Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Heilsuefling á vinnustöðum - allra hagur

27.2.2008

Heilsuefling er það ferli sem gerir fólki kleift að hafa aukin áhrif á heilsu sína og bæta hana. Einstaklingurinn sjálfur hefur stjórn á ýmsum þáttum varðandi eigin heilsu en aðrir þættir vega einnig þungt. Þættir í umhverfinu geta haft hvetjandi eða letjandi áhrif á einstaklinginn til þess að huga að heilsunni.

Þannig getur framboð og aðgengi á hollum mat haft áhrif á matarvenjur á sama hátt og aðstæður og hvatning til hreyfingar geta haft áhrif á það hvað viðkomandi hreyfir sig mikið. Að sjálfsögðu er það mikilvægast fyrir einstaklinginn sjálfan að hann hugsi vel um eigin heilsu en það er nú samt þannig að fleiri en hann njóta ávinningsins. Það kemur sér vel fyrir samfélagið allt ef fólk hugar almennt vel að heilsu sinni og sneiðir hjá þáttum sem hafa neikvæð áhrif á heilsuna.

Eflir mannauðinn

Heilsuefling á vinnustöðum má líta á sem sameiginlegt verkefni vinnuveitanda, starfsmanna og samfélagsins í heild. Meginmarkmiðið er að auka heilsu og vellíðan vinnandi fólks og í því samhengi er unnið að því að bæta vinnuskipulag og vinnuumhverfi um leið og hvatt er til virkrar þátttöku. Á þennan hátt ýtir heilsuefling undir þroska einstaklinga sem og starfsþróun. Heilsuefling miðar að því að efla mannauð fyrirtækja og er þannig góð fjárfesting sem skilar ávinningi fyrir vinnustaði jafnt sem starfsmenn. Ávinningur vinnustaða er meðal annars fólginn í lægri kostnaði vegna veikinda, fjarvista og slysa ásamt því að framleiðni og nýsköpun eykst. Einnig hefur verið sýnt fram á að heilsuefling skilar sér í minni starfsmannaveltu. Ávinningur starfsmanna er einnig umtalsverður og sýnir sig í færri slysum og sjúkdómum ásamt því að heilsa, vellíðan og starfsánægja eykst.  

Vinnuveitendur sem hlúa að heilsu starfsmanna sinna hafa ekki eingöngu jákvæð áhrif á starfsmennina sjálfa heldur geta þeir einnig haft áhrif á fjölskyldur þeirra og samfélagið í heild. Í ljósi þessa hafa allir hag af heilsueflingu á vinnustöðum. Mikilvægt er að á sem flestum vinnustöðum sé heilsuefling sjálfsagður þáttur í stefnu vinnustaðarins og unnið sé markvisst að henni. Þegar unnið er að heilsueflingu á vinnustöðum er mikilvægt að móta heildarstefnu og langtímaáætlun sem fellur að almennri stefnu og stjórnunarháttum vinnustaðarins. Mikilvægt er að í slíkri áætlun séu einnig skammtímamarkmið. Tilgreina skal nauðsynleg úrræði, fjármagn, tímaáætlun og ábyrgðarmann fyrir hverri aðgerð.  

Að virkja sem flesta

Gott er að setja saman vinnuhóp sem í eiga sæti fulltrúar mismunandi starfshópa á vinnustaðnum. Á minni vinnustöðum er hægt að hafa einn hóp sem vinnur að öllum þáttum er varða heilsueflingu starfsmanna en á stærri vinnustöðum er hægt að hafa einn hóp fyrir hvern þátt. Hlutverk vinnuhópsins er að virkja sem flesta til þátttöku, hvetja til opinnar umræðu og virkja starfsmenn til að stuðla að góðri heilsu og líðan á vinnustaðnum.  Í vinnuhópnum ættu að sitja fulltrúar starfsmanna og stjórnenda en einnig er hægt að kalla til utanaðkomandi sérfræðinga til aðstoðar 

Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið vinna saman að ýmsum verkefnum tengdum heilsueflingu á vinnustöðum. Eitt þeirra er útgáfa á ráðleggingum um heilsueflingu á vinnustöðum sem kemur út á næstu dögum og Evrópuverkefnið Heil og sæl í vinnunni. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni: www.heilsuefling.is

 

Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, Lýðheilsustöð

Þóra Björt Sveinsdóttir, Vinnueftirlitinu



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica