fara út í náttúruna, hlusta saman á tónlist eða fara á einhverja af þeim viðburðum sem eru í boði í samfélaginu. Allt bíður þetta upp á tækifæri til að byggja upp og dýpka samband ykkar.
Atvinnumöguleikar og sjálfboðavinna
Að stunda áhugamál er auðvitað ekki eina leiðin til að upplifa uppbyggilegt sumar. Vinna, hvort sem hún er launuð eða ólaunuð, getur boðið unglingi upp á forsmekk af framtíðinni og byggir upp félagstengsl og vinnusemi. Vinnuskólinn, verslunarstörf og ýmsir aðrir arðbærir valmöguleikar standa unglingum til boða, en svo getur einnig verið vænlegur valkostur að sinna sjálfboðastörfum, t.d. hjá Rauða krossinum.
Tækifæri
Tími frá önnum skólans bíður upp á alls konar tækifæri til að öðlast ný áhugamál eða byggja á gömlum. Með því að veita unglingum stuðning geta foreldrar aðstoðað að víkka sjóndeildarhring þeirra og gera sumarið bæði uppbyggilegt og eftirminnilegt.
Héðinn Svarfdal Björnsson
Verkefnisstjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð
